20.02.1986
Sameinað þing: 50. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2677 í B-deild Alþingistíðinda. (2278)

135. mál, jöfnun orkukostnaðar

Hjörleifur Guttormsson:

Herra forseti. Hér er till. sem er þörf. Þar er gert ráð fyrir að Alþingi feli ríkisstj. að láta nú þegar gera tillögur sem miði að því að jafna orkukostnað landsmanna hvar sem þeir eru búsettir á landinu. Ég flutti á tveim næstliðnum þingum till. um svipað efni, en hún náði ekki fram að ganga. Þar var gert ráð fyrir hnitmiðaðri áætlun og átaki í þessu skyni. En sú till. fékk ekki undirtektir, því miður, og enn er óhæfilegur munur, svo ekki sé sterkara að orði kveðið, milli landsmanna varðandi orkukostnað. Það á bæði við um hitunarkostnað en einnig um raforku til heimilisnota, svo að ekki sé minnst á þann mun sem atvinnutæki í landinu búa við, þau sem starfa að stóriðju svokallaðri m.a. og hins vegar að almennum iðnaði.

Um það mætti margt segja. Ég ætla ekki að orðlengja það hér og nú. Ég vil hins vegar af þessu tilefni, af því að hæstv. iðnrh. er hér viðstaddur og hæstv. fyrrv. iðnrh., nú menntmrh., er einnig hér viðstaddur, inna þá eftir því hvað líði úttekt á orsökum hins háa orkukostnaðar í landinu, úrvinnslu á því máli, en Alþingi samþykkti fyrir alllöngu sérstaka þál. um það efni sem ég held að mig misminni ekki að gert hafi verið ráð fyrir að skilað yrði til síðasta Alþingis, en enn bólar ekkert á þessari úttekt.

Ég skal, herra forseti, endurtaka þessa fsp. af því að hæstv. iðnrh. er kominn í þingsal. Ég var að inna eftir úttekt sem samþykkt var á Alþingi að gerð yrði á orsökum hins háa orkukostnaðar hérlendis með tilliti til orkukostnaðar í grannlöndum okkar. Nú getur væntanlega hæstv. iðnrh. sagt okkur hvað þessari úttekt líði og forveri hans í starfi sem er hér einnig viðstaddur. Ég hygg að þetta hafi verið eitt fyrsta mál þings, ef ekki síðasta þá næstsíðasta Alþingis. Ég vil ekki fullyrða það hér því að ég hef ekki þskj. handa á milli, en ég man að það var gerð sérstök ályktun Alþingis um þetta mál.

Ég vil einnig geta þess að í sambandi við almennan heimilistaxta raforku hefur aukist að undanförnu sá munur sem er á taxta rafveitna úti á landi, sérstaklega Rafmagnsveitna ríkisins, og hins vegar hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur á hinum almenna heimilistaxta og það bætist við þann mikla mun sem er á upphitunarkostnaði.