30.10.1985
Efri deild: 10. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 286 í B-deild Alþingistíðinda. (231)
73. mál, varnir gegn mengun sjávar
Björn Dagbjartsson:
Virðulegi forseti. Ég vil fyrst fagna því að hæstv. ráðh. hefur séð aumur á okkur og látið okkur hafa nokkuð að starfa hér í deildinni.
Því er ekki að neita að mér hefur oft fundist gálauslega farið með ýmiss konar úrgang sem fleygt er í sjó. Gamla máltækið „lengi tekur sjórinn við“ hefur fyrir löngu breyst í þátíð, lengi tók sjórinn við.
Ég get sagt frá því að ég hef lengi haft áhuga á því að ýmis úrgangur, sem til fellur við fiskveiðar, komi í land. Mér sýnist að með þessum lögum sé að nokkru leyti gert ráð fyrir því. Í 5. gr. er „lýsi“ skilgreint sem allar tegundir feitmetis sem unnið er eða kemur úr sjávarlífverum og enn fremur að losun lýsis í sjó sé óheimil. Með þessu hlýtur að vera átt við slóg úr fiski því að skv. skilgreiningunni er það að sjálfsögðu feitmeti sem kemur úr sjávarlífverum.
Enn fremur er í 7. gr. frv. talað um „sorp“ sem m.a. óvinnsluhæfan rekstrarúrgang. Nú er það svo að þau skip sem einkum hafa rutt sér hér til rúms á síðasta ári og eru greinilega í mestum metum nú eru svokölluð frystiskip og rekstrarúrgangur þeirra er fyrst og fremst fiskbein og fiskúrgangur. Skv. þessari grein sýnist mér að með því móti sé óheimil losun þess úrgangs í sjóinn.
En hvað um það. Ég býst við að þetta geti allt verið til bóta, en vissulega hlýtur þarna að koma til einhver aðlögunartími til breytinga skipa.
Það sem mér sýnist einna helst varhugavert við þetta frv., ef svo má segja, er að það gæti að mínum dómi orðið afskaplega dýrt eftirlit sem framkvæmd frv. fylgdi. Ég þekki það að ýmsar þær mælingar, sem framkvæma á og Hafrannsóknastofnun getur alls ekki framkvæmt eins og hún er í stakk búin nú, eru mjög dýrar. Mér sýnist að verið gæti að þarna kæmi upp enn ein eftirlitsstofnun sem yrði alldýr. Ég vildi inna hæstv. ráðh. eftir því hvort eitthvað hefur verið hugað að því hvaða kostnað fyrir ríkið og þá jafnframt væntanlega fyrir atvinnurekstur væri þarna um að ræða.
Það er sjálfsagt ekki vanþörf á að samræma og fella í einn lagaramma ýmis þau lög sem um þessi efni hafa gilt, eins og hæstv. ráðh. gat um. Hins vegar er það oft svo að aðild okkar að ýmsum samþykktum á tæpast við í okkar litla þjóðfélagi. Það er eins og við séum stundum að gera ráð fyrir að úrgangur sem til fellur í sjó við okkar eyland sé svipaður eins og hér byggju álíka margar milljónir og við erum þúsund.
Ég vil taka sérstaklega undir það hjá hæstv. ráðh. að mér finnst að þetta þurfi að fá góða skoðun í nefnd og umsagnir verði að berast, ekki síst frá þeim atvinnurekstri sem þessi lög hljóta að snerta. Ég er viss um að samgn. þessarar deildar sér svo um eins og hennar er von og vísa.
Eitt lítið atriði enn. Ég hnaut um skilgreiningu á orðinu „varp“. Varp er sjálfsagt það gott orð að nota megi það um ýmislegt fleira en æðarvarp og varp annarra fugla (Gripið fram í: Kúluvarp.) og kúluvarp eins og hv. þm. bendir á, en varp er þarna notað nokkuð frjálslega og er mér nokkuð framandi ný merking þess, a.m.k. að sinni.
Ég vildi að þetta kæmi fram þar sem ég á ekki sæti í þeirri hv. nefnd sem um þetta mun fjalla.