27.02.1986
Sameinað þing: 53. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2829 í B-deild Alþingistíðinda. (2403)
Kjarasamningar
Svavar Gestsson:
Herra forseti. Ég vil byrja á að taka það fram að ég mun að sjálfsögðu virða það samkomulag sem gert hefur verið um þessa umræðu, sem byggist á því að um sé að ræða stuttar ræður af hálfu talsmanna flokkanna, sérstaklega þó með tilliti til þess að umræður um þetta mál munu fara fram í Ed. í kvöld og Nd. á morgun og þá gefst góður tími til að fara hér yfir einstök efnisatriði og einnig að skiptast á skoðunum almennt um efnahagsmál með þeim hætti t.d. sem hæstv. fjmrh. fór út í hér áðan og tafði umræðuna í almennu pólitísku karpi að mínu mati.
Ég hlýt þó við þessa umræðu að nefna hér tvö atriði, einstök efnisatriði, sem óhjákvæmilegt er að fá upplýsingar um strax. Það er í fyrsta lagi varðandi aldraða og ellilífeyri þeirra. Ég vil inna ríkisstj. eftir því hvernig hagi til varðandi aldraða og ellilífeyri þeirra.
Ég vil inna ríkisstj. eftir því hvernig og hvenær ætlunin er að hækka ellilífeyri og tekjutryggingu í samræmi við niðurstöðu kjarasamninganna. Hvenær verður reglugerð gefin út í þeim efnum og á hvaða forsendum mun hún byggjast? Ég held að nauðsynlegt sé að skýra þetta mál aðeins vegna þess að það er kannske örlítið flóknara að taka um þetta ákvörðun en venjulega þar sem í kjarasamningunum sem nú er verið að gera er gert ráð fyrir sérstökum launabótum handa láglaunafólki. Það er mín skoðun að það sé eðlilegt að taka tillit til þessara launabóta um leið og þessi hækkun á ellilífeyri er ákveðin og til viðbótar við hina almennu hækkun. Ég vil sem sagt inna hæstv. fjmrh. sérstaklega eftir þessu atriði því að það er mikilvægt að það liggi fyrir.
Í annan stað er óhjákvæmilegt að spyrja í upphafi þessa máls: Hvað þýðir mgr. á miðri síðu 3 í því plaggi sem ríkisstj. dreifði til aðila vinnumarkaðarins og fjölmiðla fyrr í dag, en þar stendur, með leyfi forseta:
„Gert er ráð fyrir að þeim halla, sem myndast af þessum sökum, verði mætt með áðurnefndri lántöku hjá lífeyrissjóðum, annarri lántöku hjá innlendum lánastofnunum, lækkun útgjalda og nokkurri hækkun tekna ríkissjóðs.“
Hæstv. fjmrh. var að lýsa því yfir áðan að ekki kæmi til greina að hækka skatta, ef ég tók rétt eftir, og ég vil þess vegna spyrja hann: Hvað þýðir þessi yfirlýsing um nokkra hækkun tekna ríkissjóðs og lækkun útgjalda? Hvaða útgjöld eru þetta? Hvaða tekjur eru þetta? Ég spyr í tilefni af yfirlýsingu aðila vinnumarkaðarins sem var gefin út í gær og afhent ríkisstj. í gærkvöld, en þar segir svo á síðu 5, með leyfi hæstv. forseta:
„Að öðru leyti verður að afla fjár með lækkun útgjalda og/eða innlendri fjármögnun án þess þó að það hafi áhrif á kaupmátt launa, velferðarþjónustu almennings eða stöðu útflutnings- og samkeppnisgreina.“
Ég vil sem sagt inna hæstv. fjmrh. eftir því hvaða nánari skýringar hann hefur á þessum þætti sem komið er að í 2. mgr. á bls. 3 í yfirlýsingu ríkisstj.
