27.02.1986
Efri deild: 52. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2849 í B-deild Alþingistíðinda. (2414)
303. mál, ráðstafanir í ríkisfjármálum
Eiður Guðnason:
Virðulegi forseti. Það er svolítið sérstæð og óvenjuleg staða sem hér er uppi. Við hv. þm. fengum í hendur núna upp úr kl. hálf níu í kvöld þetta frv. til laga um ráðstafanir í ríkisfjármálum, verðlags- og lánsfjármálum 1986, sem hæstv. fjmrh. hefur nú nýlokið við að mæla fyrir. Það hefur því ekki gefist mjög langur tími til þess að kynna sér þetta frv. Ég hygg að fæstir þm. hafi haft tíma til að lesa það frá upphafi til enda, hvað þá að tileinka sér þær skýringar sem gefnar eru hér í athugasemdunum.
Þetta eru náttúrlega engin sérstök fyrirmyndarvinnubrögð. Hins vegar eru þetta sérstakar aðstæður sem eru nú uppi og ber að taka tillit til þess. Raunar hefur nokkur umræða orðið hér á hinu háa Alþingi nú þegar um þetta mál, þar sem var umræða utan dagskrár í Sþ. fyrr í dag.
Fleiri en einn og fleiri en tveir hafa látið þau orð falla að við stæðum nú á nokkrum tímamótum þegar þetta frv. er lagt fram í kjölfar þeirra samninga sem aðilar vinnumarkaðarins hafa orðið ásáttir um og undirritaðir voru um kl. 18 í kvöld. Öllum er ljóst að sá árangur, sem menn tala um að ná, og það markmið, sem menn tala um að stefna hér að, er algjörlega undir því komið hvernig ríkisstj. tekst að halda á þessum málum.
Ég held að það leiki ekki nokkur minnsti vafi á því að yfirgnæfandi meiri hluti þjóðarinnar fagnar þeirri niðurstöðu sem orðið hefur í þessum kjarasamningum, ég held að það sé alveg ljóst. Því hefur þegar verið lýst yfir af hálfu Alþfl., okkar jafnaðarmanna, að við viljum fyrir okkar leyti allt til vinna til þess að sá árangur, sem stefnt er að með þessum samningum, náist í reynd. Hér er með nokkrum hætti verið að fara nýjar leiðir, leiðir sem við höfum lengi talað um að ætti að fara, því að það er okkar skoðun að hér sé verið að bjóða upp á eins konar lífskjarasáttmála og við erum reiðubúnir að gera það sem í okkar valdi stendur til að stuðla að því að þessi lífskjarasáttmáli geti orðið að veruleika. En staðreyndin er sú að x-in og y-in í þessu dæmi eru enn sem komið er býsna mörg.
Það er kannske líka svolítið umhugsunarefni að rekja það hvernig þetta gengur fyrir sig og hvernig þetta mál ber að hér á hinu háa Alþingi. Ríkisstj., sem hafa ætti frumkvæði í efnahagsmálum, hefur ekki verið neinn gerandi í þessu máli. Hún hefur miklu frekar verið þolandi. Það eru aðilar vinnumarkaðarins, verkalýðssamtökin og samtök vinnuveitenda, sem hafa haft frumkvæði í þessum efnum.
En það sem gerir þetta þó fyrst og fremst mögulegt eru aðstæður sem við höfum enga stjórn á og höfum ekkert gert til að hafa áhrif á eða stýrt að einu eða neinu leyti, þ.e. efnahagsþróun úti í heimi, mikil lækkun á olíuverði, hugsanleg vaxtalækkun erlendis og hækkun á okkar afurðum. Við erum alltaf að tala um efnahagslegt sjálfstæði, sem er auðvitað mikils virði, en þetta hlýtur að leiða hugann að því hvað við í rauninni ráðum litlu um hina eiginlegu afkomu okkar þegar allt kemur til alls, vegna þess að hvort sem okkur líkar það betur eða verr erum við hluti af miklu stærri efnahagsheild þar sem við erum fyrst og fremst þolendur, þar sem við búum ekki til forsendur heldur koma þær til okkar og við verðum að hlíta þeim. Þetta er umhugsunarefni í þessu sambandi.
En nú hafa þær aðstæður skapast að það er tækifæri til að gera tilraun sem ekki hefur verið gerð áður. Ég endurtek það og ítreka að við viljum stuðla að því að sú tilraun verði gerð og meira en það, við viljum stuðla að því að hún megi takast. En hér skiptir höfuðmáli hvernig til tekst um framkvæmdina. Eins og þetta er framkvæmt núna er þetta tekið að láni. Eins og hæstv. fjmrh. skýrði hér út áðan byggist þetta allt á lántöku, ekki þó erlendum lántökum sem betur fer, heldur verður það fjármagn, sem hér um ræðir, tekið að láni innanlands og hallinn á ríkissjóði aukinn. Þannig er ekki hægt að halda áfram, þetta er bara til bráðabirgða. Þess vegna skiptir höfuðmáli hvernig framhaldið verður og hvernig tekst til með róðurinn nú þegar lagt hefur verið frá landi.
