26.02.1986
Efri deild: 51. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2773 í B-deild Alþingistíðinda. (2377)
288. mál, kostnaðarhlutur útgerðar
Kolbrún Jónsdóttir:
Virðulegi forseti. Eins og síðasti ræðumaður nefndi hér áðan og hæstv. ráðherra er þetta frv. gamall kunningi sem fylgir yfirleitt í kjölfarið á fiskverðsákvörðunum. Hér er þó aðeins verið að létta á þeim kvöðum þar sem 29% voru tekin fram hjá skiptum og lækkuð þarna um 2,5%. Því ber að fagna. En ég hef oft áður úr þessum ræðustól lýst yfir óánægju minni með síendurtekin afskipti ríkisvaldsins af fiskverðsákvörðunum. Hér er verið að ákveða verð á fiski burtséð frá því hvað fæst fyrir fiskinn á erlendum mörkuðum. I stað þess er lækkun á olíuverði lögð til grundvallar og hve mikið má fara í hlut skipverja til skipta.
Eins og síðasti ræðumaður nefndi áðan stendur fiskvinnslan ansi höllum fæti og væri gott að heyra frá hæstv. ráðherra hvernig tekið verður á því máli, hvort nokkuð verði gert til að leysa þann vanda til lengri tíma í stað þess að vera sífellt með einhverjar bráðabirgðaráðstafanir með skuldbreytingum eða lánveitingum, hvort eitthvað verði gert til þess að frystihúsin nýti sína fjárfestingu betur.
Markaðurinn kallar á annars konar vöru og við höfum þá staðreynd fyrir augunum að við þurfum ekki á öllum þessum fasteignum í frystiiðnaði að halda. Þær standa einfaldlega ekki undir því að greiða það verð fyrir fiskinn sem þarf miðað við hvað markaðurinn erlendis greiðir fyrir t.d. gámafisk, ferskan fisk sem sendur er héðan, seldur erlendis og jafnvel unninn þar. Það fæst mun hærra verð fyrir þann fisk, allt að þrefalt eða fjórum sinnum hærra verð en frystihúsin greiða hér innanlands. Þróunin verður því sú að sífellt meira verður flutt af fiski í gámum eða með öðrum hætti og frystihúsin nýtast þá sífellt verr.
Þetta mál leysum við ekki með því að skuldbreyta hjá frystihúsunum eða létta þeim róðurinn á þann veg eingöngu. Það þarf meira til að koma. Það þarf jafnvel til að koma að endurskipuleggja eða hjálpa frystihúsunum við að endurskipuleggja sína starfsemi, þ.e. að kanna hvort ekki sé hægt að koma upp vaktakerfi í fiskfrystingu og nýta þannig jafnvel ekki nema helming þess húsrýmis, sem nú er notað, undir frystihúsin. Ég tel sem sagt að ráðgjöf sé vænlegri til að taka á þessum vanda, að hjálpa þeim við endurskipulagningu, heldur en að framfleyta þessu í 2-3 mánuði með alls konar millifærslum eins og hingað til hefur verið gert.