25.02.1986
Sameinað þing: 52. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2765 í B-deild Alþingistíðinda. (2371)

277. mál, rannsókna- og tilaraunastöð fiskeldis

Flm. (Björn Dagbjartsson):

Herra forseti. Á þskj. 513 hef ég leyft mér að bera fram þáltill. um rannsókna- og tilraunastöð um fiskeldi sem hljóðar svo, með leyfi forseta:

„Alþingi ályktar að fela landbrh. að beita nú þegar heimild í 62. gr. laga nr. 76/1970 og standa fyrir myndun félagsskapar ríkisins og þeirra, er fiskeldi stunda, um rekstur rannsókna- og tilraunastöðvar. Tilraunastöðin í Kollafirði verði rekin af slíkum félagsskap sem tilraunastöð fyrir erfðafræðirannsóknir og kynbætur á eldisfiskum, til lífeðlisfræðirannsókna, svo og til rannsókna á fisksjúkdómum og verði með aðstöðu til leiðbeiningar og fræðslu um varnir gegn fisksjúkdómum, fóðrun fiska og aðra þýðingarmikla þætti ferskvatns- og sjávareldis.“

Tillögunni fylgir allítarleg grg. sem ég sé ekki ástæðu til að lesa í heild. Ég vil aðeins benda á tilvitnun í grein eftir Pétur Bjarnason fiskeldisfræðing sem birtist í

Morgunblaðinu 5. maí 1984 og hljóðar svo, með leyfi forseta:

„Í fyrsta lagi þarf að stunda markvissar rannsóknir svo eldismál séu leyst á kerfisbundinn hátt í tilraunaeldisstöð en ekki á þann hátt, eins og nú er, að hver eldisstöð sé að eyða dýrmætum tíma og fjármunum til þess að komast að hlutum sem hægt væri að komast að með einu símtali við virka tilraunaeldisstöð.

Í öðru lagi þarf að koma upp leiðbeiningakerfi til þess að fyrirbyggja óþarfa mistök og koma nýrri þekkingu sem fyrst á framfæri.

Í þriðja lagi þarf að búa svo að fisksjúkdómayfirvöldum að þau geti annast eftirlits- og þjónustuhlutverk sitt af þeim myndugleik sem þarf til þess að koma í veg fyrir að sjúkdómar og smit valdi meira tjóni en óhjákvæmilegt er og svo til hins að erlendir kaupendur framleiðslunnar geti treyst því að vel sé á málum haldið og að útflutningur þurfi því ekki að stranda á vottorðaleysi.“

Ég vil hér aðeins bæta við nokkrum orðum til frekari áréttingar þeim rökstuðningi sem í grg. till. felst. Í fyrsta lagi er í grg. tiltölulega lítið vikið að fræðsluhlutverki slíkrar stöðvar sem um ræðir, of lítið, eftir á að hyggja. Íslendingar vöknuðu upp við það fyrir tveim til þrem árum að á sviði fiskeldis var eitthvað að gerast sem vert væri að taka þátt í. Ungt fólk byrjaði að þyrpast í norska skóla til að læra a.m.k. almennar reglur um það hvernig umgangast á eldisfisk. Sumir leituðu meiri menntunar en eftir situr að verklega reynslan var mest bundin við sjókvíalax í norskum fjörðum.

Nú er rétt að undirstrika það að við eigum endilega að notfæra okkur erlenda reynslu hvenær sem við getum. En við erum hér í fiskeldinu að leggja út á aðra braut en Norðmenn og okkar praktísku reynslu getum við ekki alfarið sótt þangað. Þess vegna er tilraunastöð, eins og lögð er til hér, einmitt svo nauðsynleg, til að þjálfa fólk við íslenskar fiskeldisaðstæður.

Menn vöknuðu líka upp við vondan draum í menntunarmálum fiskeldis og alls konar menntabrautir komu fram, svo sem fiskeldisbraut á Kirkjubæjarklaustri, „sporðbraut“ á Hólum, jafnvel háskólanám í tengslum við sjávarútvegsfræði í Háskóla Íslands. Minna virðist hafa verið hugsað fyrir því að væntanlegir nemendur fengju verklega þjálfun jafnframt.

Á rannsókna- og tilraunasviðinu eru líka ótalmörg verkefni sem kalla á úrlausn, úrlausn sem ekki verður veitt nema með tilraunaaðstöðu. Ófullkomin upptalning verður að nægja hér. Hún er að hluta til tekin úr drögum að þeirri skýrslu sem Rannsóknaráð ríkisins er að láta vinna um þróun fiskeldis. En sökum þess að þau drög eru ekki opinber enn þá verða hér engar beinar tilvitnanir heldur allt á ábyrgð flytjenda þessarar þáltill.

Það þarf að kanna helstu líffræðilegar forsendur fiskeldis, rannsaka innbyrðis áhrif þeirra þannig að byggja megi á þeim fjárfestingar- og arðsemisútreikninga. Það verður að athuga helstu forsendur fyrir innlendri fóðurframleiðslu til fiskeldis, prófa innlent þurrfóður sem tryggi góða fóðurnýtingu, góðan vöxt og litla mengun. Úttekt á sjávarhita innfjarða í kringum landið auk annarra landkosta, sem nauðsynlegir eru, floteldi í sjó, fjarðaeldi, lónaeldi, reykeldi, hefur heldur ekki verið gerð. Það þarf að gera tölvulíkan yfir helstu reiknistærðir í fiskeldi sem nota má við arðsemisúttektir. Það verður að hefja tilraunir með eldi nýrra tegunda eins og lúðu, sandhverfu og jafnvel þorsks.