Um þetta frv., sem - ég endurtek - við höfum ekki haft aðstöðu til að kynna okkur svo sem vert væri á þeim tíma sem liðinn er frá því að því var dreift hér, verður fjallað sameiginlega í fjh.- og viðskn. beggja deilda strax í fyrramálið. Það er alveg ástæðulaust annað en að greiða götu þessa máls hér í gegnum þingið vegna þess að hér er búið að tilkynna ýmsar ráðstafanir, m.a. í tollamálum, sem gera það að verkum að það er ekki hægt að hafa þetta mál hangandi hér inni í þinginu eða svífandi í lausu lofti í langan tíma. Það verður að afgreiða það á tiltölulega skömmum tíma enda hygg ég að það hafi tekist allgott samkomulag milli stjórnar og stjórnarandstöðu um að þetta mál verði afgreitt hér í síðasta lagi á laugardag.
Auðvitað er margt gott um þær ráðstafanir að segja sem hér er gert ráð fyrir, svo sem tollalækkanir á matvælum, bifreiðum og ýmsum hátollatækjum, þar sem við höfum verið með langtum hærri tolla en þjóðirnar hér í kringum okkur. Það nægir t.d. að nefna myndbandstæki o.fl. Þessi tollalækkun er raunar bara viðurkenning á staðreyndum, að við getum ekki haldið uppi svona miklu hærri tollum en grannþjóðir okkar vegna þess að það þýðir það, sem menn geta raunar lesið um í blöðunum næstum því á hverjum degi, að ólöglegur innflutningur tækja af þessu tagi vex. Það hefur verið að gerast núna að undanförnu. Þetta er bara viðurkenning á þeirri staðreynd að þetta verður að breytast. Þau tæki, sem er svona auðvelt að flytja með sér á milli landa, eru kannske þrefalt ódýrari í tveggja klst. ferðafjarlægð frá okkur en þau eru hér. Það gengur ekki.
Ég fagna því sérstaklega að nú skuli eiga að lækka tolla á hjólbörðum. Það er í fyrsta lagi öryggisatriði. Í öðru lagi vil ég minna á að það eru a.m.k. fjögur ár síðan Alþingi samþykkti þáltill., sem undirritaður var fyrsti flm. að, um að lækka tolla á hjólbörðum en sú till. hefur ekki verið framkvæmd. Það er hins vegar umhugsunarefni líka að frumkvæðið að því að framkvæma þá samþykkt Alþingis skuli koma ofan úr Garðastræti. En það er svo sem sama hvaðan gott kemur og ber ekkert að vanmeta það. Þetta er tvímælalaust af hinu góða.
Hæstv. fjmrh. fór hér yfir þá lækkun sem fyrirhuguð er á ýmsum gjöldum opinberra fyrirtækja. Þá hefur komið fram fyrirhuguð lækkun á taxta Hitaveitu Reykjavíkur. Ég vildi í því sambandi spyrja hvað áformað hefur verið með taxta annarra hitaveitna á landinu, hvort þar sé gert ráð fyrir sams konar lækkun. Ég sé ekki að það sé auðvelt fyrir aðrar hitaveitur. Ég held að það sé alveg nauðsynlegt að fá svör við þessu því að nú er það vitað að sumar af þessum hitaveitum, og ekki þær minnstu, utan Reykjavíkur eiga við mjög alvarlega erfiðleika að stríða vegna erfiðra dollaralána. Á þessi lækkun á hitaveitugjöldunum eingöngu að koma hér til framkvæmda á Reykjavíkursvæðinu þar sem hennar var kannske langminnst þörf? Um þetta vildi ég fá upplýsingar frá hæstv. fjmrh.
Ég sé ekki ástæðu til að fara ítarlega á þessu stigi í einstakar greinar, t.d. að því er varðar allan VII. kaflann um það sem varðar breytingar á tiltölulega nýsamþykktum lánsfjárlögum fyrir árið 1986. Það gefst betra tækifæri til að fræðast um þetta við nefndarstörfin í fyrramálið þó að sá tími sé kannske af skornum skammti sem þar er til umráða.
Eins og ég vék að áðan urðu tveggja klst. umræður um þetta mál í Sþ. í dag. Hæstv, fjmrh. sá þá ástæðu til að helga hluta ræðu sinnar þeim till. sem af hálfu Alþfl. voru lagðar fram við afgreiðslu fjárlaga. Honum þótti ekki mikið til þeirra koma og hafði raunar um þær hin háðulegustu orð. Það er auðvitað hans mál. En ég hygg þó að þessar till., sem fram voru lagðar af hálfu Alþfl., hafi verið eina tilraunin sem gerð var af hálfu stjórnarandstöðunnar til að koma fram einhverjum breytingum á þessum fjárlögum. Í þetta var lögð mikil vinna. Það voru gerðar till. um að breyta t.d. rannsóknastofnunum atvinnuveganna í sjálfseignarstofnanir. Það voru gerðar till. um niðurskurð á ýmsum óarðbærum gæluverkefnum, svo sem fjárfestingarstyrkjum til hefðbundins landbúnaðar þar sem menn viðurkenna nú að offjárfesting í landbúnaði sé einn af meginþáttum þess vanda sem þar er við að etja, offjárfesting m.a. í „mjólkurframleiðslumannvirkjum“, svo ég noti nú orð sem einn af embættismönnum bændasamtakanna notaði á þessum fundum sem við þm. Vesturl. sátum og hlýddum á. Það tók mig svolitla stund að átta mig á því hvað hér væri um að ræða en svo skildi ég að það eru hlöður og fjós fyrst og fremst, „mjólkurframleiðslumannvirki“.
