25.02.1986
Sameinað þing: 51. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2760 í B-deild Alþingistíðinda. (2358)
251. mál, stofnun húsfélaga
Félmrh. (Alexander Stefánsson):
Herra forseti. Ég vil aðeins bæta því við í sambandi við þessar umræður að þetta er mjög viðkvæmt mál. Þarna er mikið af eldra fólki sem einnig er hrætt við hina hlið málsins, að það verði skilið eftir eitt með viðhaldið á þessum íbúðum, þannig að margs er að gæta. Ég tek undir það að þetta getur ekki gengið svona lengur og ég hef lagt áherslu á það s.l. tvö ár að reyna að fá þetta uppgert en það hefur verið við ramman reip að draga þar sem stjórnin hefur talið sig hafa vald til þess að haga sínum málum eins og gert hefur verið. Þeir halda á hverju ári aðalfund og þar eru samþykktir stjórnar venjulega ofan á.
Samt sem áður hefur þessi ákvörðun verið tekin. Ég get bætt því við að ég geri alveg ráð fyrir að skynsamlegasta lausnin á vanda félagsmanna í Byggingarfélagi verkamanna í Reykjavík sé sú að leggja félagið niður í áföngum. Það mætti hugsa sér að gera það á þremur til fimm árum þannig að það fari fram uppgjör á hverri íbúð fyrir sig og viðkomandi aðili fái á henni hreint kvaðalaust eignarhald og þannig verði hægt að gera upp þessi gömlu mál öll og reyna að koma þessu í það form að þessu ástandi verði lokið.
Ég hef trú á að það takist og mun láta athuga það jafnframt því að þessi endurskoðun er nú í fullum gangi á uppgjöri fyrir fólkið.