20.02.1986
Sameinað þing: 50. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2692 í B-deild Alþingistíðinda. (2295)
226. mál, sameining Kennaraháskóla Íslands og Háskóla Íslands
Jón Baldvin Hannibalsson:
Herra forseti. Í tilefni af þessum framhaldsumræðum og sérstaklega í tilefni af orðum hv. 9. þm. Reykv. Haralds Ólafssonar áðan er óhjákvæmilegt að beina til hans einni spurningu. Hún er þessi: Telur hv. þm. og háskólakennari að Kennaraháskóli Íslands sé annars flokks háskóli? Rökin eru nefnilega þau að það sé eðlismunur á þessum skóla annars vegar og Háskóla Íslands. Í mínum huga er það svo að kennarar sækja akademískt nám sitt í hinum ýmsu greinum, hvort heldur er stærðfræði, hugvísindi, saga, heimspeki, eðlis- eða efnafræði eða hvað sem er, á akademískum faglegum grundvelli og þeir eiga að gera það í þeirri stofnun sem veitir þessa menntun með sem bestum hætti. Viðbótarmenntun þeirra eða þjálfun sem kennarar er síðan þar fyrir utan og á að veitast þeim sem taka þá ákvörðun að nýta þessa þekkingu sína til kennslu.
Ég skildi ræðu hv. þm. á þá leið að árið 1971 hafi verið tekin ákvörðun um að gera framhaldsskóla að nafninu til að háskóla en þessi kennaraháskóli stæði síðan ekki undir nafni, fullnægði ekki þeim kröfum sem gera bæri til háskóla. Ef þetta er meining hv. þm. verður að taka það skilmerkilega fram því að ef það væri svo skildi ég þau rök sem í ræðu hans voru en ella ekki.
Að því er varðar ræðu hv. þm. Ólafs Þórðarsonar, þá er þessi till. ekki um nýtingu á húsnæði og kemur húsnæðismálum Kennaraháskóla og Háskóla ekkert við.
Umr. (atkvgr.) frestað.