25.02.1986
Sameinað þing: 51. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2746 í B-deild Alþingistíðinda. (2337)
155. mál, lækningarmáttur jarðsjávarins við Svartsengi
Fyrirspyrjandi (Gunnar G. Schram):
Herra forseti. Á síðasta Alþingi spurðist ég fyrir um það hvað liði könnun á lækningarmætti jarðsjávarins við Svartsengi á Reykjanesi. Tilefni þeirrar fsp. voru fregnir um að allnokkur fjöldi manna hefur á síðustu misserum talið sig fá verulega bót á ýmsum húðsjúkdómum við böð í Bláa lóninu svonefnda en það er mönnum vel kunnugt úr fréttum. Þar er fyrst og fremst um að ræða þá sjúklinga sem þjást af sjúkdómnum psoriasis, en þeir telja hvorki meira né minna en u.þ.b. 5000 hér á landi, en einnig menn sem þjást af margs konar exemi. Þegar þetta kom til umræðu á síðasta þingi lýsti þáverandi heilbrrh. því yfir að til stæði að landlæknisembættið léti gera rannsókn á lækningarmætti vatnsins í Bláa lóninu og stóð til að sú rannsókn yrði framkvæmd að einhverju leyti eða jafnvel að öllu leyti á síðasta sumri. Í tilefni af þessu hef ég borið fram eftirfarandi fsp. til heilbr.- og trmrh. á þskj. 169 um lækningarmátt jarðsjávarins við Svartsengi, með leyfi forseta:
„Hverjar eru niðurstöður rannsóknar, sem gerð var á vegum heilbrrn. á liðnu sumri, á lækningarmætti jarðsjávarins við Svartsengi?"
Að undanförnu hafa heilbrigðisyfirvöld landsins greitt kostnað við ferð hóps psoriasissjúklinga til Suðurlanda ár hvert. Árlega munu það vera a.m.k. 40 sjúklingar sem hafa farið í slíkar ferðir, að þessu leyti til á vegum ráðuneytisins og kostnaðurinn er greiddur af því. Það fer ekki milli mála að í hinu suðræna loftslagi hafa þessir sjúklingar talið sig fá verulega bót meina sinna. Ekki síður er nauðsynlegt að fá úr því skorið hvort unnt er að fá bata slíkra sjúkdóma við böð hér á landi og þá fyrst og fremst í jarðsjónum við Svartsengi. Ljóst er að ef læknisfræðilegar rannsóknir benda til þess að svo sé skapast hér nýir og mikilvægir möguleikar til lækninga, bæði fyrir okkur Íslendinga en einnig fyrir útlendinga, en fjölmargar fyrirspurnir hafa borist til samtaka psoriasissjúklinga erlendis frá um þessi mál.
Ef af slíku yrði skapast einnig grundvöllur undir stofnun heilsubaðstaðar við Svartsengi þar sem menn gætu fengið skjótari og betri bót meina sinna en hingað til hefur verið kleift hér á landi.