13.02.1986
Sameinað þing: 46. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2545 í B-deild Alþingistíðinda. (2124)
213. mál, laun, samnings- og verkfallsréttur og lögverndun á starfsheiti kennara
Fyrirspyrjandi (Hjörleifur Guttormsson):
Herra forseti. Mörg hildi hefur verið háð á vinnumarkaði undanfarin misseri. Enginn hópur launamanna hefur þó staðið í öðru eins stappi við ríkisstj. og kennarar. Engin starfsstétt hefur fengið jafnmörg loforð frá ríkisstj. sem hafa verið svikin jafnharðan. Það hefur kostað kennara harða baráttu og verkföll að reyna að halda sínum hlut og fá viðurkenningu ríkisvaldsins á kennarastarfinu og um leið á gildi skólastarfs í landinu.
Í fyrravetur voru kennarar í Kennarasambandi Íslands þátttakendur í margra vikna verkfalli opinberra starfsmanna og skólastarf í grunnskólum lá niðri á meðan. Í marsmánuði í fyrra gengu á fimmta hundrað félagar í Hinu íslenska kennarafélagi út úr skólunum og framhaldsskólar í landinu voru að drjúgum hluta lamaðir á meðan á því stóð.
Enn á þessu skólaári hafa kennarar orðið að fylkja liði til að minna ríkisvaldið á marggefin loforð og krefjast leiðréttinga á sjálfsögðum atriðum eins og því að kennarar með sömu menntun búi við sömu kjör fyrir hliðstæð störf innan skólanna.
Fundur um 700 kennara á Reykjavíkursvæðinu, sem haldinn var á Hótel Sögu 29. janúar s.l., minnti hæstv. menntmrh. og staðgengil fjmrh. á loforð ríkisvaldsins undanfarin misseri og þar voru boðaðar aðgerðir ef ekki yrði orðið við kröfum um lágmarksleiðréttingu. En sú mikla samstaða, sem þar kom fram, dugði ekki til að ráðherrarnir áttuðu sig Það er fyrst með fjöldaaðgerðum Kennarasambands Íslands um land allt í þessari viku sem hæstv. fjmrh. virðist hafa rumskað.
Á fyrsta starfsdegi Alþingis eftir jólahlé, þann 27. janúar, lagði ég fram svofellda fsp. til hæstv. fjmrh. og hæstv. menntmrh.:
„Hvernig ætla stjórnvöld að koma til móts við kröfur Kennarasambands Íslands
a. um jöfnun launa kennara án tillits til þess í hvaða stéttarfélagi þeir eru,
b. um fullan samnings- og verkfallsrétt til handa Kennarasambandi Íslands,
c. um lögverndun á starfsheiti og starfsréttindum kennara?"
Ég vænti þess, herra forseti, um leið og ég þakka fyrir að sérstakur fundur skuli vera haldinn hér í Sþ. til að ræða þessa fsp. að á þessum fundi fáist loks skýr svör frá hæstv. ráðh. varðandi þessi hagsmunamál kennara sem varða ekki síður nemendur í skólum landsins, foreldra þeirra og raunar þjóðina í heild.