17.02.1986
Efri deild: 48. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2576 í B-deild Alþingistíðinda. (2160)

271. mál, fjarnám ríkisins

Karl Steinar Guðnason:

Virðulegi forseti. Frv. til laga um fjarnám ríkisins er nýjung sem vert er að gefa mikinn gaum. Reyndar er það svo að hingað í Alþingi koma frv. sem fjalla um menntun, frv. sem eru, eins og hv. síðasti ræðumaður sagði, miklir lagabálkar og ýmsum hugmyndum varpað fram. En ég tel að ýmislegt er lýtur að almennri fræðslu í landinu sé í skötulíki, eins og hæstv. menntmrh. orðar það oft, og það þurfi betra skipulag á ýmsar greinar.

Ég minni á það, eins og reyndar kom fram hjá hv. flm., að ýmislegt er í gangi í þessum efnum. Minntist hún á Bréfaskóla SÍS sem reyndar er bréfaskóli Alþýðusambandsins einnig. Þess ber að geta einnig, sem kom fram hjá síðasta ræðumanni, að viðamikil fræðsla fer fram í verkalýðssamtökunum um félagsleg málefni, málefni kjarasamninga, málefni vinnumarkaðarins, og ýmiss konar námskeið og námsefni er víða að finna í þjóðfélaginu án þess að fyrir því sé nokkur löggjöf. En ég minni á að verkalýðssamtökin hafa óskað eftir því að sett verði sérstök lög um Félagsmálaskóla alþýðu sem geri hann styrkari og traustari í sessi. Við höfum trú á því að sú fræðsla sem þar fari fram henti betur en nokkuð annað því fólki sem er þátttakendur í starfi verkalýðssamtakanna og er úti á vinnustöðunum og hefur lokið sinni menntun eða ekki fengið aðra menntun. Ég bendi líka á að auk félagsmálaskólans fer ýmiss konar fræðsla fram víðs vegar um landið.

En það sem ég vildi sérstaklega minnast á, sem um er getið í 6. gr. frv. c-lið, er það sem sagt er um námsefni, námsefni handa ófaglærðu fólki til fræðslu sem skv. kjarasamningum eða ákvörðun stjórnvalda á að vera í boði.

Í fyrsta lagi tel ég að þetta verði að vera í nánu samstarfi við verkalýðssamtökin. Í öðru lagi vil ég minnast á að við Íslendingar erum mjög aftarlega í þessum efnum. Ég fullyrði að nágrannaþjóðir okkar, t.d. Danir, eru komnir mörgum árum á undan okkur í því að fræða það fólk sem er úti á vinnumarkaðnum. Nýlega hélt danska verkalýðshreyfingin upp á 20 ára afmæli laga sem sett voru um starfsfræðslu fólks á vinnumarkaðnum. Þeirrar starfsfræðslu hafði þá notið 1 milljón manna. Sú starfsfræðsla er í því fólgin að kenna fólki vinnubrögð með verkþjálfun og öðru. Það er samdóma álit verkalýðsfélaga og vinnuveitendafélaga að þessi fræðsla hafi komið að miklu gagni dönskum iðnaði, danskri verkkunnáttu og orðið til þess að gefa svigrúm til launahækkunar. Þetta er allt eftir hjá okkur. Við höfum afskaplega stutt farið í þessum efnum.

En einmitt þessa mánuðina er að fæðast nokkuð í svipuðum dúr og þar hefur tíðkast lengi. Þann 15. júní s.l. var gert samkomulag milli aðila vinnumarkaðarins um að koma á námskeiðum fyrir sérhæft fiskvinnslufólk, fiskvinnslufólk sem hefur verið mjög aftarlega á merinni hvað launakjör snertir. Það hefur verið íslensku þjóðinni til skammar hversu lítið hefur verið hugað að þeim málum. Alveg frá því að þetta samkomulag var gert hefur farið fram mikil vinna aðila vinnumarkaðarins, þ.e. Verkamannasambandsins og Vinnuveitendasambandsins, en fyrir nokkru tókst samstarf við sjútvrn. um þessa hluti og ráðuneytið hefur lýst sig boðið og búið til að stuðla að því að af þessu geti orðið.

Þessi fræðsla er hugsuð þannig að námskeið geti átt sér stað víðs vegar um landið og til þess fengnir hæfustu kennarar. Námsefni verði í tíu hlutum sem standi yfir í fjórar klukkustundir hvert svið. Þar er fjallað um hráefni og meðferð þess, líkamsbeitingu, á ljótu máli ergonomía, öryggi á vinnustöðum, hreinlæti og gerlagróður, þjálfun og verkþjálfun, kjarasamninga og lög, launakerfi í fiskvinnslu, vinnslurásir og verkunaraðferðir, afurðir og markaði og mannleg samskipti. Það er meiningin að svona námskeið, sett saman úr tíu þáttum, verði fyrir það fólk sem starfar í fiskvinnslu, starfar í frystingu, saltfiski, skreið og öðru slíku er lýtur að fiskiðnaði. Ég er sannfærður um að reynslan af þessu á eftir að verða svipuð og hefur átt sér stað í Danmörku.

