29.10.1985
Sameinað þing: 8. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 273 í B-deild Alþingistíðinda. (220)

51. mál, Sjóefnavinnslan á Reykjanesi

Fyrirspyrjandi (Kjartan Jóhannsson):

Herra forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. ráðherra svörin. Það eru ánægjuleg tíðindi ef menn hafa fundið nýtt nýtingarsvið fyrir háhitann, þar sem er kolsýruframleiðslan, og vonandi verður það til þess að renna frekari stoðum undir þetta fyrirtæki.

Ég tek undir það með ráðherra - og sagði það reyndar þegar lögin um Sjóefnavinnsluna voru sett - að við verðum að líta á þetta fyrirtæki sem tilraun. Sjálfsagt er það rétt, sem kom fram hjá ráðherra, að við höfum varið hundruðum milljóna til þess að rannsaka háhita en tiltölulega lágum fjárhæðum til að reyna í alvöru að finna leiðir til að nýta þennan háhita.

Hins vegar saknaði ég þess í svörum ráðherra að rekstraráætlanir væru gerðar. Þær tölur sem nefndar voru um eignir og skuldir voru meira og minna misvísandi vegna þess að allt var talið til eigna sem einhvern tíma hafði verið kostnaður. Þær gefa þess vegna mjög takmarkaða mynd af stöðu verksmiðjunnar. Við vitum ekki hversu mikils virði ýmislegt það er sem menn hafa tekið sér fyrir hendur. Sumt af því er áreiðanlega einskis virði þannig að eignarstaða metin á þann hátt gefur ekki rétta mynd.

Ég ætlast líka til þess af stjórnendum fyrirtækisins að þeir hafi til reiðu rekstraráætlanir í tölum um sölumagn, um heildartekjur og helstu kostnaðarliði fyrir næsta ár, en um það var einmitt spurt í fsp. minni. Því var engu svarað af hálfu ráðherrans, væntanlega vegna þess að stjórnendur fyrirtækisins hafa ekki gert slíka áætlun.

Hæstv. ráðh. sagði að þetta væri ekki eiginlegur rekstur, en það er rangt. Þetta er jafnframt rekstur og Alþingi á kröfu á að fá að vita hvernig miðar í þeim efnum og hvernig afkoman hefur verið. Um hvort tveggja var spurt, en því var ekki svarað.

Þegar ég minnist á að ekki megi telja allan kostnað til eignar, eins og hér er verið að gera, minnir það á að einmitt í framkvæmdum af þessu tagi eiga menn ekki að ástunda lántökur heldur leggja fram fé vegna þess að hér er um áhættufyrirtæki að ræða og varasamt er í slíkum tilvikum að byggja það að verulegu leyti á lánsfé. Til rannsókna, sem við vitum ekki hvern árangur bera, á langtum frekar að verja beinum framlögum en standa í lántökum.

Ég vil þakka ráðherra fyrir þetta svar og vænti þess að fljótlega geti hann gefið upplýsingar um ýmis þau atriði sem hér var um spurt en engin svör fengust við, hvorki tangur né tetur.