19.02.1986
Efri deild: 49. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2643 í B-deild Alþingistíðinda. (2259)

228. mál, Seðlabanki Íslands

Stefán Benediktsson:

Herra forseti. Aðeins örstutt vegna orða hv. 4. þm. Austurl. um það að vandamál húsbyggjenda á Íslandi væri verðbólgan. Ég ætla að mótmæla því vegna þess að jafnvel þó að verðbólgan væri sett algerlega niður eru vandamál húsbyggjenda á Íslandi ekki verðbólgan heldur það að þeir hafa ekki laun. Þá vantar þennan þriðjung upp á launin sem þau hafa rýrnað og þessi þriðjungur er það sem hægt er að krefjast af fólki að það noti til að greiða sinn húsnæðiskostnað.