Hugurinn reikar kannske til þess að athuganir hafa verið gerðar á því að framleiðni í fiskiðnaði er mun meiri í Danmörku og ýmislegt er lýtur að betri vinnubrögðum er talið vera á besta vegi í Danmörku. Þeir þakka það þessum skólum, þessari verkþjálfun, þessari þekkingu.

Ég er sannfærður um að verði þetta að veruleika, sem ég tel að verði, verði um að ræða gjörbyltingu í þessum málum á Íslandi. Það er skoðun mín að það eigi ekki að staðnæmast við fiskiðnaðinn einan heldur eigi þetta að gerast líka í iðnaði, reyndar eins og er á Norðurlöndunum, og þetta verði að njóta forustu verkalýðssamtakanna eða aðila vinnumarkaðarins beggja og með stuðningi ríkisins.

Sjútvrn. hefur tekið þessu verkefni mjög vel, en ég minni á að frumkvæðið hefur allt komið frá verkafólkinu sjálfu, ekki að ofan, sem mér þykir merkilegt, enda sýnir það kannske hvernig þessum málum er komið og að það þarf að reka á eftir þessu.

En þessi vinna er í fullum gangi og mun fara af stað núna á næstunni. Við búumst við að þeir sem hafa lokið þessu námi og þessari verkþjálfun fái kaupauka í sinn hlut og fiskiðnaðurinn njóti betri starfskrafta en ella.

Ég minntist á að sjútvrn. væri aðili að þessu, en í frv. er alltaf talað um menntmrn. Það er nokkuð sem þyrfti að skoða, hvaða ráðuneyti eigi að taka þessi mál fyrir, hvort það eigi að vera í einu ráðuneyti, menntmrn., sjútvrn. eða hvað sem það er. Það er mín skoðun að fræðsla er lýtur t.d. að sjávarútvegi eigi að vera í sjútvrn. Sjómannaskólanum eigi t.d. að vera stjórnað þaðan og Fiskvinnsluskólanum. Ég tel að þessi tengsl verði styrkari og betri ef þessi menntunarmál eru sett undir þau ráðuneyti sem fjalla um þau svið almennt. Ég vænti þess að hæstv. menntmrh. segi sína skoðun á því.

Ég hygg að þegar sett verða lög um almenna fræðslu, fullorðinsfræðslu, verði sú reynsla sem Norðurlöndin hafa af fullorðinsfræðslu skoðuð og einkum með tilliti til þess sem er að gerast í starfsfræðslu ófaglærðs fólks. Það fólk þarf ekki endilega að verða sprenglært í íslensku, dönsku og sænsku heldur í vinnubrögðum í því er lýtur að þeim verkefnum sem það á við. Ég er ekki að tala af óvirðingu um tungumálanám, hv. flm. má ekki taka það þannig, en ég á við að það er nokkurs virði að sérhæfa þessa þekkingu og gera fólki kleift að ná þeirri þekkingu sem það þarf á að halda án þess að of mikið verði af aukagreinum ef svo mætti segja.

Ég vildi aðeins minnast á þetta. Ég fagna umræðu sem vissulega kemur til með að verða um þetta frv. og tel það lofsvert frumkvæði að brydda upp á þessu. Ég vildi segja frá því sem er í burðarliðnum hjá verkalýðssamtökunum og því sem er fyrir hendi þar.

Ég tel hins vegar að við þyrftum að huga mun betur að þeirri fullorðinsfræðslu sem fyrir hendi er í hinu almenna skólakerfi. Mér er kunnugt um að t.d. í fjölbrautaskólum, þar sem talað er um að starfræktar séu öldungadeildir, er oft mjög erfitt að fá það nám sem menn vilja vegna þess að hinar ýmsu greinar eru kannske ekki kenndar svo árum skiptir, en það gerir því fólki erfitt fyrir sem ætlar sér að fara í gegnum þetta nám.

Ég tel þörf á því að setja reglur eða lög um fjarnám ríkisins. Um efnisatriði tel ég ástæðulaust að ræða frekar fyrr en ég hef skoðað það frekar, og það gerist náttúrlega í nefndum, en taldi rétt að minna á að ýmislegt er að gerast og ýmislegt verður sjálfsagt á döfinni. Meira er verið að gera en það sem ég hef sagt frá hér. Ég minni á hlutverk Iðntæknistofnunar t.d. sem mætti lúta að því að mennta ófaglært iðnverkafólk, það er hugmyndin að svo verði gert, og jafnvel faglært verkafólk. En það hefur ekkert í því skeð að marki. Það hefur ekki orðið eins ör þróun í því og þyrfti að vera. A.m.k. er það þar eins og í sjávarútveginum að við erum mörgum, mörgum árum á eftir nágrönnum okkar í þessum efnum.