11.02.1986
Efri deild: 47. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2514 í B-deild Alþingistíðinda. (2108)

259. mál, Útflutningsráð Íslands

Skúli Alexandersson:

Virðulegi forseti. Það er kannske ekki rétt að fara að deila beinlínis hér í hv. deild um það hvort hér er um sósíalisma að ræða eða kapítalisma. En mér heyrðist nú samt á hv. 5. þm. Norðurl. e. að hann viðurkenndi að þetta væri samt ekki hinn hreini, góði kapítalismi eða rétta frjálsa framtak. Hann viðurkenndi að það ætti að vera hlutverk ríkisstjórnar að styðja við bakið á þessum aðilum, eins og hann orðaði það. Þá held ég að við séum kannske komnir að því að geta fallið frá því að þetta sé beint sósíalismi heldur sé þetta hinn góði pilsfaldakapítalismi sem við höfum búið við hér og okkar þjóðfélag er að miklu leyti byggt upp af. Íslenski kapítalistinn stendur ekki einn. Hann verður að hafa ríkisvaldið til að styðja sig og hjálpa sér á mörgum sviðum.

Ég fagna því að sjálfstæðismenn skuli viðurkenna þessa staðreynd og að þeir séu ekki alltaf jafnuppfullir af því að frelsi markaðarins og frelsi hins frjálsa framtaks skuli alls staðar fá að ráða og alls staðar vera í öndvegi.

En hitt vil ég ítreka að uppbygging stofnunarinnar sé á þann veg sem ég var að benda á áðan. Ég skal taka undir það sem hv. 3. þm. Vesturl. sagði að það er tekið fram í 3. gr. og í athugasemdum við 3. gr. að gert er ráð fyrir því að samtök eins og ASÍ geti gerst aðilar að þessu. En skv. lögunum er það bundið að þessi samtök geti ekki átt fulltrúa í stjórn. (Gripið fram í: Jú, þetta er rangt hjá þér.) Nei, það er ekki rangt, það er bundið hverjir skuli vera í stjórn. (Gripið fram í: Lestu greinina.) Ég skal lesa 4. gr. aftur, með leyfi forseta, þannig að hv. 5. þm. Norðurl. e. geti nú áttað sig á því að það er um útilokunaraðferð að ræða gagnvart launþegasamtökunum að þau eigi fulltrúa í stjórn útflutningsráðsins. Greinin er þannig, með leyfi hæstv. forseta:

„Stjórn útflutningsráðs skipa átta menn, valdir til tveggja ára í senn. Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna, Samband ísl. samvinnufélaga, Flugleiðir hf., Sölusamband ísl. fiskframleiðenda og Félag ísl. iðnrekenda tilnefna einn mann hver. Viðskrh. og utanrrh. tilnefna einn mann hvor og einn stjórnarmaður skal tilnefndur sameiginlega af aðilum í útflutningsráði.“ (Gripið fram í.) Það er tilnefnt af útflutningsráði en það yrðu þá líkur fyrir því að þessi ágæti hópur færi endilega að kjósa fulltrúa ASÍ í stjórnina. Það er engin tilætlun í lögunum og frekar hitt, eins og ég sagði áðan, það er útilokunaraðferð að þessir aðilar eigi ekki mann í stjórn. (Gripið fram í.) Kannske er það yfirbragð yfir þessari stjórnarskipun, eins og hv. sjálfstæðismenn hafa verið að nefna hér undanfarandi, að þetta sé ópólitísk stjórn, það sé kannske engin pólitík í þessari stjórn. Það er trúlegt. Það er nú þarna víst einn frá Félagi ísl. iðnrekenda. Hann er sjálfsagt ópólitískur. (Gripið fram í: Hann er örugglega ekki stjórnmálamaður.) Ábyggilega ekki stjórnmálamaður og aðrir eftir því. Vitaskuld er verið að búa hér til pólitíska stjórn og næstum því frá einum flokki. Næstum því frá einum flokki, þó að framsókn fái þarna aðeins að svífa inn í með Sambandinu sínu. (Gripið fram í: Þetta er bara ekki rétti flokkurinn eða rétta kerfið.) Við erum nú ekki búnir að búa til rétt kerfi enn þá og kannske langt í land að það verði. En ég vildi aðeins undirstrika þetta. Ég veit að hv. fjh.- og viðskn. mun líta á þennan þátt og eins á tekjuþáttinn þar sem er ætlast til að þessi stofnun hafi sem aðaltekjur fjármagn frá sjóði sem á að fara að leggja niður. En hitt, að þessi stofnun fari að afla sér eigin tekna á þessu eða næsta ári, finnst mér ansi miklir draumórar hjá hv. 5. þm. Norðurl. e.