17.02.1986
Efri deild: 48. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2575 í B-deild Alþingistíðinda. (2159)
271. mál, fjarnám ríkisins
Helgi Seljan:
Virðulegi forseti. Það kemur auðvitað oft fyrir í þessari hv. deild að okkur detti í hug að það sé ekki vansalaust að við skulum ekki eiga víðtæka og almenna löggjöf um fullorðinsfræðslu og endurmenntun, sérstaklega í samhengi við það að við höfum fengið hér inn í þessa deild oftar en einu sinni lagabálka, kannske fulllanga lagabálka um hvernig fara ætti með fullorðinsfræðslu í landinu og með það mörgum fylgiskjölum að menn hafa jafnvel ekki treyst sér til að lesa allt saman yfir í önnum daganna. Hér er hins vegar komið inn á ákveðna þætti þessa með beinum og ákveðnum hætti. Þar er eflaust ýmislegt sem þyrfti að koma til athugunar varðandi framkvæmd alla, en ég lýsi því yfir að mér þykir hér um mjög athyglisverða leið að ræða sem ég held að sé verð allrar athugunar, mjög athyglisverða leið. Það er ekki vansalaust fyrir okkur, eins og ég sagði áðan, úr því að við höfum ekki þá víðtæku löggjöf sem við þyrftum vissulega að hafa, að standa að málum eins og við gerum í dag.
Það má kannske segja að meðan við höfum ekki einu sinni komið okkur í það verkefni að byggja upp framhaldsskólalöggjöfina sé eðlilegt að þetta sitji einnig eftir, en nú sé ég að hæstv. menntmrh. hefur ákveðið að taka á sig rögg - kannske er það ekki rétt orðað vegna þess að hann er nýkominn í embætti - eða taka til hendi varðandi það vanrækta verkefni að koma á ákveðinni framhaldsskólalöggjöf sem allra fyrst og hefur sett í það nefnd sem einmitt einn af hv. deildarmönnum hér stýrir og ég býst við að muni skila árangri og vona svo sannarlega að geri það sem allra fyrst, enda kannske fátt annað þar eftir til ágreinings en kostnaðarhlutdeild, annars vegar ríkis og hins vegar sveitarfélaganna, varðandi það nám allt.
Ég skal ekki vera að tefja tímann varðandi þetta mál sem mér sýnist hið athyglisverðasta, skýrt framsett, einfalt og ætti þar af leiðandi ekki að vefjast fyrir mönnum því að vissulega þurfum við að nýta alla möguleika til að koma ákveðinni fræðslu, ákveðinni starfsmenntun, ákveðinni endurmenntun til þess fólks sem vill en getur ekki og á í erfiðleikum með að nýta sér það.
Hér hafa verkalýðssamtökin farið inn á athyglisverðar tilraunir í þessu efni með sínum skóla sem vissulega ber að meta og er kannske, fyrir utan almenna bréfaskóla, námsflokka og annað því um líkt, eina alvarlega tilraunin sem hefur verið gerð til þess arna, en um leið mjög merkileg vegna þess að þar hefur verið um það að ræða að ófaglært fólk með öllu og fólk sem hefur hlotið litla skólagöngu hefur einmitt nýtt sér skóla verkalýðssamtakanna þó að það hafi reyndar verið miklu meira í námskeiðaformi að því er ég best veit, en hér inni situr nú einmitt sá maður sem kannske veit einna mest um þann skóla og þarf ég því ekki að skýra nánar í hverju það nám er fólgið, en vissulega hef ég orðið var við marga sem þaðan hafa komið sem hafa talið sig græða virkilega á námskeiðahaldi því sem MFA hefur staðið fyrir.
Ég legg líka áherslu á það sem hv. flm. kom inn á varðandi það að hér þarf að jafna aðstöðu fólksins sem vill en getur ekki, vill en hefur ekki til þess aðstöðu. Það fólk sem vinnur nú myrkranna á milli vill jafnvel leggja það á sig, ef aðstaðan er fyrir hendi, að nema jafnhliða þessum þrældómi, nema eitthvað, bæði til að gera sig færari um að sinna sínu starfi og ekki síður til að auðga anda sinn í þeirra orða bestu merkingu.
Ég styð það að þetta mál fái vandlega athugun. Það er ekki svo flókið eða viðamikið þó það geti orðið býsna víðfeðmt, það sé ég náttúrlega þegar, að menn ættu ekki að geta nokkurn veginn skammlaust tekið afstöðu til þess hvort þeir væru með því eða móti.