Við lögðum til ýmsar býsna róttækar breytingar. En Sjálfstfl., sem er íhaldsflokkur og kerfisflokkur, er slíkum breytingum á ríkiskerfinu andsnúinn. En það er svo sem engin ástæða til að fara sérstaklega út í þess háttar umræður núna á þessu stigi. Mér þykir líklegt að þótt hæstv. fjmrh. sæi ástæðu til að víkja að þessu í dag telji hann ekki ástæðu til að gera þetta að meginatriði í umræðunum um þá kjarasamninga sem við erum að ræða hér.
Hæstv. fjmrh. sagði líka að oftlega hefðu aðilar vinnumarkaðarins setið og gert kjarasamninga gegn ríkisstjórninni. Það var hnyttilega á það bent í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins að það var fyrrv. framkvæmdastjóri Vinnuveitendasambandsins um allmörg ár sem mælti þessi orð. Ekki veit ég hvort hann hefur þar sérstaklega verið að tala um þann tíma er hann stýrði samtökum vinnuveitenda, að þá hafi verið gerðir kjarasamningar gegn þeim ríkisstjórnum Íslands sem þá sátu, en það kemur sjálfsagt í ljós. Þetta voru svolítið einkennileg ummæli og eftirtökuverð.
Ég veit ekki, virðulegi forseti, hvort ástæða er til að tala um þetta mikið lengra mál að sinni. Hér segir um fjármagnið til húsnæðiskerfisins í skýringum við 22. og 23. gr. að ráðgert hafi verið að auka skuldabréfakaup lífeyrissjóðanna af Byggingarsjóði ríkisins um 925 millj. á árinu 1986. Ráðgert sé að af þessu fé, þ.e. af þessum 925 millj., komi 300 millj. sem viðbótarfjármagn til sjóðsins og bætist við 200 millj. kr. sem áformað er að veita sérstaklega til þeirra sem eiga í greiðsluerfiðleikum. Þá er gert ráð fyrir að 625 millj. fari til almennra útlána. En framlag ríkissjóðs til Byggingarsjóðs ríkisins lækkar á móti um 625 millj. Ég sé því ekki betur en að það eina sem bætist við í sjóðinn séu þessar 300 millj. sem fara til þeirra sem eiga í sérstökum greiðsluerfiðleikum. Það eru öll ósköpin. Hafi ég skilið þetta rangt leiðréttir hæstv. ráðherra það væntanlega hér.
Í ræðu sinni í dag talaði hæstv. ráðh. líka um þá till. okkar m.a. að leggja skatt á bankana. Þá viðhafði hann þau orð að ef það yrði gert gæti starfsfólk bankanna ekki fengið sambærilegar launahækkanir og í þessum samningum felast. Þannig heyrði ég hans orð í dag og þótti mér einkennilega til orða tekið. Ég sé ekki að það þurfi að hafa nokkur áhrif á það hvort starfsfólk bankanna fær launahækkun eða ekki hvort lagður er skattur á þá eins og um hefur verið talað.
Það er alveg ljóst að með því sem nú er verið að gera og með því að ákveða að taka allar þessar aðgerðir til láns, eins og gert er - allt er þetta upp á krít eins og er - er slegið á frest ákvörðunum um hvernig eigi að afla tekna. Auðvitað kemur að því síðar. Við Alþýðuflokksmenn höfum lagt fram ýmsar till. í þeim efnum. Þær standa eftir sem áður. Það kemur að því að ríkisstj. verður að gera það upp við sig hvernig á að borga þennan brúsa. Það er ekki gert í þessum till. hér en því verður ekki slegið endalaust á frest.
Ég ítreka að lokum, virðulegi forseti, að hér er verið að gera tilraun sem ég held að þjóðin bindi miklar vonir við. Hér hafa verið vaktar vonir og það væri þess vegna verr farið en heima setið ef svo óhönduglega tekst til að ríkisstj. heppnast að glutra þessu niður. Ég vona að svo verði ekki og ítreka það af hálfu okkar Alþýðuflokksmanna að við viljum greiða fyrir því að sá árangur, sem stefnt er að með þeim launasamningum sem hér eru til umræðu í formi þessa frv., náist í reynd. En með þessu frv. er í rauninni bara hálf sagan sögð. Það er hinn þægilegi hluti sögunnar sem búið er að segja en hinn óþægilegi sem er eftir.