26.02.1986
Efri deild: 51. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2775 í B-deild Alþingistíðinda. (2379)
288. mál, kostnaðarhlutur útgerðar
Skúli Alexandersson:
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svör hans og fagna þeim bjartsýnistóni sem þar varð vart í sambandi við fiskvinnsluna. Við verðum allir að vona að það standist að þróun mála verði ekki á þann veg að sú staða, sem hér er tíunduð, verði jafnvel verri en gert er ráð fyrir í töflu 2 á bls. 5, að frystingin standi í járnum. Með þeirri gengisbreytingu, sem hefur átt sér stað síðan þessi fiskverðsákvörðun var tekin, hefur, eins og ráðherra benti á, hnigið á ógæfuhlið í sambandi við Bandaríkjamarkað. Þar er því þegar kominn þáttur sem er á hinn verri veg.
En stöðugt verðlag, minnkandi útgjöld, geta vegið upp á móti þessu. Fjármagnskostnaður er einn stærsti gjaldaliður í fiskvinnslunni, kemur sjálfsagt í mörgum tilfellum strax á eftir launakostnaði eða er jafnvel svipaður. En miðað við fréttir í dag - það er kannske ekki að marka þær allar, þær eru kannske gripnar úr lausu lofti - um að Seðlabankastjórn og bankamenn hafi setið á fundi og verið að ræða um það hvað skuli gera ef þeir samningar verða undirskrifaðir sem liggja í loftinu, þá fannst mönnum ekki stórmannlegt að þegar verið er að tala um að færa eigi verðbólguna niður í 7 stig ætluðu blessaðir bankamennirnir að halda vaxtafætinum samt yfir 20%. Ég sé að hv. þm. benda hér á bankaráðsmann Seðlabankans og væri gaman að heyra hvað rætt hefur verið í þeirri stofnun um þessa hluti.
En ef gengið verður frá því í dag eða á morgun að stefnt verði að því að verðbólga verði ekki meiri en 7% og áfram skuli halda vöxtum í 20% eða þar yfir held ég að við værum ekki að minnka raunvexti gagnvart fiskvinnslu og öðrum atvinnugreinum í landinu heldur jafnvel að auka þá. Það gefur auga leið að ef verið er að ganga frá málum gagnvart atvinnuvegum og gagnvart launþegum í landinu, minnka verðbólgu, þá hlýtur það að fylgja eftir að fjármagnskostnaður verði lækkaður um leið, en það verði engin framtíðarsýn. Skv. fréttum Ríkisútvarpsins gætu vextir jafnvel verið komnir niður í 12% í sept. En það átti ekki að gera jöfnum höndum og skrifað væri undir samninga við launþega í landinu og gengið út frá rekstrargrundvelli atvinnufyrirtækjanna. Ég tel að lækkun vaxta niður í 20% núna sé raunverulega að þyngja vaxtabyrðina hjá sjávarútveginum en ekki að létta hana.
Ég taldi ástæðu til þess að benda einmitt á þennan þátt sem atvinnufyrirtækin, fiskvinnslan, hljóta fyrst og fremst að spyrja um þegar verið er að ganga frá fiskverði, þegar verið er að ganga frá launakostnaði, hver á fjármagnskostnaðurinn að vera? Ætlar bankakerfið í landinu áfram að halda þeirri stefnu varðandi vaxtakostnað gagnvart aðalatvinnuvegunum að þeir séu að borga til þeirra hluta hærri gjaldahlut en til launa, að þegar verið er að lækka launin, halda í við launin sé ekki hægt að gera sömu hluti gagnvart fjármagnskostnaðinum?