Til þess að nýta hinar sérstæðu aðstæður hér, þ.e. jarðhitann og svo hæfilegan sjávarhita, a.m.k. við Suðvesturland, gæti þurft að flýta hrognatöku og klaki um tvo til þrjá mánuði og ala síðan seiðin upp í 200-800 grömm á öðru ári eftir klak.

En e.t.v. allra álitlegasta valkostinn, keraeldi allan eldistímann, verður mjög nauðsynlega að athuga betur. Það er mikilvægt í því sambandi að geta slátrað sem jafnast yfir árið. Því verður sennilega nauðsynlegt með kynbótum eða öðrum aðferðum að fá fram stofna sem hrygna oft á ári, þ.e. ekki allir fiskar samtímis.

Kynbætur á íslenska laxastofninum með það markmið að auka endurheimtur, vöxt og lífsþrótt í eldi og fá fram stofna með breytilegum hrygningartíma er mjög mikilvægt rannsóknarefni. Auk þess eru svo rannsóknir á gerð og eiginleikum búnaðar sem til eldisins þarf.

Til þess að undirstrika það sem gera þyrfti fyrst og fremst í væntanlegri tilraunaeldisstöð er þetta: Markmiðið er að greina og leysa þau líffræðilegu og tæknilegu vandamál sem laxeldi á við að etja í dag, að leita að hagkvæmustu aðferðum í matfiskseldi við íslenskar aðstæður og að koma á samstarfi opinberra og hálfopinberra stofnana og fyrirtækja um samræmt rannsóknarstarf til stuðnings fiskeldi í landinu.

Herra forseti. Ég leyfi mér einnig að vitna hér í Norsk fiskeopdret áramótahefti 1985-1986. Þar segir frá risavöxnum áformum um fiskeldi á Íslandi, eldi í kerum á landi. Viðmælendur, norskir fiskeldismenn, eru spurðir: Hvað á að gera við þessa 20-30 rúmmetra af úrgangi sem til falla í hverri landstöð? Svarið er: Það er unnið að lausn á Íslandi. En að hreinsa kerin? Jú, það verður bara að hafa nóg vatn, meira en 10 tonn á mínútu. En ef laxinn verður nú kynþroska of snemma í heita vatninu og hættir að vaxa? Svarið er: Það eru norskir og íslenskir líffræðingar að vinna að lausn þessa vandamáls.

Hvað ætli sé á seyði hér? Eru Norðmenn hugsanlega að leiða landann í ógöngur? Ætli okkur veiti nokkuð af því sjálfir að byggja upp þekkingu á þessu sviði áður en við förum að láta nota okkur hér sem tilraunadýr?

Við höfum fyrir langa löngu vanist þeirri hugsun að tilraunabú séu nauðsynleg til að ná árangri í kvikfjárrækt. Það ætti að vera deginum ljósara að kvikfjárrækt, sem við erum að byrja á, þarfnast tilraunastarfsemi miklu fremur. Það var og viðurkennt fyrir áratugum að atvinnuvegirnir þarfnast allir rannsókna og tilraunastarfsemi. Þetta var rækilega staðfest með lögunum um rannsóknastofnanir atvinnuveganna 1964.

Í takt við tímann liggur nú fyrir Alþingi till. um að rannsóknastofnanir atvinnuveganna verði sjálfseignarstofnanir í líkingu við það sem hér er lagt til. Við verðum að hugsa fyrir þessum málum í sambandi við fiskeldið, hinn nýja atvinnuveg. Við verðum að gera það áður en við eyðum milljörðum í framkvæmdir.

Herra forseti. Það hefur verið lögð fram brtt. við þessa þáltill. mína. Að vísu á almenn umræða um brtt. víst ekki að fara fram fyrr en við síðari umræðu en ég hef í sjálfu sér ekkert nema gott um þessa brtt. hv. þm. Steingríms J. Sigfússonar að segja. Ég get þess reyndar í grg. að efni till. sé vissulega athugunar vert. Þar segir, með leyfi forseta:

„Í stöðinni í Kollafirði og næsta nágrenni eru aðstæður að mörgu leyti góðar þó að auðvitað þurfi að bæta ýmsu við og lagfæra. Það er augljóst að rannsókna- og tilraunastöð, eins og hér um ræðir, þyrfti minnstan undirbúning ef hún yrði reist þar. Þess er þó jafnvel að vænta að hagkvæmt gæti orðið að reisa og reka fleiri slíkar stöðvar annars staðar á landinu þar sem aðstæður eru frábrugðnar en fiskeldi þýðingarmikil atvinnugrein eins og t.d. í Þingeyjarsýslum.“

Ég get sem sagt tekið undir efni þessarar brtt. sem hér er fram komin, ég vildi aðeins bíða og sjá hver afdrif þessi tillaga fær áður en lengra verður haldið.