26.02.1986
Efri deild: 51. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2774 í B-deild Alþingistíðinda. (2378)
288. mál, kostnaðarhlutur útgerðar
Sjútvrh. (Halldór Ásgrímsson):
Virðulegi forseti. Það er mikill misskilningur hjá hv. 8. landsk. þm. að ekki sé tekið tillit til verðlags á mörkuðum við fiskverðsákvörðun. Það er einmitt forsenda í lögum um Verðlagsráð sjávarútvegsins þar sem skýrt kemur fram að það skuli fyrst og fremst haft til viðmiðunar við ákvörðun fiskverðs. Það má því segja að það sé grundvöllur þeirrar löggjafar.
Að því er varðar fsp. hv. 4. þm. Vesturl., þá hef ég ekki tekið þátt í samtölum um þau mál, sem hann ræddi um, í dag eða gær. Hins vegar er það rétt, sem hann sagði hér, að fulltrúar frystiiðnaðarins sérstaklega hafa miklar áhyggjur af afkomu sinni á árinu 1986. Þetta kemur skýrt fram í töflu 2 á bls. 5 sem er fskj. með þessu frv. Þar kemur fram að ef miðað er við 6% vexti í ársgreiðslu er frystingin án hagnaðar eftir fiskverðsákvörðun en söltun með 5,7% hagnað. Hér er miðað við það kaupgengi sem var á bandaríkjadollar þegar fiskverðsákvörðun var tekin, þ.e. 42,30, en því miður hefur dollarinn veikst nokkuð síðan og, ef ég man rétt, var hann kominn í 41,30 í gær. Það er því ljóst að hér er teflt mjög tæpt og launahækkanir frystiiðnaðarins verða því þess valdandi að nokkur taprekstur verður á frystingu á árinu 1986 miðað við 6% ársgreiðslu.
Það er hins vegar reynslan að á vetrarvertíðinni gengur þessi atvinnurekstur yfirleitt betur vegna þess að hér er almennt um blandaðan rekstur að ræða, þ.e. frystingu og söltun saman. Hins vegar versnar oft afkoman þegar líður að sumri af ýmsum ástæðum sem ég þarf ekki að rekja hér.
Hitt er svo annað mál að afkoma botnfiskveiðanna er mun betri en við höfum lengi áður séð. Tap veiðanna hefur verið mikil byrði á vinnslunni um langt skeið. Skv. þeim tölum, sem hér koma fram um afkomu botnfiskveiðanna, kemur í ljós að þar er nokkur hagnaður og mun það að sjálfsögðu breyta mjög miklu fyrir vinnsluna.
Það er hins vegar mikils virði fyrir sjávarútveginn ef samningar nást sem leiða af sér þá lækkun á verðbólgu sem um er rætt. Það mun t.d. koma fram í lækkuðum fjármagnskostnaði og miklu meiri stöðugleika en við erum vön. Það er sjávarútveginum mjög mikils virði og mikið framtíðarmál fyrir hann. Þess vegna má segja að það sé allmiklu til fórnandi að slíkt geti orðið raunin.
Hins vegar skiptir vissulega miklu máli hvernig framtíðarþróunin verður, t.d. hver þróun dollarans verður. Getum við reiknað með fiskverðshækkunum á okkar mörkuðum í Bandaríkjunum með vorinu? Öll þessi atriði hljóta að skipta meginmáli þegar það er metið hvort það, sem nú er verið að reyna, muni takast eins og við vonum.
Ég geri mér grein fyrir því að afkoma frystingarinnar er mjög tæp við þessi skilyrði. Hins vegar er ég þeirrar skoðunar að betri afkoma söltunar en áður hefur verið og betri afkoma botnfiskveiðanna geri það mögulegt fyrir frystiiðnaðinn að standa að þeim málum sem nú er verið að tala um. Í því sambandi hefur verið rætt um að létta einhverjum gjöldum af útflutningsiðnaðinum, m.a. til þess að gera honum enn frekar mögulegt að standa að þeim samningum sem nú er sem mest rætt um. Hins vegar hef ég ekki heyrt meira um það mál í dag en hv. þm. því að ég hef aðeins heyrt það í fréttum og hef ekki tekið þátt í fundahöldum á þessum degi um þau mál. Ég get þess vegna því miður ekki upplýst hann frekar um það.