17.02.1986
Efri deild: 48. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2570 í B-deild Alþingistíðinda. (2155)
258. mál, Þjóðskjalasafn Íslands
Davíð Aðalsteinsson:
Virðulegi forseti. Aðeins örfá orð. Ég get fyrir það fyrsta fallist á þá skoðun flm. þessa frv. að umrædd ákvæði, sem nú eru í lögum um Þjóðskjalasafn Íslands, eigi fremur heima í útvarpslögum. Hins vegar er grunur minn sá að ástæðan fyrir því að þessi ákvæði voru sett þar á sínum tíma hafi ekki síst verið til þess að tryggja á lagagrunni að um yrði að ræða samstarf Ríkisútvarpsins og þjóðskjalavarðar. Nú er ég ekki þar með að segja að slíkt samstarf mundi ekki verða enda þótt slíkum ákvæðum væri ekki til að dreifa. Sú breyting eða tilfærsla, ef ég má svo að orði komast, sem hér er gerð er breyting að nokkru öðru leyti að mínum dómi.
Í 4. gr. frv. á þskj. 488, sem er frv. til laga um breytingu á útvarpslögum og hefur verið rætt hér, er hið nýja ákvæði, það ákvæði sem fært hefur verið til. Þar er ekki gert ráð fyrir samráði við þjóðskjalavörð enda þótt augljóst sé af lögum um Þjóðskjalasafn Íslands að frumkvæði Þjóðskjalasafnsins er ævinlega til að dreifa þegar um er að ræða varðveislu og söfnun efnis og skil á því frá skilaskyldum aðilum. Ekki einasta það, heldur líka eftirlit Þjóðskjalasafns Íslands vegna ónýtingar efnis fyrir fullt og fast. Ég tel að þrátt fyrir þessa augljósu frumkvæðisskyldu þjóðskjalavarðar og Þjóðskjalasafnsins sé eðlilegt að þegar reglur verða samdar um frambúðarvarðveislu dagskrárefnis Ríkisútvarpsins, þá verði slíkar reglur samdar í samráði við þjóðskjalavörð. Ég held að það geti að vissu leyti einfaldað alla framkvæmd þessa máls.
Vík ég þá að 2. tölul. 4. gr. laganna um Þjóðskjalasafnið, en þar stendur, með leyfi forseta:
„Hlutverki sínu skal Þjóðskjalasafn m.a. gegna á þann hátt að:
2. líta eftir skjalasöfnum afhendingarskyldra aðila, láta þeim í té ráðgjöf, gefa út leiðbeiningar um skjalavörslu og tölvuskráningu og ákveða ónýtingu skjala sem ekki er talin ástæða til að varðveita til frambúðar.“
7. gr. umræddra laga hljóðar þannig, með leyfi forseta:
„Afhendingarskyldum aðilum er óheimilt að ónýta nokkurt skjal í skjalasöfnum sínum nema heimild Þjóðskjalasafns komi til eða samkvæmt sérstökum reglum sem settar verða um ónýtingu skjala.“
Ég hef tekið það fram, og vil endurtaka raunar, að ég tel eðlilegt að þegar reglur verða samdar um þetta efni af hálfu Ríkisútvarpsins, útvarpsstjóra, útvarpsráðs, þá verði jafnframt ákveðinn lagagrunnur í samráði við þjóðskjalavörð.