18.02.1986
Sameinað þing: 49. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2613 í B-deild Alþingistíðinda. (2226)
Búmark í mjólkurframleiðslu
Árni Johnsen:
Herra forseti. Fundur 600 sunnlenskra bænda, haldinn í gærkvöld í Njálsbúð í Rangárvallasýslu, lýsti yfir miklum áhyggjum vegna stöðu mála í framleiðslu mjólkur. Sú staða er svo alvarleg að það getur skipt sköpum fyrir afkomu þúsunda fjölskyldna í landinu. Menn eru almennt sammála um að skerðing þyrfti að koma til að ákveðnu marki, en skerðingin varð í raun mun meiri en um hafði verið talað, varð 12-14% í stað 6-7% eins og vilyrði höfðu verið gefin um og skerðingin er allt upp í 18-20%. Erfitt er að finna algilt réttlæti í þessum efnum, en það er ljóst að margir annmarkar eru á framkvæmd þessari og ákvörðun þar sem seinagangur er með eindæmum.
Höfuðmeinið í þessari stöðu er það að ekki lá ljóst fyrir í haust hver skerðingin yrði, en það hefur nú dregist í fimm mánuði hjá landbrn. að afgreiða málið þannig að bændur gætu hagrætt sínu starfi eins og kostur var. Nú þegar framleiðsluárið er nær hálfnað fá menn að vita sannleikann sem kippir fótunum undan öllu eðlilegu starfi bóndans sem þarf að gæta ýtrustu hagsýni til þess að reksturinn geti talist viðunandi.
Það er ljóst að miklir meinbugir eru á reglunum sem við er miðað. T.d. er komið aftan að mönnum með því að framleiðsla síðasta árs vegi svo þungt í búmarkinu sem raun ber vitni. Það kom fram í viðtali við hv. þm. Pálma Jónsson í Morgunblaðinu s.l. sunnudag að með þessu móti er þeim refsað sem reynt hafa að minnka framleiðslu á skynsamlegan hátt, en hinum er hampað. Jafnframt þýðir þetta að óbreyttu að verið er að þurrka út búmarksrétt einstakra jarða sem bændur hafa treyst á að ekki yrði af þeim tekinn, jafnvel þótt þeir noti ekki þann rétt til hins ýtrasta af ýmsum ástæðum.
Það var þungt hljóðið í sunnlenskum bændum í Njálsbúð í nótt og ekki að undra því að ekki skrúfa menn svo augljóslega fyrir kýrnar. Margir bændur eru því í sjálfheldu.
Á fundinum í Njálsbúð kom fram m.a. að bændur telja að til þess að unnt sé að vinna sig út úr þessum vanda þurfi að koma til lækkun útsöluverðs með auknum niðurgreiðslum og lengri aðlögunartími að búmarksbreytingu, 1-11/2 ár. Þá kom fram það sjónarmið að bændur skyldu draga úr kjarnfóðurnotkun.
Einnig vil ég leggja sérstaka áherslu á aðstoð við bændur, aðallega yngri menn sem hafa staðið í nýbyggingum út á auknar framleiðsluheimildir á undanförnum árum. Með þeirri skerðingu sem átt hefur sér stað í þeim efnum eru tekjurnar teknar af mönnum, en þeir skildir eftir með skuldirnar. Um slíkt má nota stór orð þegar menn eru þannig leiddir í gapastokk. Það er ljóst að stokka þarf spilin á ný fyrir framtíðina. Landbúnaður er atvinnugrein sem á mikla framtíð fyrir sér ef við sinnum af festu öllum þáttum sem þörf er á og þá sérstaklega markaðs- og söluþættinum.
Þá er ljóst að hlutur afkastamesta mjólkurframleiðslusvæðis landsins, Suðurlands, er fyrir borð borinn með framkvæmd búmarksins, sérstaklega með tilliti til þess að öll viðmiðunartímabilin þrjú voru mjög óhagstæð sunnlenskum bændum vegna illviðris. Fyrir utan verulegt tap á framleiðslurétti af þessum sökum er nú hálfrar milljón lítra skerðing á sunnlenskum bændum í framleiðslu umfram aðra.
Bændafundurinn í Njálsbúð er líklega sá fjölmennasti sem sögur fara af á landinu og hann lýsti fullri ábyrgð á hendur hæstv. landbrh. á því ófremdarástandi sem framleiðslustjórnunin er komin í. Það eru þungar ásakanir, en undirstrika aðeins að í þessu sem öðru er lýtur að stjórnun verða menn að þora að taka af skarið og það á réttum tíma. Bændur máttu reikna með skerðingu því um það höfðu samtök bænda samið, en skerðingin verður mun meiri en reiknað hafði verið með og kemur allt of seint fram, svo seint að ill- eða óframkvæmanlegt virðist að standa við það sem til er ætlast. Hvað hyggst hæstv. landbrh. gera í stöðunni?