18.02.1986
Sameinað þing: 48. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2594 í B-deild Alþingistíðinda. (2187)

220. mál, útflutningur á ferskum fiski

Helgi Seljan:

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. svörin. Þau voru skýr í upphafi. Eitt orð nægði hæstv. ráðh. Síðan kom hæstv. ráðh. inn á að hann vildi draga m.a. úr útflutningi gámafisks, taldi fulla ástæðu til að gera ráðstafanir til þess að þar yrði ekki um of mikinn útflutning að ræða. Hins vegar yrðum við að sinna vel öllum okkar mörkuðum. Ég tek vissulega undir að á því er full nauðsyn. En ég hlýt að vekja athygli á því, um leið og hæstv. ráðh. eru þökkuð svörin, að einmitt orðaskipti hæstv. viðskrh. og hv. fyrirspyrjanda Sighvats Björgvinssonar urðu til að hreyfa þessari fsp. þar sem svo alfarið var vísað af hæstv. viðskrh. á hæstv. sjútvrh. í þessu efni um það til hvaða ráða hann vildi grípa.

Í skriflegu svari við fsp. frá okkur Sighvati Björgvinssyni kom einmitt fram sú mikla aukning sem hefur orðið á útflutningi fersks fisks, alveg sérstaklega gámaútflutningnum, og þar á meðal horfur á að um 60 þús. tonn af ferskum fiski yrðu þannig flutt út á þessu ári og m.a. hluti til verkunar í fiskverkunarstöðvum erlendis. Það er fullljóst. Þróunin í heild sinni í þessari atvinnugrein er vitanlega ískyggileg. Á vissum stöðum er öryggisleysi og atvinnuleysi fiskverkunarfólks. Annars staðar er flótti vegna kjara og vinnuálags úr þessari atvinnugrein. Síðan kemur útflutningur sem er gefinn upp með ákveðnum verðmismun sem komið var inn á í umræðunum þá af hv. 4. þm. Vesturl. að væri ekki allur sem sýndist og sá gróði sem af þessum útflutningi væri væri ekki sá sem hann sýndist vera í fljótu bragði og væri gefinn upp og tíundaður mjög rækilega.

Ég ætla ekki að fara út í almenna sjávarútvegsumræðu í þessum stutta fyrirspurnatíma hér, en þessi gífurlega ásókn í sölu á fiski erlendis sýnir kannske betur en annað hver staða fiskvinnslunnar í heild sinni í þessu landi er.