Herra forseti. Ég hygg að þó að ráðherrarnir reyni að bera sig mannalega hér í dag hafi ríkisstj. aldrei verið niðurlægð með jafneindregnum hætti og nú hefur gerst. Alþýðusamband Íslands, Vinnuveitendasamband Íslands og Vinnumálasamband samvinnufélaganna hafa sameinast um að lýsa einróma vantrausti á ríkisstj. Þeir hafa í sameiningu ákveðið allar aðalforsendur efnahagslífsins fyrir árið 1986 og ríkisstj. á auðvitað engan annan kost en að hlýða lið fyrir lið eða segja af sér ella. Raunar væri það síðarnefnda sæmst. Ráðherrarnir eru í raun engir ráðherrar. Stéttaþing hefur samþykkt á þá vantraust með samhljóða atkvæðum.
Samningarnir ákveða í fyrsta lagi helstu forsendur kjaramála. Kaupmáttur eykst um 4,5% að jafnaði frá s.l. ári til loka samningstímabilsins og um 8% frá upphafi til loka samninga.
Í öðru lagi: Samningarnir ákveða fyrir ríkisstj. stefnu í gengismálum af því að ríkisstj. er ekki treystandi til þess.
Í þriðja lagi: Samningarnir ákveða stefnuna í verðlagsmálum og formaður Vinnuveitendasambands Íslands lýsir því yfir að hann muni beita sér sérstaklega fyrir óbreyttu verðlagi en síðan verðlækkunum þegar líður á árið. Ríkisstj. og stefna hennar í verðlagsmálum eru þannig sett út úr kortinu líka. Samningarnir ákveða meginstefnuna í vaxtamálum en þar virðast hafa verið uppi hugmyndir um að þráast við. Skv. blaðafréttum hafði verið gert ráð fyrir að hækka vexti á verðtryggðum lánum en nú er okkur tjáð að það hafi verið dregið til baka.
Samningarnir ákveða meginstefnuna í ríkisfjármálum en ríkisstj. er bannað að leggja á skatta sem rýra kaupmátt og bannað að skera niður opinbera þjónustu. Aðilar vinnumarkaðarins munu hafa bent ríkisstj. á leiðir til að afla tekna en í stað þess hefur ríkisstj. nú ákveðið að taka lán fyrir öllu sama, ef marka má upplýsingar ráðherranna áðan.
Samningarnir ákveða meginstefnuna í húsnæðismálum. Ríkisstjórnarflokkarnir lofuðu að hækka húsnæðislán í 80%. Þessi fyrirheit hafa verið svikin. Nú er hins vegar samið um 70% húsnæðislán. Ríkisstj. ákvað að stela í ríkissjóð 300 millj. kr. af sérstakri fjáröflun til húsnæðismála 1986. Nú er ákveðið að skipa ríkisstj. að skila þeim peningum aftur.
Samningarnir ákveða meginstefnuna í dýrtíðarmálum en ríkisstj. lofaði í upphafi starfsferils síns svipaðri verðbólgu að hámarki og í grannlöndum okkar. Þrátt fyrir þessi fyrirheit var verðbólgan áætluð 30-40% nú fyrir áramótin.
Aðilar vinnumarkaðarins taka einnig ráðin af ríkisstj. í þessum efnum og ákveða að nota góðærið til þess að keyra verðbólguna niður fyrir 10% á árinu. Fyrir liggja spár um að verðlag, þar á meðal lánskjaravísitala, hækki um 5% til ársloka en kauptaxtar um 13,6%. Þarna er verið að snúa misgenginu við með því að hækka kaupið meira en lánskjaravísitöluna.
Samningarnir ákveða meginstefnuna varðandi búvöruverð og gerð hefur verið krafa til ríkisstj. um að auka niðurgreiðslur um allt að 500 millj. kr.
Samningarnir ákveða meginstefnu í lífeyrismálum. Þar er lögð áhersla á trygga lífeyrissjóði og hærri iðgjöld en áður og þar með kemur fram í samningunum fyrirhyggja gagnvart þeim sem þurfa að nota sjóðina á komandi árum.
Ríkisstj. hefur frá upphafi, eins og kunnugt er, hafnað hvers kyns sjálfvirkri tengingu verðlags og launa. Í samningunum er ákveðið að taka allar launaforsendur samninganna til endurskoðunar á þriggja mánaða fresti ef verðlag fer úr böndunum umfram tiltekin mörk í samningunum.
