25.02.1986
Sameinað þing: 51. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2761 í B-deild Alþingistíðinda. (2360)

276. mál, nýting lánsfjár úr Iðnlánasjóði

Fyrirspyrjandi (Guðrún Helgadóttir):

Herra forseti. Ég hef leyft mér á þskj. 511 að leggja þrjár fsp. fram til iðnrh. sem hljóða svo:

„1. Hversu mikið af húsnæði, sem byggt hefur verið fyrir lán úr Iðnlánasjóði, hefur verið tekið til annarra nota en iðnaðarstarfsemi?

2. Hvernig er eftirliti með nýtingu lánsfjárins háttað?

3. Hve mikið af lánsfénu hefur verið endurkrafið vegna rangrar nýtingar?"

Í lögum um Iðnlánasjóð nr. 68/1967 segir í 1. gr.: „Tilgangur Iðnlánasjóðs er að styðja iðnað Íslendinga með hagkvæmum stofnlánum eins og nánar er kveðið á um í 10. gr. laga þessara.“

Í 3. gr. segir, með leyfi forseta:

„Iðnrh. skipar sjóðnum þriggja manna stjórn til fjögurra ára í senn. Einn stjórnarmanna skipar ráðherra án tilnefningar en hina eftir tilnefningu stjórnar Landssambands iðnaðarmanna og stjórnar Félags ísl. iðnrekenda. Ráðherra skipar einn hinna þriggja stjórnarmanna formann sjóðsstjórnar.“

Þarna eru fulltrúar iðnaðarins inni í stjórninni svo að auðvelt ætti að vera að fylgjast með hvort þessi lán nýtast til þess sem þau eru ætluð.

Í 5. gr. segir, með leyfi forseta - gjaldið hefur tekið ýmsum breytingum að vísu:

„Tekjur Iðnlánasjóðs eru . . . gjald er innheimtist af iðnaðinum í landinu.“

Og í fjórða lagi segir síðan í síðasta málsl. 3. gr.: „Eftir hver áramót gefur stjórn sjóðsins ráðherra ítarlega skýrslu um hag og starfsemi sjóðsins á liðnu ári, og skal fylgja henni endurskoðaður ársreikningur. Ársreikning skal birta í B-deild Stjórnartíðinda.“ - Sem og hefur verið gert.

Að lokum, herra forseti, segir í 12. gr.:

„Um lánveitingar til nýrrar framleiðslu, svo og um lánveitingar sem sjóðsstjórnin telur leika vafa á hvort veita skuli, skal hún leita álits sérfróðra manna. Allan kostnað vegna slíkra athugana og álitsgerða skal lánbeiðandi bera, enda hafi honum verið tilkynnt um það fyrir fram.“

Ástæðan fyrir því, herra forseti, að ég ber fram þessa fsp. er sú að nokkur grunur leikur á að það húsnæði sem byggt hefur verið fyrir lán úr Iðnlánasjóði sé alls ekki nýtt fyrir iðnaðarstarfsemi heldur alls kyns aðra starfsemi, verslun og annað þess háttar. Þess vegna eru þessar fsp. fram bornar.