25.02.1986
Sameinað þing: 52. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2768 í B-deild Alþingistíðinda. (2372)
277. mál, rannsókna- og tilaraunastöð fiskeldis
Steingrímur J. Sigfússon:
Herra forseti. Það verður ekki sagt að skortur hafi verið á tillögum og málatilbúnaði um fiskeldi og fiskirækt hér á hinu háa Alþingi núna á allra síðustu árum. Er það af hinu góða og vitnar um vaknandi og vaxandi áhuga á þessu málefni. Einhver hefði sjálfsagt sagt að fyrr hefði mátt vera og þegar maður kynnir sér brautryðjendastarf manna eins og Þórðar Flóventssonar frá Svartakoti, sem snemma á þessari öld tók sig til á gamals aldri og aflaði sér upplýsinga og fróðleiks um fiskirækt og fiskeldi og ferðaðist síðan um landið til að miðla öðrum af þeirri þekkingu sinni, þá getur maður spurt sjálfan sig hvort það sé ekki merkilegt að við skulum vera jafn seint á ferðinni með tillöguflutning eins og einmitt hér er til umræðu. En betra er seint en aldrei og miklu betra og ég fagna því að hér er hreyft við einum merkilegum þætti þessara mála, þ.e. spurningunni um rannsókna- og tilraunastarfsemi á þessu sviði. Er það síst ómerkasti hlutinn af þessu máli.
Ég tel sem sagt hér vera þarfa tillögu á ferðinni og er henni efnislega sammála. Það er nauðsynlegt að koma skipulagi á og hefja hið allra fyrsta rannsóknir og tilraunir á þessu sviði. En ég gæti hugsað mér að standa mætti að þessu með ofurlítið öðrum hætti en sjálf tillögugreinin gerir ráð fyrir og hef því lagt fram brtt. við þessa till. til þál. og ég geri það með tilvísan til síðustu setningar 1. málsgr. 33. gr. þingskapa Alþingis, en þar segir að ráðherrar eða einstakir þingmenn geti lagt fram brtt. við hvaða umræðu þingmáls sem er. Ég hef því kosið að leggja þessa till. fram hér nú þegar við fyrri hluta umræðunnar um tillöguna til þess að hún liggi fyrir og ég geti vitnað til hennar í máli mínu og sömuleiðis til þess að sú þingnefnd, sem fær þáltill. til meðferðar, geti haft hana til hliðsjónar. Mér er þó vel ljóst, herra forseti, að slíkar brtt. koma ekki til afgreiðslu fyrr en við lok umræðu um þáltill. En brtt. mín, sem liggur frammi á þskj. 534, gerir ráð fyrir að tillögugrein þál. verði svohljóðandi, með leyfi forseta:
„Alþingi ályktar að fela landbrh. að beita nú þegar heimild í 62. gr. laga nr. 76/1970, um lax- og silungsveiði, og standa fyrir myndun félagsskapar ríkisins og þeirra er fiskeldi stunda um rekstur rannsókna- og tilraunastöðvar. Fiskeldisstöðin í Kollafirði skal nýtt í þessu skyni, einkum til kynbóta og erfðafræðirannsókna, rannsókna á fisksjúkdómum og annarrar skyldrar starfsemi sem henta þykir að stunda þar.
Einnig skal komið á fót tilraunastöð í seiðaeldi og fiskirækt við Öxarfjörð. Þar skal rannsaka sérstaklega þá möguleika sem miklar ferskvatnsuppsprettur í Kelduhverfi með kjörhitastigi til seiðaeldis bjóða upp á til seiðaframleiðslu í stórum stíl. Einnig skulu rannsakaðir í stöðinni möguleikar á eldi í ferskvatni í stórseiðastærð eða allt í sláturstærð. Þá skal enn fremur við uppbyggingu stöðvarinnar taka mið af mögulegri hagnýtingu jarðvarma frá háhitasvæði í Öxarfirði til fiskeldis og æskilegrar tilraunastarfsemi í því sambandi. Stöðin í Kollafirði og tilraunastöðin við Öxarfjörð skulu í sameiningu hafa með höndum leiðbeiningar- og fræðslustarfsemi um varnir gegn fisksjúkdómum, fóðrun fiska og aðra þýðingarmikla þætti ferskvatns- og sjávareldis.“
Ég legg einnig til að fyrirsögn tillögunnar verði: „Tillaga til þál. um rannsókna- og tilraunastarfsemi í seiðaeldi og fiskirækt.“
Ég vil sérstaklega vekja athygli á því, herra forseti, að við Öxarfjörð eru mjög sérstakar aðstæður og miklir möguleikar til fiskeldis, seiðaeldis og fiskiræktar. Ég vil leyfa mér að segja að hvergi á einu svæði á landinu finnist á jafnlitlu landsvæði jafnmiklir og fjölbreyttir möguleikar og þar er að finna. Er þar fyrst til að taka að þar er nægjanlegt ferskt vatn, bæði kalt til íblöndunar og einnig volgt sem nota má beint til eldis við kjörhitastig og það í miklum mæli. Það er hreint, ómengað jarðvatn sem kemur þar upp úr jörðinni í stórum uppsprettum með kjörhitastigi. Þar má velja sér það hitastig, sem menn vilja, án nokkurrar íblöndunar, e.t.v. með því að færa borholur svo nokkrum metrum munar til eða frá.
