18.02.1986
Sameinað þing: 49. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2628 í B-deild Alþingistíðinda. (2247)

Búmark í mjólkurframleiðslu

Garðar Sigurðsson:

Herra forseti. Menn eru orðnir svo æstir, það liggur við slagsmálum. Ég veit að hæstv. forseti fagnar því að fá einn rólyndan mann í stólinn svona til tilbreytingar. En þegar menn æsa sig upp, jafnvel bestu bændur úr Landeyjum, er hætt við að menn verði ekki nógu nákvæmir. Nákvæmni er hins vegar æskileg. Hann sagði að niðurgreiðslur hefðu verið dregnar saman í stjórnartíð Alþb. Það er óskaplega rangt. Ég get sagt hv. þm. Eggert Haukdal að t.d. 1982 eru niðurgreiðslur meira en tvöfalt hærri en nú. Nú eru þær 870 millj. kr. en voru þá meira en tvöfalt hærri. Ef niðurgreiðslustigið væri það sama nú og 1982 væri kindakjötið 31% dýrara en nú, og mjólkin er núna 43% dýrari en hún gæti verið við sömu niðurgreiðslu og smjörið 51% dýrara. Þetta er staðreyndin.

Það sem stóð upp úr nær öllum sem voru á þessum mikla bændafundi og skemmtilega í gær var að það hefði verið stjórnleysi í þessum málaflokki til margra ára og ég held að allir hljóti að sjá að það er rétt. Það var líka sagt á þessum fundi af ábyrgum mönnum og merkum bændum að það hefði verið látið reka á reiðanum í þessum málaflokki. Þetta eru þung orð en ég tek mikið mark á þessum merku bændahöfðingjum í mínu kjördæmi.

Hvernig ætli það hefði líkað ef hæstv. ráðherra Halldór Ásgrímsson hefði verið að grauta í kvótagerð frá því í janúar og fram undir Jónsmessu? Það er akkúrat þetta sem gert er í landbrn. Kvótinn er settur þegar verðlagstímabilið er hálfnað. Þannig á maður ekki að vinna. Þá er betra að gera ekki neitt.

Herra forseti, ég hef heyrt bjölluhljóminn, en ég er sannfærður um að enn má éta vandann. Dæmi um það var tekið austur á fundinum í gærkvöldi og sagt: Ef hver maður drekkur 1/4 lítra meira af mjólk á dag þýðir það á ársgrundvelli, eins og orðað var fyrir nokkrum árum, yfir 20 milljónir lítra og vandinn er horfinn.