20.02.1986
Sameinað þing: 50. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2680 í B-deild Alþingistíðinda. (2285)
226. mál, sameining Kennaraháskóla Íslands og Háskóla Íslands
Kristín S. Kvaran:
Hæstv. forseti. Í tengslum við þessa þáltill. langar mig til að geta þess að ég hafði hugsað mér að hreyfa því máli á þessu þingi að leggja til að Fósturskóli Íslands yrði sameinaður Kennaraháskóla Íslands. Að þeirri hugmynd liggja að mörgu leyti sömu rök og tekin eru til í þessari þáltill. um að sameina Kennaraháskóla Íslands Háskóla Íslands. En þar segir í grg., með leyfi hæstv. forseta:
„Þegar Kennaraháskóli Íslands var framhaldsskóli neðan háskólastigs fór framhaldsmenntun kennara á háskólastigi fram í Háskóla Íslands. Eftir að stúdentspróf eða ígildi þess var gert að inntökuskilyrði í Kennaraskólann og Kennaraskóla Íslands hafði verið breytt í Kennaraháskóla Íslands fór kennaramenntun á háskólastigi fram í tveim háskólastofnunum þótt e.t.v. hefði mátt telja eðlilegast að Kennaraháskólinn annaðist alla þá menntun um leið og almennri kennaramenntun var lyft á háskólastig.“
Þessi rök eiga líka við um Fósturskóla Íslands. Þau inntökuskilyrði eru komin í Fósturskóla Íslands að það skuli vera stúdentspróf.
Ég tel einnig gild þau rök sem hér er bent á, með leyfi hæstv. forseta:
„Þannig fengist betri nýting m.a. á starfskröftum, reynslu og þekkingu auk þess sem einhver beinn fjárhagslegur sparnaður hlýtur óhjákvæmilega að verða þegar tvöfalt stjórnkerfi er einfaldað eins og verða mun þegar þessar tvær sjálfstæðu skólastofnanir verða sameinaðar undir eina yfirstjórn.“
Ég bendi á að í Fósturskóla Íslands, Kennaraháskóla Íslands og Háskóla Íslands fer fram kennsla í uppeldisfræðum og sálarfræði. Í Háskólanum, Kennaraháskólanum og Fósturskólanum fer einnig fram að hluta til kennsla í félagstræði og félagsráðgjöf. Það er verið að kenna þessar greinar allar á þremur stöðum á sama stigi, jafnvel oft með öllum sömu kennurum. Enn fremur er um að ræða að námskeið eru haldin í endurmenntunarskyni á öllum stöðunum með sömu kennurum.
Ég mundi telja að mjög mikil hagræðing gæti orðið að því að uppeldis- og kennaramenntun væri öll á sama stigi og að það séu ekki dregin mörk á milli þess þroskastigs sem börnin eru á sem um ræðir að kennt verði eða annast um.