18.02.1986
Sameinað þing: 48. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2590 í B-deild Alþingistíðinda. (2180)
253. mál, norsku- og sænskunám í grunnskóla og framhaldsskóla
Menntmrh. (Sverrir Hermannsson):
Herra forseti. Sem svar við fsp. hv. 11. þm. Reykv. á þskj. 483 vil ég taka fram:
Í upphafi s.l. skólaárs hófst átak til að bæta stöðu þeirra grunnskólanemenda sem kjósa að læra sænsku og norsku í stað dönsku. Fram til þess tíma var nemendum sem þetta kusu aðeins boðin kennsla í Námsflokkunum, en í haust var hafin kennsla í norsku í fjórum grunnskólum í Reykjavík og í sænsku í átta skólum í borginni. Nemendur í skólum þar sem ekki er boðið upp á kennslu í þessum tungumálum geta stundað nám í nálægum skóla. Þegar er hafin kennsla í þessum tungumálum í nokkrum skólum í Reykjaneskjördæmi og á Akureyri og nokkrum öðrum stöðum á landinu. Stefnt er að því að fjölga þeim grunnskólum sem kenna sænsku og norsku í upphafi næsta skólaárs. Kennslu fyrir grunnskólanemendur er einnig haldið uppi enn þá í Námsflokkunum, bæði í Reykjavík og á Akureyri, en stefnt er að því að hún flytjist alveg inn í grunnskólana.
47 nemendur eru nú í norskunámi í grunnskólum Reykjavíkur, 29 í skólum í nágrenni Reykjavíkur og 24 á öðrum stöðum. 112 nemendur stunda sænskunám við grunnskóla Reykjavíkur, 46 í Reykjaneskjördæmi og 24 annars staðar á landinu.
Ekki er boðið upp á reglulegt nám í norsku og sænsku í framhaldsskólum, en hent hefur að boðið væri upp á einstaka námsáfanga. Þeir framhaldsskólanemendur sem kjósa umrædd tungumál fremur en dönsku sækja kennslu í þeim til Námsflokkanna.
Ekki eru uppi sérstakar áætlanir um að bæta þessum greinum á námsskrár framhaldsskólanna, en líklegt er að svo verði í framtíðinni ef eftirspurn eftir kennslu í þeim eykst.
Sem svar við síðari lið fsp. vil ég taka fram: Á áætlun Námsgagnastofnunar fyrir árið 1986 er útgáfa námsefnis í norsku og sænsku handa 9. bekk. Sænskunámsefnið hefur þegar verið sett og handrit liggur fyrir að meiri hluta norskunámsefnisins. Áætlaður kostnaður vegna þessarar útgáfu er 1,3 millj. kr.
Skömmu eftir áramótin barst Námsgagnastofnun bréf frá umsjónarkennurum í norsku og sænsku með beiðni um útgáfu námsefnis handa 5.-8. bekk. Ekki verður unnt að sinna þessari útgáfu á yfirstandandi ári, enda tekur gerð námsefnisins tíma og gera má ráð fyrir því að tvö ár hið minnsta líði frá því hafist er handa um slíka námsefnisgerð þar til henni er lokið.