11.02.1986
Efri deild: 47. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2513 í B-deild Alþingistíðinda. (2106)
259. mál, Útflutningsráð Íslands
Björn Dagbjartsson:
Virðulegi forseti. Mér fannst það óþarfi hjá hv. 4. þm. Vesturl. að brigsla ríkisstj. um sérstakan sósíalisma þó að hún væri að koma af stað þessari nauðsynlegu starfsemi. Það er einmitt hlutverk ríkisstj. - og hún skilur það - að styðja við bakið á nýjungum og það er einmitt tilgangur þessa frv.
Auðvitað kostar það nokkra peninga að selja vöru. En ég er ekki í nokkrum vafa um það að innan skamms mun þessi starfsemi ekki þurfa neinar sérstakar tekjur af útflutningsgjöldum eða af öðrum mörkuðum tekjustofnum. Hún mun mjög fljótt standa undir sér og þeir sem í útflutningi standa munu þá sjá henni fyrir tekjum.
Það er svo aftur annað mál á hversu breiðum grundvelli slíkt útflutningsráð á að starfa. Það getur vel verið að það væri alveg sjálfsagt að atvinnuverkalýðsforingi úr Verkamannasambandinu ætti að sitja þar í stjórn. En fagmennska í útflutningi er allt annað. Það kemur ekki síður launþegum til góða ef vel tekst til í útflutningsstarfseminni hver sem situr í stjórn útflutningsráðs. Það lagði hæstv. ráðherra alveg sérstaka áherslu á.