Þannig mætti lengi telja, herra forseti. Gengismál, kjaramál, ríkisfjármál, búvöruverð, húsnæðismál, lífeyrismál og síðan einstök félagsleg réttindi. Þar er stundum um að ræða þingmál sem hafa verið að velkjast í þinginu óafgreidd árum saman. Dæmi: Frv. Ragnars Arnalds um fjarvistarrétt foreldra í veikindum barna eða frv. Guðmundar J. Guðmundssonar og Karvels Pálmasonar um rétt verkafólks gagnvart uppsögnum.
Nú hefur verið ákveðið að bæta verulega rétt fiskverkunarfólks. Auk almennu launahækkunarinnar fær fiskvinnslufólk samtals þriggja launaflokka hækkun að uppfylltum ákveðnum skilyrðum eftir fastráðningu, þ.e. hækkun umfram það sem annars staðar gerist. Þeirri niðurstöðu vil ég fagna sérstaklega því að ég tel að hún sé í senn jafnréttismál, því að hér eiga konur í hlut að yfirgnæfandi meiri hluta, og byggðamál því meginhluti fiskvinnslunnar fer fram á landsbyggðinni. Þannig hafa kjarasamningarnir beinlínis knúið fram lagabreytingar sem stjórnarliðið hefur skellt skollaeyrum við árum saman hér á hv. Alþingi.
Í niðurstöðu kjarasamninganna eru ýmsir jákvæðir þættir. Þar ber að mínu mati hæst húsnæðismálin, sem snerta einnig þá sem hafa fengið lán á undanförnum árum, lífeyrissjóðina, réttindamál fiskverkunarfólks og síðast en ekki síst ákvörðun verkalýðshreyfingarinnar og atvinnurekenda um að nýta góðærið til þess að keyra niður verðbólguna og þar með að hafna stjórnarstefnunni. Ég hefði viljað sjá meiri aukningu kaupmáttar launa út úr þessum kjarasamningum því að til þess eru allar efnahagslegar forsendur.
Þessir kjarasamningar eru aðeins áfangi, skref í áttina. Næsta skref þarf að taka á pólitískum vettvangi, þar sem teknar verði ákvarðanir um efnahagsráðstafanir sem breyti skiptahlutföllunum á Íslandi til frambúðar í þágu hins vinnandi manns. Þar þarf að tryggja rétt þeirra sem enn búa við skarðan hlut nauðungaruppboða og kaupráns ríkisstj. Í þeim átökum verður markmiðið það sem liggur í augum uppi fremur nú í dag en nokkru sinni fyrr. Ríkisstj., sú sem nú situr, á að fara frá. Þjóðin þarf að taka undir vantraust á ríkisstj. og stjórnarflokkunum sem Alþýðusamband Íslands, Vinnumálasamband samvinnufélaganna og Vinnuveitendasamband Íslands hafa samþykkt. Næsta tækifæri sem gefst í þeim efnum eru almennar kosningar til bæjar- og sveitarstjórna eftir rétta þrjá mánuði. Næstu daga og vikur verður svo að fylgjast rækilega með því að ríkisstj. gegni - henni er skipað að breyta um stefnu - að hún standi við samningsákvæðin í verðlagsmálum, gengismálum og húsnæðismálum. Það verður fylgst með ríkisstj. og henni veitt ýtrasta aðhald bæði hér á Alþingi og líka úti í þjóðfélaginu. Stjórnin verður ekki látin komast upp með að svíkja gefin fyrirheit. Þar má hvergi gefa eftir. Ríkisstj. má ekki komast upp með svik og pretti í þessum efnum. Vissulega getur enginn treyst henni að fenginni reynslu. En meðan hún skammast ekki til að fara frá verður þjóðin að fylgjast með hverju fótmáli þeirra manna sem enn bera starfsheitið „ráðherrar“ þrátt fyrir sögulegt vantraust stéttanna á Íslandi.