24.02.1986
Neðri deild: 51. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2718 í B-deild Alþingistíðinda. (2323)

Rannsókn kjörbréfs

Forseti (Ingvar Gíslason):

Mér hefur borist eftirfarandi bréf:

„Alþingi, 24. febrúar 1986.

Þar sem ég er á förum til útlanda og get því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess að 1. varamaður Sjálfstfl. á Austurlandi, Tryggvi Gunnarsson skipstjóri, Vopnafirði, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Sverrir Hermannsson,

3. þm. Austurl.“

Tryggvi Gunnarsson hefur setið á þingi á þessu kjörtímabili og kjörbréf hans hefur verið rannsakað. Ég býð Tryggva velkominn til starfa á Alþingi.