20.02.1986
Sameinað þing: 50. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2696 í B-deild Alþingistíðinda. (2301)
Tölvukaup fyrir grunnskóla
Kjartan Jóhannsson:
Herra forseti. Ég ætla einungis að taka á því sem ég held að sé kjarni þessa máls svo framarlega sem ég hef skilið það rétt.
Hæstv. menntmrh. segir: Ég vil ekki að það verði staðið að neinu fikti fram til 1990 því að þá tekur við ný öld og allt verður betra og þess vegna ætla ég ekki að hafa áhrif á þessa þróun. Ég ætla ekki að beita mér nema með þeim hætti sem ég hef þegar beitt mér, að menn skuli ekki leggja sig í þessi tölvukaup gegnum mitt ráðuneyti.
Ég held að hér sé grundvallaratriði til skoðunar. Ég held nefnilega að hæstv. menntmrh. muni ekki stöðva þróunina með þessum hætti. Ég held að krafan frá nemendum, frá foreldrum, frá þjóðfélaginu sjálfu muni verða jafnrík eftir sem áður um að það fari fram menntun í þessum greinum. Ef ráðherra tekur þá afstöðu sem hann hefur tekið og heldur sig við hana held ég að hann sé einungis að fórna því að geta haft einhver áhrif á þróunina, þróunin muni hafa sinn gang, þetta verði kennt, tölvurnar verði keyptar og þar fram eftir götunum, en menntmrn. hafi afsalað sér möguleikanum til að hafa þar einhver áhrif eða að stuðla að hagkvæmni á þessu sviði. Þess vegna vil ég beina því til hæstv. menntmrh. að hann hugleiði þetta mál betur.
Ég er nú svo gamall sem á grönum má sjá í tölvumálum. Ég var reyndar með þeim fyrstu á Íslandi sem tileinkuðu sér þessa tækni. Það var áður en menn gátu stungið apparötunum í vasann eða haft þau með sér í lítilli ferðatösku heim til sín. Og auðvitað er ég orðinn úreltur svo að segja. Af minni reynslu er alveg ljóst að þróunin er stöðug og það verða ávallt að koma nýjungar. En það sem hefur breyst er það að nú er komin krafa upp í þjóðfélaginu um að menn fái að kynnast þessari tækni. Þá kröfu getur hæstv. menntmrh. ekki hundsað eða þrýst henni niður. Hann getur engu um það ráðið. Hins vegar getur hann ráðið einhverju um hvernig haldið verður á þessum menntunarmálum og hversu hagkvæm þau eru ef hann beitir sér í þeim efnum. Þess vegna skora ég á hæstv. menntmrh. að skoða þessi mál betur.