19.02.1986
Neðri deild: 50. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2668 í B-deild Alþingistíðinda. (2270)
275. mál, öryggi á vinnustöðum
Félmrh. (Alexander Stefánsson):
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga sem er 275. mál Alþingis á þskj. 510, um breytingu á lögum nr. 46 frá 28. maí 1980, um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum. Frv. þetta er aðeins tvær greinar:
„1. gr. 5. tölul. bráðabirgðaákvæða laganna orðist svo:
Lög þessi skal endurskoða í samráði við aðila vinnumarkaðarins og stjórn Vinnueftirlits ríkisins eigi síðar en fyrir árslok 1990.
2. gr.: Lög þessi öðlast þegar gildi.“
Ég vil aðeins fara nokkrum orðum um þessi lög sem í gildi eru. Lög um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum voru samþykkt á Alþingi vorið 1980 en tóku gildi hinn 1. jan. 1981. Þau leystu af hólmi lög um öryggisráðstafanir á vinnustöðum frá 1952, en á undan þeim voru í gildi lög um eftirlit með vélum og verksmiðjum frá 1928.
Með hinum nýju lögum var Vinnueftirlit ríkisins sett á laggirnar og tók það við allri starfsemi og aðstöðu Öryggiseftirlits ríkisins og hluta af verkefnum heilbrigðisnefnda auk nýrra verkefna sem lögin kveða á um. Undanþegin lögunum eru siglingamál, loftferðir og algeng heimilisstörf í einkaíbúðum.
Endurskoðun löggjafarinnar má rekja til samkomulags aðila vinnumarkaðarins um aðgerðir í vinnuverndarmálum vorið 1977 sem m.a. fólu í sér að óskað var eftir slíkri endurskoðun við ríkisstjórn Geirs Hallgrímssonar sem þá var við völd. Ríkisstjórnin tók vel í þessar óskir og setti á laggirnar níu manna nefnd til að semja frv. að nýjum lögum og áttu í henni sæti fulltrúar Vinnuveitendasambands Íslands, Vinnumálasambands samvinnufélaganna og Alþýðusambands Íslands auk fulltrúa stjórnvalda.
Frv. um þessi mál var fyrst lagt fram á Alþingi vorið 1979 en náði ekki fram að ganga á því þingi. Það var lagt fram á ný í ársbyrjun 1980 og eftir að þing kom saman að afloknum kosningum í des. 1979 og ný ríkisstjórn hafði verið mynduð.
Frv. var samþykkt með nokkrum breytingum sem lög frá Alþingi í maí 1980 eins og fyrr greindi. Fljótlega eftir samþykkt laganna var sett á laggirnar nefnd til að undirbúa gildistöku þeirra og fara yfir gagnrýni og ábendingar sem fram höfðu komið við umfjöllun um málið á Alþingi. Í þessari nefnd áttu sæti 11 menn, fulltrúar sömu aðila á vinnumarkaði og áður að viðbættum fulltrúum BSRB og Sambands ísl. sveitarfélaga. Fulltrúi heilbr.- og trmrn. tók og sæti í nefndinni. Lauk nefndin störfum í október 1980 og skilaði skýrslu til félmrh. Hún lagði ekki til neinar breytingar á lögunum.
Sú þróun mála, sem lýst er að framan, var í grófum dráttum í samræmi við það sem gerst hafði í nágrannalöndunum. Þar hafði löggjöf um þessi mál víðast verið endurskoðuð og stofnanir, sem annast fræðslu, eftirlit og rannsóknir, verið efldar samtímis því að stóraukin áhersla var lögð á samstarf starfsmanna og stjórnenda fyrirtækja innan vinnustaðanna sjálfra. Vinnuverndarmál höfðu einnig hlotið aukna áherslu í alþjóðasamstarfi sem m.a. kom fram í samþykktum Alþjóðavinnumálastofnunarinnar, ILO, og í gerð sérstakrar samstarfsáætlunar Norðurlandanna um vinnuvernd.
Einnig höfðu nýjar rannsóknir aukið þekkingu manna á áhættuþáttum í starfsumhverfi. Rannsóknir leiddu m.a. í ljós að hin stóraukna notkun ýmiss konar efnasambanda á vinnustöðum gat haft í för með sér alvarlegar afleiðingar fyrir starfsmenn ef ekki voru gerðar nægar varúðarráðstafanir, afleiðingar sem í sumum tilfellum komu ekki í ljós fyrr en eftir margra ára eða jafnvel áratuga snertingu við efnin.
Í samkomulagi aðila vinnumarkaðarins um aðgerðir í vinnuverndarmálum, sem fyrr er getið, var kveðið á um nauðsyn könnunar á ástandi þessara mála. Núverandi ríkisstj. beitti sér fyrir framkvæmd slíkrar könnunar og náði hún til 158 fyrirtækja með rúmlega 8200 starfsmönnum um allt land.
