25.02.1986
Sameinað þing: 51. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2752 í B-deild Alþingistíðinda. (2348)
256. mál, leghálskrabbameinsleit
Fyrirspyrjandi (Guðrún Agnarsdóttir):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. fyrir svör hennar. Upplýsingar sem ég hef undir höndum gefa til kynna að áætlaður kostnaður Krabbameinsfélagsins við hverja skoðun á konu sem kemur til leitarstöðvarinnar í leghálskrabbameinsskoðun sé um 1200 kr. Af því hefur konan verið látin greiða frá 1. júlí 1985 um 750 kr., en mismuninn, þ.e. 450 kr., hefur Krabbameinsfélagið sjálft greitt af sínum tekjum. Þarna kemur ríkið einungis inn í að mjög litlum hluta. Ég fagna því að hæstv. ráðh. skuli beita sér í þessu máli, ekki síst með tilliti til þeirra upplýsinga sem hún sjálf hefur komið á framfæri hér, þ.e. kvartana frá svæðafélögum Krabbameinsfélagsins og frá konum almennt um að þær hafi ekki fjárráð til að greiða fyrir slíka skoðun. Með leyfi forseta vil ég fá að lesa upp úr skýrslu Krabbameinsfélagsins fyrir árið 1985. Þar segir:
„Dánartíðni meðal þeirra kvenna sem ekki mæta til skoðana og fá leghálskrabbamein er tífalt hærri en meðal þeirra kvenna þar sem krabbameinið greinist við leit. Þetta byggist á þeirri staðreynd að hjá flestum þeirra kvenna þar sem krabbameinin greinast við leit eru þau á fyrsta stigi sjúkdóms þar sem batahorfur eru bestar. Flestar þeirra þar sem sjúkdómurinn greinist utan leitar hafa meinið á hærri stigum þar sem batahorfur eru síðri.“
Og áfram segir: „Þær konur sem álitnar eru í hvað mestri hættu á að greinast með leghálskrabbamein eru þær sem aldrei eða mjög óreglulega mæta til skoðana. Þessi staðreynd kemur fram þegar skoðuð er leitarsaga þeirra 77 kvenna er fengu leghálskrabbamein á tímabilinu 1980-1984. Um 2/3 hlutar þessara kvenna höfðu aldrei mætt eða ekki mætt síðustu þrjú árin fyrir greiningu sjúkdómsins. Síðustu árin hefur innköllunarkerfi leitarstöðvar því verið beint að þeim hópi kvenna er ekki hafa mætt síðustu fimm árin. Ábyrgum staðarlæknum utan Reykjavíkur var sendur listi yfir þessar konur og þeir beðnir um að ná til kvennanna. Þessar aðgerðir svo og aukinn áróður skila þeim árangri að heildarmætingin hefur batnað.“
Nú horfir svo að dregið geti úr þessu aukna átaki sem Krabbameinsfélagið hefur gert til þess að ná til þeirra kvenna sem eru í mestri hættu og í raun þurfa mest á þessari þjónustu að halda. Megintilgangur þess leitarstarfs sem stundað er hjá Krabbameinsfélagi Íslands er að koma í veg fyrir krabbamein eða að öðrum kosti að greina þau á byrjunarstigi þannig að það megi lækna þau. Til þess að svo geti orðið er nauðsynlegt að þátttaka almennings í leitarstarfinu sé góð og það er reyndar meginatriði í hvers konar heilsuvernd að allur þorri fólks taki þátt í henni. Þess vegna fagna ég því mjög að hæstv. ráðh. skuli ætla að beita sér fyrir því að auðvelda konum að taka þátt í þessu mikilvæga leitarstarfi.
Ég vil vekja athygli samþm. minna á því, ég veit að ráðherra veit þetta sjálf, að það kostar 10 þús. kr. á dag að gista rúm á Borgarspítalanum. Áætlaður kostnaður við sjúkrarúm á Landspítalanum er ekki minni. Þetta eru reyndar ekki tölur í hámarki. Ég vil leggja áherslu á að það er mun dýrara að sinna krabbameinssjúklingum um óákveðinn tíma í sjúkrarúmi fyrir a.m.k. 10 þús. kr. á dag en verja fé til að fá heilbrigt fólk til skoðunar.