30.10.1985
Efri deild: 10. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 293 í B-deild Alþingistíðinda. (237)

75. mál, umferðarlög

Helgi Seljan:

Herra forseti. Á liðnu þingi, þegar þetta frv. var hér til 1. umr. og var lagt fram, sagði ég nokkur orð almennt um umferðarmálin. Ég ræddi þá um tillitsleysið og gáleysið í umferðinni, hversu allar reglur eru þar þverbrotnar, og þá hugarfarsbreytingu, sem hv. síðasti ræðumaður sagði að þyrfti reyndar að breyta yfir í hugarfarsbyltingu og ég get tekið undir, sem þar megnar ein úr að bæta.

Ég man líka að ég ræddi um ölvunaraksturinn alveg sér í lagi og þá gífurlegu hættu sem af því skapast, þau válegu slys af ýmsu tagi sem verða vegna þess að Bakkus hefur hönd á stýri. Ég skal ekki endurtaka neitt af þessu hér.

Ég get líka sparað mér ýmislegt af því sem ég hefði kannske viljað segja vegna þess að ég get í meginatriðum tekið undir mörg þau áhersluatriði sem hv. síðasti ræðumaður, forseti þessarar deildar, kom að. Ég lýsi því yfir enn og aftur að ég fagna þessu frv. sem heildstæðri tilraun til margháttaðra úrbóta. Vissulega sáum við í allshn., sem sátum þar í fyrra og sitjum þar víst flest enn, við nánari lestur að mjög veigamikil atriði eru þarna til bóta.

Það vakti hins vegar athygli mína hversu margar og mismunandi umsagnir bárust, m.a. frá þeim sem gleggst ættu að vita. Ég tók með mér í ræðustól, ekki til þess að þylja þar upp úr, þann bunka sem nefndin fékk frá hinum ýmsu aðilum til að fara yfir og reyna að átta sig á hvað þeir aðilar hefðu til málanna að leggja. Ég nefni af handahófi aðila, sem gáfu umsagnir og gerðu verulegar athugasemdir um leið, eins og Ökukennarafélagið, sem kemur náttúrlega mjög inn í þessa mynd, Bifreiðaeftirlit ríkisins, Landssamband lögreglumanna, Slysavarnafélag Íslands, Vinnueftirlit ríkisins, auk margra annarra.

Ég bendi á af handahófi einnig að frá Vinnueftirliti ríkisins fengum við býsna langt bréf og þar stóð m.a., með leyfi hæstv. forseta:

„Frv. hefur verið tekið til ítarlegrar athugunar hjá Vinnueftirlitinu þar sem það hefur eftirlit með vinnuvélum og dráttarvélum við landbúnaðar- og verktakastörf [skv. lögum sem þar eru tilgreind]. Ekkert er fjallað um þessa starfsemi í núverandi umferðarlögum og ekki heldur í því frv. sem nú liggur fyrir.“

Ég gæti nefnt einnig hinar einstöku athugasemdir, orðalagsbreytingar og annað því um líkt, en ætla ekki að fara að eyða tíma hv. deildar í það.

Ég viðurkenni að margt af því sem er í þessum - ja, næstum að segja doðröntum sem við fengum og ágætt er að hafa út af fyrir sig voru athugasemdir um orðalag. túlkunaratriði ýmiss konar eða óvissa um túlkun, en sumt af því snerti mjög þýðingarmikla þætti þessa viðamikla málaflokks.

Ég tók t.d. sérstaklega eftir því að Ökukennarafélagið lagði áherslu á að hæpið væri að vísa svo mjög til reglugerðarsetningar um ýmis atriði sem máli skiptu í stað þess að kveða skýrt og ótvírætt á um þau í lögunum. Með leyfi hæstv. forseta sagði í þessari umsögn Ökukennarafélags Íslands:

„Við yfirlestur frv. vaknar óneitanlega sú spurning hvort ekki sé of mikið um að áformað sé að setja atriði ákveðnari með reglugerðum og þar með að verið sé að færa löggjafarvald úr höndum Alþingis í hendur ráðherra og ráðuneytis. Eins þykir nokkuð bera á ónauðsynlegum orðalagsbreytingum frá núgildandi lögum og þær breytingar virðast jafnvel stundum aðeins gerðar breytinganna vegna.“

Það væri að æra óstöðugan að rekja þessar umsagnir og athugasemdir hér, enda er það ekki ætlun mín. Ég ætla aðeins að vekja athygli á því að hér verður um mjög veigamikið nefndarstarf að ræða og skal ekki undan því kvartað út af fyrir sig. En ég tek undir það, sem kom fram í máli hv. síðasta ræðumanns, Salome Þorkelsdóttur, að lagabálkur af þessu tagi sé þess eðlis, sé það viðamikill að það sé útilokað annað en að nefndir beggja deilda vinni að nokkru saman að þessu máli ef það á að ganga eðlilegan gang í gegn jafnvel þó að það sé lagt fram svo snemma sem raun ber vitni.

