25.02.1986
Sameinað þing: 51. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2748 í B-deild Alþingistíðinda. (2339)
155. mál, lækningarmáttur jarðsjávarins við Svartsengi
Fyrirspyrjandi (Gunnar G. Schram):
Herra forseti. Ég vil ekki láta hjá líða að flytja heilbrrh. bestu þakkir fyrir svarið við fsp. minni, sem hún flutti hér, og þær að mörgu leyti markverðu upplýsingar sem þar komu fram. Það fólst í svari hennar að forrannsókn hefur þegar átt sér stað í þessum efnum. Það var mjög athyglisvert og mjög fróðlegt að heyra þá yfirlýsingu hennar að þær forrannsóknir hefðu gefið vísbendingu, eins og hún orðaði það, um jákvæðan árangur. Það eru út af fyrir sig merk tíðindi. Réttilega benti ráðherrann á að hér er aðeins um forrannsókn að ræða. Til þess að fyrir liggi full vissa um lækningarmátt jarðsjávarins í Svartsengi gegn þessum sjúkdómum þarf ítarlegri rannsókn. Og ég vil leyfa mér að fagna því að ráðherra hefur lagt á það áherslu við landlæknisembættið að slík rannsókn fari fram - hún stendur nú yfir - og jafnframt að henni verði hraðað sem mest og niðurstöðurnar að henni lokinni kynntar hér á Alþingi. Ég vil einnig fagna þeirri yfirlýsingu ráðherra að hann hefði hvað eftir annað ítrekað nauðsyn þess að þessari meginrannsókn málsins lyki sem fyrst.
Eins og ég sagði í upphafsorðum mínum er hér um mikilvægt mál að ræða fyrir allstóran hóp manna. Ég nefndi tölu psoriasissjúklinga hér á landi. Þeir hafa með sér samtök, Samtök psoriasis- og exemsjúklinga, og aðeins psoriasissjúklingar eru taldir vera um 5000 talsins. Hér er því um mikið heilbrigðismál og merkilegt að ræða ef endanleg niðurstaða rannsókna landlæknisembættisins leiðir í ljós að unnt er að fá allnokkurn, jafnvel verulegan bata þessa sjúkdóms hér á höfuðborgarsvæðinu.