18.02.1986
Sameinað þing: 48. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2592 í B-deild Alþingistíðinda. (2184)
216. mál, mengunarvarnir í fiskimjölsverksmiðjum
Fyrirspyrjandi (Helgi Seljan):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. svörin. Mér þótti sem greinilegur skilningur væri á nauðsyn þessa máls í máli hans. Ég legg á það áherslu að ég held að það sé full ástæða fyrir ríkisstjórn á hverjum tíma að huga að þessum þætti mála og hlynna að því að þessar mengunarvarnir megi komast á sem allra bestar og ríkisstj. þurfi að hafa visst frumkvæði til þess að ýta á það. Ég efa ekki að það sé rétt að ekki hafi verið sótt á þetta af hálfu þeirra verksmiðja sem hér eiga hlut að máli. Það er nú svo að það er misjafn áhugi manna á þessum mengunarvörnum og mörgum þykja þær reyndar heldur óþarfar og óþarfa kvartanir íbúanna yfir þeim fnyk sem leggur yfir byggðarlögin af völdum þessara verksmiðja. Ég er ekkert hissa á því þó að ekki hafi verið sótt af mikilli hörku á fjármagn í þessu efni. Ég held að frumkvæðið þurfi einmitt að koma frá ekki síst þeim aðila í hæstv. ríkisstj. sem sér um heilbrigðismál því hér er vissulega um heilbrigðis- og umhverfismál að ræða.
Ég vil svo aðeins segja að á síðasta Alþingi var samþykkt einróma þál. sem segir allt sem segja þarf um þær áherslur sem hæstv. ríkisstj. þarf að hafa á þessu máli. Hún var samþykkt 13. júní 1985 og segir þar svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að gera áætlun um varanlegar úrbætur í mengunarmálum fiskimjölsverksmiðja í samvinnu við eigendur og samtök þeirra, svo og yfirvöld heilbrigðismála. Áætlunin miðist við að lágmarkskröfum um mengunarvarnir verði fullnægt í öllum starfandi fiskimjölsverksmiðjum og feli jafnframt í sér mat á fjárþörf og þeim tíma sem slíkar aðgerðir tækju. Verði í senn haft í huga ytra og innra umhverfi verksmiðjanna og lögð áhersla á bætta nýtingu hráefnis og orkusparnað ásamt viðhlítandi mengunarvörnum.“
Ég held að ég þurfi ekki að segja neitt frekar um þetta. Ég held að þarna sé skýrt ákveðið af hálfu Alþingis að hæstv. ríkisstj. eigi að gera áætlun af þessu tagi og það er bent á það einnig, og var bent á í rökstuðningi með þessari till. á sínum tíma, sem var samþykkt sem ályktun Alþingis, að hér væri ekki einvörðungu um kostnað að ræða heldur virkilegan orkusparnað og um leið mjög bætta nýtingu hráefnisins. Ef menn hugsuðu stórt og hugsuðu svolítið fram í þessum efnum er öruggt mál að þetta er fjárfesting af því tagi sem borgar sig í beinhörðum peningum bæði fyrir verksmiðjurnar og þjóðarbúið í heild.