18.02.1986
Sameinað þing: 49. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2622 í B-deild Alþingistíðinda. (2239)

Búmark í mjólkurframleiðslu

Páll Pétursson:

Herra forseti. Það er ekki rétt hjá hv. þm. Steingrími Sigfússyni að ég þurfi neitt að vera að þvo hendur mínar hér. Mínar eru hreinar. Það er hins vegar einfalt að hafa veruleg áhrif, hv. þm., á mjólkurmagn úr kúm með kjarnfóðurgjöf svo að það er óþarfi að ætla landbrh. að hnýta fyrir spenana.

Það er rétt að það er seint í rassinn gripið með þennan samdrátt. Það var löngu tímabært að setja lög. Fyrrv. hæstv. landbrh. Halldór E. Sigurðsson reyndi í sinni ráðherratíð að setja lög 1973 og hefði betur orðið meira ágengt. Fyrrv. hæstv. landbrh. Steingrímur Hermannsson reyndi í sinni landbúnaðarráðherratíð að fá samstöðu um samdrátt og varð talsvert ágengt. Síðan hins vegar kom sorglegt uppihald og af því erum við að súpa seyðið.

Lögin frá því í fyrra voru hins vegar gölluð þótt nauðsyn væri á að setja lög um Framleiðsluráð. Samdráttarstefnan var of hröð og höggið of þungt og þess vegna vildi ég ekki taka ábyrgð á þeim.

Út af ræðu sem 1. þm. Norðurl. v. flutti áðan, þar sem hann afsakaði það af hverju hann hefði ekki komið í verk að setja héraðakvótann, vil ég rifja það upp að hann stóð að setningu brbl. 23. júní 1980. Hann sendi drög að þeim brbl. til Framleiðsluráðs sem svaraði þeim bréflega 9. júní 1980 og þar segir m.a.:

„Framleiðsluráð landbúnaðarins telur tillögur þessar stefna í rétta átt við lausn þeirra vandamála er við blasa á þessu ári. Það telur þó að betur fari á að orða 1. gr. lagafrv. svo:

Réttur þeirra, sem draga úr búvöruframleiðslu sinni eða hætta búskap, skal tryggður með ákvæðum í reglugerð. Enn fremur skal í reglugerð kveðið á um rétt frumbýlinga, skiptingu framleiðsluréttar á jörð ef stofnað er til fleirbýlis og hvernig réttur endurbyggðra eyðijarða verði ákveðinn. Þá skal einnig heimilt að ákveða sérstök frávik frá skerðingarmörkum fyrir þá bændur, sem hafa mikinn kostnað af nýlegum fjárfestingum, innan þeirra stærðarmarka sem lánað hefur verið til úr Stofnlánadeild landbúnaðarins.“

Því miður komst þetta aldrei inn í brbl. nema að litlu leyti. M.a. þess vegna erum við að súpa það seyði sem við erum að súpa í dag.