11.02.1986
Efri deild: 47. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2513 í B-deild Alþingistíðinda. (2107)

259. mál, Útflutningsráð Íslands

Valdimar Indriðason:

Virðulegi forseti. Ég vil taka undir með þeim, sem hér hafa tekið til máls um þetta frv., að ég tel þetta mjög til bóta og framfara, nauðsynlegt skref í þá átt, sem stefnt hefur verið að, að auka okkar útflutningstekjur og möguleika á okkar mörkuðum. Við getum deilt um það hvort of mikill sósíalismi felst í því eða ekki, það er allt annað mál. Þetta er spor í rétta átt.

En vegna orða hv. 4. þm. Vesturl. áðan, þá held ég að það sé nokkur misskilningur hjá honum að gengið hafi verið fram hjá aðilum vinnumarkaðarins, eins og við köllum, Alþýðusambandi, Vinnuveitendasambandi og öðrum, því að það stendur greinilega um 3. gr. í grg., með leyfi forseta:

„Gert er ráð fyrir að útflutningsráð sé opið öllum þeim aðilum sem flytja út vörur og þjónustu eða vinna að gjaldeyrisöflun á annan hátt. I ráðinu verði einnig samtök þeirra atvinnugreina sem tengjast útflutningi á einn eða annan hátt, fulltrúar Alþýðusambands Íslands, Vinnuveitendasambands Íslands og af hálfu ríkisins fulltrúar viðskrn., utanrrn., iðnrn., landbrn., sjútvrn., samgrn. og menntmrn." Þessir aðilar eiga allir kost á því að tjá sig í þessu útflutningsráði.

Þetta er sennilega mjög líkt og t.d. hjá Hafrannsóknastofnun. Þar er sérstakt ráð sem fjallar um ýmsar tillögur sem berast ráðinu en svo er aftur sérstök stjórn sem er yfir því og úttærir þær tillögur sem þaðan koma. Gert er ráð fyrir að þessar hugmyndir allar komi inn í þetta útflutningsráð sem heldur fundi tvisvar á ári, en svo er stjórn yfir öllu fyrirtækinu. Þess vegna tel ég ekki að þarna sé á nokkurn hátt girt fyrir það að hin ýmsu samtök vinnumarkaðarins geti komið sínum tillögum þarna á framfæri, það er beinlínis gert ráð fyrir því hér í frv. sjálfu.

Ég vildi aðeins benda á að þetta er fyrir hendi sem hv. þm. var að ræða um. Að öðru leyti ætla ég ekki að orðlengja um þetta núna. Þetta kemur fyrir nefnd sem ég á sæti í. En ég tel þetta frv. stórt framlag til þeirra mála sem við höfum lengi stefnt að.