Eins og fyrr sagði tóku lög nr. 46/1980, um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, gildi þann 1. jan. 1981. Fimm ár voru því liðin frá gildistöku þeirra um síðustu áramót. 5. tölul. bráðabirgðaákvæða laganna hljóðar svo: „Lög þessi skal endurskoða í samráði við aðila vinnumarkaðarins og stjórn Vinnueftirlits ríkisins eigi síðar en fimm árum eftir gildistöku þeirra.“
Þann 1. ágúst 1985 skipaði félmrh. að höfðu samráði við stjórn Vinnueftirlitsins nefnd fjögurra manna til að gera tillögur um endurskoðun laganna. Í nefndinni áttu sæti eftirtaldir: Hallgrímur Dalberg ráðuneytisstjóri, sem var formaður, Þórarinn V. Þórarinsson, aðstoðarframkvæmdastjóri VSÍ, Guðjón Jónsson, formaður Málm- og skipasmiðasambands Íslands, og Eyjólfur Sæmundsson, forstjóri Vinnueftirlits ríkisins. Nefndin var skipuð án tilnefninga.
Meginniðurstaða nefndarinnar var sú að ekki væri ástæða til að breyta ákvæðum laganna enn sem komið er og leggur hún til að endurskoðun þeirra verði frestað um fimm ár og 5. tölul. bráðabirgðaákvæðis þeirra breytt í samræmi við það.
Meginástæður þessarar niðurstöðu voru eftirfarandi: Samstaða var í nefndinni um markmið laganna eins og þeim er lýst í 1. gr. þeirra.
Ábyrgt samstarf hefur verið með aðilum vinnumarkaðarins og ríkisvaldinu í stjórn Vinnueftirlits ríkisins um framkvæmd laganna.
Nefndin taldi það stjórnarfarslega fyrirkomulag, sem nú er í þessum málum, heppilegt og leiða til lítillar skörunar við aðra málaflokka. Eðlilegt sé að öll málefni, sem löggjöf fjallar um á sviði aðbúnaðar, hollustuhátta og öryggis á vinnustöðum, myndi sjálfstæðan málaflokk undir sameiginlegri stjórn aðila vinnumarkaðarins og ríkisvaldsins og undir yfirstjórn félmrn. sem fer með málefni vinnumarkaðarins.
Lögin eru mjög viðamikil og óhjákvæmilegt að langan tíma taki að koma þeim til framkvæmda og byggja upp þá starfsemi sem þau gera ráð fyrir. Ekki hefur fengist nægilega löng reynsla af framkvæmd þeirra og sum ákvæði þeirra hafa enn ekki komið til framkvæmda.
Þau vandkvæði og álitamál, sem upp hafa komið frá því lögin tóku gildi, taldi nefndin að unnt væri að leysa við framkvæmd þeirra að mestu leyti.
Nefndin tók saman ítarlega skýrslu um þá reynslu sem fengist hefur af framkvæmd laga nr. 46/1980 fram til þessa og um starfsemi Vinnueftirlits ríkisins og er hana að finna í athugasemdum við þetta frv.
Í þessari skýrslu setur nefndin einnig fram ábendingar um eftirtalin verkefni á sviði vinnuverndar sem hún telur brýnt að vinna að á næstu árum: Varnir gegn heyrnarskemmdum, aðgerðir til að koma í veg fyrir heilsutjón af völdum lífrænna leysiefna, varúðaraðgerðir vegna notkunar eiturefna og hættulegra efna á vinnustöðum, endurbætur á gagnagrunni vinnuverndarstarfsins, aukin starfsemi á vegum iðjufræði og aukin fræðslustarfsemi á sviði vinnuverndar.
Við umfjöllun um lagasetningu á Alþingi kom fram gagnrýni á að lögin skyldu ná til landbúnaðar. Var sett í þau bráðabirgðaákvæði um setningu sérstakrar reglugerðar um framkvæmd laganna í þeirri grein. Slík reglugerð var sett í júní 1981 og skv. henni var sérstök stjórn sett á laggirnar til að annast þessi mál í landbúnaði með aðild Stéttarsambands bænda og Búnaðarfélags Íslands. Mjög gott samstarf hefur tekist í þessari stjórn um framkvæmd eftirlits, fræðslustarfs og aðra fyrirbyggjandi starfsemi.
Herra forseti. Þessi stofnun, Vinnueftirlitið, stendur að öllu leyti undir sér með iðgjöldum sem vinnuveitendur greiða og með tekjum skv. gjaldskrá. Hún fær því enga fjárveitingu úr ríkissjóði á fjárlögum. Ábyrgt samstarf er í stjórn Vinnueftirlitsins við undirbúning reglna sem kveða á um kröfur til vinnuveitenda og starfsmanna um öryggi, hollustuhætti og aðbúnað. Allar slíkar reglur hafa fram til þessa verið afgreiddar með samhljóða samkomulagi og er mikil undirbúningsvinna lögð af mörkum til þess að svo megi takast. Sem dæmi má taka nýjar reglur um hávaðavarnir sem voru fjögur ár í smíðum. Þær miða að því að koma í veg fyrir heyrnarskemmdir en með sem allra hagkvæmustum hætti því að hér er um kostnaðarsamar ráðstafanir að ræða.
