25.02.1986
Sameinað þing: 51. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2751 í B-deild Alþingistíðinda. (2347)

256. mál, leghálskrabbameinsleit

Heilbr.- og trmrh. (Ragnhildur Helgadóttir):

Herra forseti. Fyrsti hluti þessarar fsp. hljóðar svo: „Hve mikinn hluta kostnaðar af leghálskrabbameinsleit hjá leitarstöð Krabbameinsfélagsins greiða konur sjálfar? Hverjir aðrir aðilar taka þátt í greiðslu þess kostnaðar? Er sama gjald tekið af konum við slíka skoðun um land allt?"

Greiðslur fyrir læknisskoðun og rannsókn frumusýnis, sem komu í hlut Krabbameinsfélagsins, voru á árinu 1985 samanlagt 6 147 233 kr. Aðeins þær konur sem fengu læknisskoðun í leitarstöð Krabbameinsfélagsins greiddu fyrir þann hluta til félagsins. Konur sem voru skoðaðar annars staðar greiddu fyrir læknisskoðunina á viðkomandi stað. Krabbameinsfélagið fékk aftur á móti greiðslur fyrir allar rannsóknir frumusýna þegar þær fengust greiddar.

Á árinu 1985 var heildarkostnaður fyrir rekstur leitarstöðvar og frumurannsóknastofu félagsins vegna krabbameinsleitar hjá konum 18 808 838 kr. Krabbameinsfélagið greiddi 12 661 605 kr. af þessum kostnaði á árinu 1985.

Konur greiða mismunandi gjald fyrir læknisskoðun og fer það m.a. eftir búsetu. Allt að 100% munur getur verið á milli staða. Einfalt göngudeildargjald er grundvöllur greiðsluþátttöku neytandans í kostnaði við læknisskoðunina vegna leitarstarfsins. Þetta gjald hrekkur ekki til fyrir kostnaði. Á sumum stöðum á landinu hefur verið gripið til þess ráðs að konurnar tækju sjálfar þátt í umframkostnaði vegna skoðunarinnar.

2. liður fsp. var þessi: „Hefur einhver breyting orðið á hlutdeild kvenna í þessum kostnaði á s.l. ári?"

Frá 1. jan. 1985 greiddu konur ekki fyrir rannsókn frumusýnis í sambandi við krabbameinsleitina. Var þetta samkvæmt ákvörðun heilbr.- og trmrn. um að rannsóknir frumusýnanna féllu undir ákvæði reglugerðar 436 frá 1985 og greiddust því af Tryggingastofnun ríkisins. Tryggingaráð taldi þessa krabbameinsleit hins vegar óháða starfsemi Tryggingastofnunar ríkisins. Frá 1. júlí 1985 ber konum að greiða sérstaklega fyrir rannsókn frumusýnis samkvæmt ákvörðun þáv. heilbr.og trmrh., þ.e. hlutunum var þá aftur breytt til síns fyrra horfs vegna þessarar afstöðu tryggingaráðs. Ég vil víkja nokkru nánar að þessum þætti.

Afstaða tryggingaráðs byggist á því að úr sjúkratryggingum beri fyrst og fremst að greiða sjúkrahjálp en að þetta falli ekki í strangasta skilningi undir það heldur sé hér um að ræða heilsuverndarverkefni, leit, rannsókn, sem þá vissulega hefur um leið öryggisþýðingu fyrir þá sem við stöðina skipta. Þess vegna er það að ég læt vinna að athugun á því þessa dagana hvort unnt sé að koma fyrir einhvers konar sérstakri skor innan trygginganna til að taka þátt í starfsemi sem þessari á svipaðan hátt og gert er t.d. með göngudeildarþjónustu. Vissulega geta konur fengið þessa þjónustu hjá sínum lækni eða sínum sérfræðingi og í framhaldi af því með göngudeildarþjónustu, en að því leyti til sem Krabbameinsfélagið rekur slíka starfsemi tel ég að það þurfi að koma hlutum svo fyrir að það rúmist innan reglna Tryggingastofnunarinnar. Ég tel aftur á móti að það þurfi nokkrar breytingar á reglum til og það er ekki algerlega einfalt mál. Þess vegna læt ég vinna að því einmitt núna um þessar mundir.

Síðan var 3. liður fsp. ef breyting hefur orðið á hlutdeild kvenna: „Ef svo er, hefur sú breyting haft áhrif á aðsókn kvenna að leitarstöð Krabbameinsfélagsins?"

Til þess að geta svarað þessari fsp. með rökum þarf að hafa dregið marktækt úr þátttöku kvenna í krabbameinsskoðun. Bráðabirgðauppgjör Krabbameinsfélagsins um aðsókn kvenna til eftirlits gefur engar sannanir um slíkt að sögn forráðamanna félagsins. Hins vegar hafa Krabbameinsfélaginu borist kvartanir og ábendingar frá konum, fulltrúum svæðafélaganna og staðarlæknum ýmsum víðs vegar um landið um að konur með lítil fjárráð telji sig ekki hafa efni á þeirri þjónustu sem í boði er, en að því er þetta varðar vísa ég til þess sem ég áður sagði og miðar m.a. að því að jafna þessa aðstöðu.