Ég er hins vegar á þeirri skoðun og get ekki neitað mér um hana að hin réttu viðbrögð ráðuneytisins hefðu átt að vera þau að leggja frv. fram nokkuð endurskoðað. Hæstv. ráðherra kom inn á það hér áðan að hann teldi að ýmsar þær ábendingar sem við fengum í umsögnum okkar væru réttlætanlegar og hefðu kannske verið til bóta. Þá hefði ég talið að það hefði verið rétt a.m.k. að taka þan atriði inn í sem nefndin sem samdi frv. og hæstv. ráðherra hefðu talið rétt því að ég trúi því ekkí, og veit reyndar að svo er ekki, að þetta frv. þyki svo algott að dómi þeirra sem það sömdu og lögðu það fram í þessari mynd og lögðu greinilega á sig mikla vinnu í kringum það að a.m.k. hefði ekki mátt færa ákveðin atriði til betri vegar miðað við umsagnir þeirra aðila sem gleggst mega hér um véla.

Ég viðurkenni að auðvitað eru ágreiningsatriði næg og áhersluatriði misjöfn. En ég nefni aðeins að lokum sem dæmi að ég held réttmæta athugasemd frá landlæknisembættinu varðandi 48. gr. Í bréfi til nefndarinnar sagði svo um 48. gr., með leyfi hæstv. forseta:

„Athygli mín hefur verið vakin á því að skv. 48. gr. frv. til umferðarlaga er gert ráð fyrir að taka blóðsýnis vegna gruns um ölvun við akstur geti farið fram „án atbeina læknis“ eins og segir í grg. Þá segir enn fremur í 48. gr.: "Dómsmrh. setur nánari reglur um töku sýna og rannsókn.“ Ég vil benda á að ákvæði þessarar greinar, ef að lögum verða, brjóta að því er ég best fæ séð í bága að ákvæði læknalaga, hefðir og venjur sem skapast hafa um hvaða heilbrigðisstarfsmenn hafi leyfi til að taka blóð úr fólki. Ég tel því eðlilegra að orða síðustu mgr. 48. gr. þannig: Dómsmrh. setur, að höfðu samráði við heilbrigðisyfirvöld, nánari reglur um læknisrannsókn ökumanna og töku blóðsýna.“

Þetta er dæmi um atriði sem ég held að hefði verið eðlilegt og sjálfsagt að hefði verið tekið inn í endurskoðaða útgáfu frv. þó að ég viðurkenni að vitanlega getur nefndin tekið til þessa fullt tillit og unnið sig fram úr þessu.

En þetta er kannske einhver stysta athugasemdin sem við fengum því að margar eru þær langar, m.a. frá Umferðarráði upp á nokkuð margar síður, því ráði sem fjallar um þetta daglega og er að senda okkur sem erum í umferðinni aðvörunarorð á öldum ljósvakans og annars staðar.

Ég hefði sem sagt talið að það hefði verið að mörgu leyti heppilegra og betra til úrvinnslu fyrir nefndina og nefndarstarfið í heild að hér hefði farið fram nokkur athugun á, jafnvel þó að það hefði dregist um einn mánuð eða svo að þetta frv. yrði lagt fram. Það hefði verið heppilegra þó að ég sé ekki að skorast undan því að nefndin taki þetta viðamikla starf að sér.

Ég skal ekki hafa fleiri orð um málið nú. Ég ætla ekki að endurtaka það sem ég sagði í fyrra. Það er óþarfi. Ég fagna frv. sem slíku þar sem flest meginatriði eru til bóta, en ég held að við hefðum unnið þetta fljótar, betur og auðveldar að mörgu leyti ef ráðuneytið hefði verið búið að leggja í það ákveðna vinnu að fara yfir umsagnirnar og taka það réttmætasta til greina.