Vinnueftirlitið er alls ekki eftirlitsstofnun eingöngu, heldur annast hún einnig umfangsmikið fræðslu- og leiðbeiningarstarf sem miðar að því að gera mönnum kleift að annast þessi mál sem mest innan vinnustaðanna sjálfra í samstarfi vinnuveitenda og starfsmanna. Sem dæmi má taka að nýlega gaf stofnunin út rúmlega 130 bls. handbók um hávaðavarnir til að auðvelda fyrirtækjum úrbætur á því sviði. Vinnueftirlitið annast ýmiss konar bráðnauðsynlegt tæknilegt eftirlit í nútímaþjóðfélagi, svo sem með tækjum sem sprengjuhætta stafar af, svo sem gufukötlum, loftþjöppubúnaði og þrýstihylkjum, lyftubúnaði, fólkslyftum, skíðalyftum, farandvinnuvélum, sprengjuhættu við losun og lestun olíuskipa og vinnu við eldsneytistanka, innflutning og framleiðslu hættulegra véla o.fl.
Eðlilegt er að hér sé um sérstakan málaflokk að ræða vegna hinna sterku stjórnunartengsla við aðila vinnumarkaðarins sem eru forsenda þess að árangur náist og með sem hagkvæmustum hætti. Af sömu ástæðum er rétt að þessi mál falli undir það ráðuneyti sem fer með vinnumarkaðsmál, jafnvel þó sum þeirra málefna, sem um er fjallað, teljist til annarra málaflokka í faglegu tilliti.
Náið og gott samstarf hefur tekist við heilbrrn. og Hollustuvernd ríkisins um þau mál sem krefjast samstarfs þessara aðila. Sérstök ákvæði eru í lögum um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit um samstarfsnefnd forstjóra þessara stofnana sem fara með ýmiss konar eftirlit til að koma í veg fyrir skörun og stuðla að eðlilegu samstarfi. Enn fremur starfar sérstök samstarfsnefnd um framkvæmd eftirlits með eiturefnum og hættulegum efnum. Vinnueftirlitið hefur auk þess samstarf við ýmsar aðrar stofnanir, svo sem Iðntæknistofnun.
Hér er um grundvallarréttindi hins vinnandi manns að ræða. Löggjöfin er í samræmi við viðhorf sem hlotið hafa alþjóðlega viðurkenningu, m.a. í samþykktum ILO. Hvatinn að baki henni er virðing fyrir hinum vinnandi manni sem skapar auðæfi þjóðfélagsins með starfi sínu. Hann á rétt á að njóta sérstakrar verndar gegn slysum og sjúkdómum sem tengjast starfi hans og að honum ber að búa vel á vinnustað. Hann á rétt á að njóta fræðslu um hugsanlegar hættur í vinnuumhverfinu og hann á að geta leitað fulltingis hlutlauss aðila ef hann æskir upplýsinga eða telur á hlut sinn gert í þessum málum.
Vinnuslys þarf að rannsaka gaumgæfilega, bæði í fyrirbyggjandi tilgangi og til að réttur hins slasaða verði ekki fyrir borð borinn. Það er einnig mikilvægt fyrir vinnuveitendur að þessi mál séu í föstum skorðum og þeir geti leitað ráðgjafar hjá stofnun sem hefur reynslu og þekkingu á þessum málum, sem m.a. byggir á rannsókn raunverulegra atvika.
Vinnuslys og atvinnusjúkdómar leiða til truflana á starfsemi og vinnutaps vegna fjarvista. Slæmar vinnuaðstæður geta hæglega leitt til lakari afkasta starfsmanna og óánægju þeirra. Séu þessi mál ekki í föstum farvegi og um þau annast á þann veg að njóti trausts beggja aðila er hætta á óróa á vinnumarkaði sem getur leitt til staðbundinna verkfalla.
Ríkið hefur einnig hagsmuna að gæta í þessum málum. Hér er um fyrirbyggjandi starfsemi að ræða sem miðar að því að fækka slysum og sjúkdómum og auka vellíðan manna á vinnustað. Náist árangur með starfi dregur hann úr kostnaði við heilbrigðisþjónustu og tryggingar og stuðlar að aukinni framleiðni í atvinnulífinu.
Það er lögð á það áhersla af hálfu fulltrúa launþega að a.m.k. fimm ár verði til næstu endurskoðunar svo að ráðrúm gefist til að vinna á næstu árum af fullum krafti að því að koma ýmsum ákvæðum til framkvæmda. Verði tímabilið styttra þarf að fara að huga að endurskoðuninni fljótlega og þá getur orðið erfitt að ná fram framkvæmd á því sem til endurskoðunar er.
Herra forseti. Hér er um mál að ræða sem hefur þá sérstöðu að algert samstarf er um það meðal aðila vinnumarkaðarins. Ég sé ekki ástæðu til að ræða meira um þetta að sinni en legg til að að lokinni þessari umræðu verði málinu vísað til 2. umr. og hv. félmn.