27.02.1986
Efri deild: 52. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2860 í B-deild Alþingistíðinda. (2418)

303. mál, ráðstafanir í ríkisfjármálum

Jón Kristjánsson:

Herra forseti. Það er ekki ástæða til að lengja mikið þessar umræður um það frv. sem hér liggur fyrir um ráðstafanir í ríkisfjármálum, verðlags- og lánsfjármálum. Þó vildi ég ekki láta hjá líða að koma inn á örfá atriði við 1. umr. málsins, en það má geta þess að ég á sæti í þeirri nefnd sem málið fer til að lokinni þessari umræðu og hef því tækifæri til þess að fjalla um það nánar þar.

Ég vildi lýsa því við þessa umræðu að við framsóknarmenn stöndum heils hugar að þessu frv. Við teljum hér hafa verið farið inn á farsæla leið, hjá því hafi ekki verið komist að ríkisvaldið greiddi fyrir kjarasamningum og hér hafi verið farið inn á nýjar brautir þar sem samið er um lífskjör en ekki prósentur eða krónutölur. Það hefur oft viljað brenna við að kjarabæturnar hafa verið teknar af fólki að samningum loknum og gerðir hafa verið óraunhæfir kjarasamningar. Það er í anda okkar framsóknarmanna hvernig að þessum samningum hefur verið staðið. Við höfum álitið að ríkisvaldið þyrfti að greiða fyrir kjarasamningum en við höfum hafnað þeim kenningum að ríkisvaldið eigi ekki að koma þar neitt nálægt og menn eigi að berjast án afskipta þess. Hér hefur verið samið um kaupmátt en ekki prósentur og það teljum við farsælt skref og rétt, þótt vissulega sé það rétt sem fram hefur komið að hér er veruleg áhætta tekin í ríkisfjármálum og í gengismálum því við ráðum ekki gengisþróuninni og fast gengi getur komið atvinnuvegunum illa ef gengisþróunin á erlendum gengismörkuðum er óhagstæð.

Eitt lykilatriðið í þeim samningum sem hafa verið gerðir er að verðbólgan á að fara lækkandi og fara niður í eins stafs tölu. Þetta er afar mikið atriði og mikið á sig leggjandi til að ná þessu marki. Minnkandi verðbólga þýðir minni fjármagnskostnað fyrir atvinnuvegina, fyrir fólkið í landinu sem hefur verið að kikna undir þeim fjármagnskostnaði. Undirrót þessa fjármagnskostnaðar er verðbólgan í landinu. Það vill oft gleymast þegar verið er að ræða um þær drápsklyfjar sem fjármagnskostnaðurinn er. Þess vegna er mikið á sig leggjandi til þess að ná niður verðbólgunni og skapa það jafnvægi í efnahagsmálum sem minnkandi verðbólga hefur í för með sér.

Ég legg á það áherslu að ríkisfjármálin verður að skoða vel í kjölfarið á þessum aðgerðum. Þetta frv. hefur í för með sér verulegan halla á ríkissjóði og við það ástand verður náttúrlega ekki búið til langframa.

Ég legg á það áherslu að þetta frv. fái greiða afgreiðslu og mun fyrir mitt leyti reyna að greiða fyrir því eins og mögulegt er. Fjh.- og viðskn. beggja deilda munu koma saman til sameiginlegs fundar í fyrramálið þar sem farið verður yfir frv. og þeir aðilar kallaðir til sem stjórn og stjórnarandstaða óska eftir að fá til viðræðu til skýringar á einstökum þáttum þess, en frv. var lagt fram hér í kvöld eins og komið hefur fram. Það hefur hlotið bærilegar undirtektir svo ég efast ekki um að það fær hér afgreiðslu fyrir helgi eins og nauðsynlegt er til þess að þær aðgerðir sem frv. fjallar um geti komið til framkvæmda um mánaðamótin.

Ég vil í lokin endurtaka það að við framsóknarmenn álítum að hér hafi verið tekið rétt skref þó að vissulega sé okkur ljós áhættan sem er tekin með þessum aðgerðum.