18.02.1986
Sameinað þing: 49. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2620 í B-deild Alþingistíðinda. (2234)

Búmark í mjólkurframleiðslu

Egill Jónsson:

Herra forseti. Af því að borist hefur inn í þessa umræðu hvað við sjálfstæðismenn ættum í þessari lagagerð er kannske vert að rifja upp að það fyrsta sem kom fram og ég veit um í sambandi við sérstakan samning um búvöruframleiðsluna, sem væri ríkistryggður, kom fram í tillögu sem Pálmi Jónsson var 1. flm. að og flutti ásamt 14 þm. Sjálfstfl. árið 1979. Það fyrsta sem ég sá í sambandi við svæðabúmark var í till. sem ég flutti ásamt 19 þm. Sjálfstfl. árið 1980. Við þurfum þess vegna ekki að sverja neitt af okkur hér.

Það er vandalítið að tala hér með sama hætti og Alþb. gerir. En málið er að því leyti einfalt að framleiðslurétturinn sem bændur hafa núna í höndunum er upp á 143 millj. lítra. (Gripið fram í: Höfðu í höndunum.) Þeir hafa þann framleiðslurétt samkvæmt kvótakerfinu. Það væri gaman að fá vitneskju um það hjá Alþb. hvort þeir telja eðlilegt að heimila bændum að nýta sér þennan framleiðslurétt. Ef menn komast að því að það beri ekki að viðhafa það verður vitanlega að skerða hann. Þá væri líka eðlilegt að Alþb. segði frá því hvaða aðferðum það vill beita við að færa þennan framleiðslurétt niður. Þá væri líka afar mikilvægt ef Alþb. segði frá því hér hvað það vildi fara langt niður með þennan framleiðslurétt. Skerðingin er nefnilega rétt um það bil 7% frá viðmiðunarárunum. Viðmiðunarárin eru þrjú af fimm hæstu framleiðsluárum sem verið hafa á Íslandi í mjólkurframleiðslu. Samningurinn sem var gerður á s.l. hausti er nákvæmlega um sömu framleiðslu og hefur verið að meðaltali sjö síðustu ár. Þetta þarf Sjálfstfl. ekki að fyrirverða sig fyrir.

Það er svo annað mál að mikið vandaverk er að skipta þessari framleiðslu og það er bagalegt að þær þrjár stóru ákvarðanir sem löggjöfin byggir á í þessum efnum, þ.e. samningurinn, svæðabúmarkið og staðgreiðslan, skyldu ekki birtast samtímis. En það eru jafnverðmætar ákvarðanir fyrir því. Ég er alveg sannfærður um það og reyndar veit það, m.a. vegna vinnu sem hefur verið unnin í einu búnaðarsambandi á Íslandi, í Austurlandskjördæmi, kjördæmi Helga Seljans og Hjörleifs Guttormssonar, og er ég ekkert hræddur við að tala við þá heiðursmenn um málefni bænda. Þetta sýnir að það er hægt með góðum vilja að ná fram bærilegri niðurstöðu í þessum málum.