18.02.1986
Sameinað þing: 48. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2599 í B-deild Alþingistíðinda. (2193)

249. mál, afurðalán skreiðarframleiðenda

Fyrirspyrjandi (Karl Steinar Guðnason):

Herra forseti. Ég hef leyft mér á þskj. 479 að flytja svohljóðandi fsp.:

„Hvað líður framkvæmd og afgreiðslu á yfirtöku eða ábyrgð skv. 29. gr. lánsfjárlaga fyrir árið 1985 á afurðalánum allt að 250 millj. kr. sem veitt hafa verið skreiðarframleiðendum vegna óseldra skreiðarbirgða í árslok 1984?"

Tilefni þess að ég spyr um þetta er það að skreiðarverkendur hafa mjög kvartað yfir því hversu seint hafi gengið að afgreiða þessa hluti. Ég minni á að lánsfjáráætlun 1985 gerir ráð fyrir þessu. Hreyfing mun engin hafa átt sér stað á árinu 1985 í þessa veru, en ég hef frétt af því að eitthvað hafi skeð núna síðustu vikurnar árið 1986.

Ég minni á að skreiðarverkendur hafa átt mjög erfitt uppdráttar vegna mjög mikilla óseldra birgða sem menn hafa legið með í mörg ár sumir hverjir og auðvitað er heimildin í lánsfjárlögum til komin vegna þessara erfiðleika. Skreiðin er enn óseld þrátt fyrir einhverjar vonir um úrbætur, en ég óska eftir því að fá upplýsingar um það hvernig að þessum málum hefur verið staðið, hvort og hvernig og þá líka hvort allir sem ættu að fá þessa fyrirgreiðslu hafi fengið hana. Ég hef grun um að svo sé ekki og að mikill ruglingur sé á þessum málum ef ég má nota það orð. En ég óska svars.