19.02.1986
Efri deild: 49. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2640 í B-deild Alþingistíðinda. (2256)
228. mál, Seðlabanki Íslands
Forseti (Salome Þorkelsdóttir):
Vegna orða hv. 4. þm. Norðurl. v. um að við höfum ekki mál til að ræða á þessum fundi umfram þetta mál sem nú er til umræðu vil ég taka það fram að það stendur þannig á að hér eru tvö stjfrv. á dagskrá, annað málið og það þriðja. Hæstv. viðskrh., sem hefði mælt hér fyrir öðru dagskrármálinu, er bundinn á fundi í Nd. En hæstv. forsrh., sem hafði gert ráð fyrir að mæla fyrir þriðja dagskrármálinu í dag, frv. um ríkisendurskoðun, er bundinn á fundi en er væntanlegur hingað rétt fyrir kl. 3 og gerir þá ráð fyrir því að geta mælt fyrir því máli. Hér verður því ekki um að ræða að taka upp almenna pólitíska umræðu á þessum fundi heldur bið ég hv. þdm. að halda sig við það mál sem hér er á dagskrá og hafa þetta í huga því að svo gæti farið að það yrði að fresta þessari umræðu ef henni lýkur ekki áður en hæstv. forsrh. kemur. En næstur á mælendaskrá er hv. 8. þm. Reykv.