Þetta hefur sú starfsemi, sem þegar hefur verið komið á fót þarna, sannað og sýnt. Sennilega verður hvergi í heiminum hægt að fá vatn beint inn til stöðvar fyrir minni tilkostnað en þarna gefst. Það má ætla að slíkur tilkostnaður verði með tímanum hverfandi þáttur í rekstri þessara stöðva og gefur þá auga leið að það er mikið hagræði þar sem víða annars staðar er einmitt kostnaður við að afla vatns og fá rétt hitastig á vatn stór þáttur í rekstri slíkra stöðva.
Ég held einnig að íslenskar aðstæður almennt í fiskeldi, sérstaklega í laxaeldi, krefjist þess að þessi þáttur verði rannsakaður mjög vandlega vegna þess að þarna er ekki bara um að ræða möguleikann á því að ala upp seiði í venjulega seiðastærð eða smáseiðastærð heldur kemur líka til skoðunar sá möguleiki, sem margir sérfræðingar eru nú mjög spenntir fyrir, að ala seiðin inni í stöðinni upp í svonefnda stórseiðastærð, þ.e. það stór seiði að þau geti á einu sumri við rétt hitastig í sjó náð fullri sláturstærð. Það gefur auga leið að ef þessi möguleiki reyndist sæmilega viðráðanlegur við aðstæður eins og fyrir hendi eru í Kelduhverfi og jafnlágan tilkostnað og þar má ætla að verði, gæti þar orðið um byltingu að ræða í fiskeldismálum. Miðað við aðstæður í sjónum hér við Suðvesturland, þar sem þær eru hagstæðastar, gæti þetta einfaldlega þýtt að við Íslendingar gætum framleitt lax af sláturstærð á mun styttri tíma en þær þjóðir sem við komum til með að keppa við og væri þá mikið fengið.
Ég vil einnig nefna að við Öxarfjörð er hald manna að sé að finna háhitasvæði. Það væri þá annað af tveimur háhitasvæðum landsins sem liggja við sjó eða alveg fram í sjó, gott ef ekki út í sjó. Þar væru því allir möguleikar til að nýta háhitann með varmaskiptum til að hita upp sjó og ala fisk við þau skilyrði. Þetta allt gerir það að verkum að ég held að full efnisleg rök séu til þess að slík tilraunastöð komist á legg einmitt þarna á þessum stað á landinu. Þar er hægt að sameina sérstakar aðstæður að þessu leyti og það er óhjákvæmilegt að það verði tekið inn í dæmið.
Ég var á ferð í Kelduhverfi með sérfróðum manni á þessu sviði og við skoðuðum þær aðstæður sem þarna eru. Þá kviknaði hugmynd að þessari starfsemi sem hér er flutt tillaga um. Það var mat og niðurstaða þessa sérfræðings að þarna væru aðstæður ekki aðeins sérstaklega hagstæðar og ástæða til að skoða þær út frá sjónarmiði og hagsmunum alls Íslands heldur væru jafnvel þarna möguleikar svo stórkostlegir að ætla mætti að þarna gæti orðið um framleiðslu að ræða sem gæti þjónað miklu stærri markaði en Íslandi einu - þá er ég hér að tala um seiðaframleiðslu. Það má öllum ljóst vera, sem komið hafa að Litluá í Kelduhverfi og skoðað uppspretturnar sem þar eru, að þarna er um stórkostlega möguleika að ræða í bókstaflegri merkingu þess orðs.
Herra forseti. Ég hef í sjálfu sér ekki miklu við þetta að bæta. Tilgangur minn með því að flytja þessa brtt. var að vekja athygli á því að heppilegt væri að undir einni og sömu yfirstjórn risu rannsóknastöðvar sem tækju á öllu þessu verkefni. Ég er sammála flm. till. um að Kollafjarðarstöðin hlýtur að vera þar inni í myndinni en ég vildi einnig vekja athygli á því að sérstakar aðstæður á sviði fiskeldis og fiskiræktar við Öxarfjörð réttlæta það fullkomlega að mínu mati að þar verði einnig byggð upp rannsóknaraðstaða af þessu tagi.