18.02.1986
Sameinað þing: 49. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2611 í B-deild Alþingistíðinda. (2220)

Um þingsköp

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Hv. 3. þm. Reykv. lagði svo út orð forseta áðan þegar hann nefndi vafningalaust að það þýddi að menn gætu undir öllum kringumstæðum farið í utandagskrárumræður. Þetta er misskilningur. Forseti verður að meta hvað á að skoða svo þýðingarmikið að réttlæti að það sé farið í umræður vafningalaust. Það er rétt að þetta sé tekið fram þannig að enginn vafi leiki á í þessu efni.

Ég vænti að það sé ekki ástæða af hálfu forseta að vera að ræða frekar um þingsköp. En ég vildi vekja athygli á þeirri beiðni um skýrslu frá hæstv. landbrh. sem hér hefur verið rætt um og biðja menn að athuga hve víðtæk sú skýrsla er. Það er allt annað en það takmarkaða umræðuefni sem hér er um að ræða og gert er ráð fyrir í utandagskrárumræðum.