27.02.1986
Efri deild: 54. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2869 í B-deild Alþingistíðinda. (2427)
303. mál, ráðstafanir í ríkisfjármálum
Frsm. 4. minni hl. (Sigríður Dúna Kristmundsdóttir):
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir nál. 4, minni hl. fjh.- og viðskn. um frv. til l. um ráðstafanir í ríkisfjármálum, verðlags- og lánsfjármálum fyrir árið árið 1986. Auk mín stendur að þessu nál. hv. þm. Stefán Benediktsson sem er áheyrnarfulltrúi BJ í fjh.- og viðskn. Ég vil taka það fram áður en ég les nál. að ráðrúm til að rita og ganga frá þessu nál. var nánast ekkert og það ber þess merki, bæði hvað varðar framsetningu og málfar, en það er væntanlega nokkuð sem laga má á síðari stigum málsins. Þetta nál. hljóðar svo, með leyfi forseta:
„Aðilar vinnumarkaðarins hafa nú gert með sér nýjan kjarasamning sem byggður er á margvíslegum aðgerðum í stjórn efnahagsmála. Ríkisstj. hefur fyrir sitt leyti samþykkt þessar efnahagsaðgerðir og er þær m.a. að finna í þessu frv. Álit 4. minni hl. fjh.- og viðskn. á þessum aðgerðum er:
1. Ljóst er að frumkvæðið í stjórn efnahagsmála er ekki lengur í höndum Alþingis og ríkisstj. Í stað þess að leggja sjálf þann efnahagsgrunn sem frjálsir samningar geta byggst á lætur ríkisstj. aðila vinnumarkaðarins leggja þennan grunn fyrir sig og gerir einfaldlega þeirra tillögur að sínum. Verk Alþingis er samkvæmt þessu að stimpla þeirra tillögur og gera að lögum og breyta með því þeim lögum um skipan ríkisfjármála sem það er sjálft nýbúið að samþykkja.“ - Ég vil skjóta því hér inn í að þetta er það atriði sem ég gerði einkum að umtalsefni í utandagskrárumræðunni hér á hv. Alþingi í gær.
„2. Ráðrúm Alþingis til að skoða gaumgæfilega þessar aðgerðir áður en þær eru lögfestar er nánast ekkert og hljóta það að teljast forkastanleg vinnubrögð“, eins og segir hér í nál. og ég vil bæta því við að auðvitað höfum við hv. þm. hér rætt það oftar en einu sinni að þessi vinnubrögð við að setja lög nái ekki nokkurri átt og séu ekki virðingu Alþingis samboðin.
Þá vík ég aftur að nál. Þar segir, með leyfi forseta:
„3. Jafnframt er ekki gefið ráðrúm til að kynna kjarasamningana og meðfylgjandi efnahagsaðgerðir þeim sem málið er skyldast, þ.e. launafólki í landinu. Undarlegt má telja að grundvöllur samninganna sé lögfestur með þeim hætti sem þetta frv. gerir ráð fyrir áður en félagsmenn verkalýðsfélaganna hafa haft færi á að kynna sér hann.
4. Samningarnir sem þetta frv. er hluti af sækja kjarabæturnar að stórum hluta í ríkissjóð, í vasa launþega sjálfra. Eðlilegra er vitaskuld að þeir sem vinnu launþega njóta, þ.e. atvinnurekendur, greiði þessar kjarabætur en ekki ríkið. Smánarlegast er þó hve lítil kjarabót kemur í hlut þeirra sem lægst launin hafa, en í þeim hópi eru konur fjölmennastar. Lægstu laun hækka úr 17 060 kr. á mánuði í 19 272 kr. á mánuði á samningstímanum og má ljóst vera að af þeim launum er ekki hægt að lifa. Sárabæturnar svonefndu, sem áformað er að greiða út tvisvar á árinu til þeirra sem við þessi kjör búa, munu þar litlu um breyta. Það er því ljóst að þessar efnahagsaðgerðir staðfesta einungis þá láglaunastefnu sem hér hefur verið rekin.
5. Þær ráðstafanir sem gerðar eru til lækkunar tolla eru ekki til þess að bæta kjör almenns launafólks heldur fyrst og fremst leikur með framfærsluvísitöluna.“ - Ég vil skjóta þeirri útskýringu hérna inn í að tollalækkanir á bifreiðum, hjólbörðum og því um líku koma ekki þeim til góða sem einfaldlega hafa ekki á efni á að kaupa bifreiðar eða hjólbarða. - „Þessar tollalækkanir kunna þó að leiða til einhverra kjarabóta ef tekst að ná niður lánskjaravísitölunni fyrir bragðið. Hins vegar munu þessar ráðstafanir að öllum líkindum leiða til aukins innflutnings og aukins viðskiptahalla sem ekki er á bætandi.“ - Og ég vil skjóta hér inn í að ég sé hvergi skjalfest nein úrræði til að mæta þeim aukna viðskiptahalla sem af þessu getur leitt. Ef engin úrræði eru fyrir hendi eru forsendur þessara efnahagsaðgerða brostnar og þar með er þetta samkomulag einskis nýtt.
6. Í þessu frv. eru engar tillögur um tekjuöflun heldur er einungis gert ráð fyrir tilflutningi fjármuna innan kerfisins. Sömuleiðis eru mjög óljósar hugmyndir um það hvernig fjármagna á stóran hluta þess kostnaðar sem þessar ráðstafanir hafa í för með sér. Í 1. gr. frv. er talað um að lækka ríkisútgjöld um 860 millj. kr. Engar frekari útskýringar liggja fyrir um það hvernig þetta verður gert. Hætt er við að aukinn niðurskurður í ríkisútgjöldum ásamt lækkun á tekjuskatti og útsvari leiði til þess að dregið verði úr félagslegri þjónustu. Slíkur samdráttur getur einnig haft í för með sér atvinnuleysi. Hvort tveggja mun bitna fyrst og fremst á þeim sem lægstar tekjur hafa.
7. Velgengni þessara kjarasamninga hvílir á forsendum þar sem margar stærðir eru óvissar. Þau fjögur meginatriði sem ekki mega bresta eru: 1) trú fólksins á að þessi leið sé fær, 2) stöðugleiki gengisskráningar, 3) að ríkisstjórnin standi við þau framlög sem hún hefur samþykkt, 4) að verðlag haldist í skefjum. Sú reynsla sem fólk hefur af þessari ríkisstj. hefur ekki gefið tilefni til þess að henni sé sýnt traust nú. Áætlaðar breytingar á raungengi um 2-3% á árinu eru háðar mörgum breytum sem stjórnvöld ráða ekki yfir. Ekki verður enn séð hvernig ríkisstj. ætlar að fjármagna þau framlög sem hún hefur skuldbundið sig til og samþykkt. Engin trygging er fyrir því að verðlag haldist í skefjum þrátt fyrir lækkanir á tollum og fyrirætlanir um verðlagseftirlit eru óljóst orðaðar. Forsendur þessara samninga eru því ekki einungis viðkvæmar, þær eru mjög ótraustar.
Þessir samningar og meðfylgjandi efnahagsaðgerðir eru tilraun til að taka á þessum málum á nýjan hátt sem löngu er tímabært“ - og ég vil skjóta því inn í að það er fúslega viðurkennt. - „Hins vegar breyta þeir ekki þeirri tekjuskiptingu sem nú viðgengst í íslensku þjóðfélagi. Þess vegna og þar sem ríkisfjármálum er þar að auki stefnt í mikla óvissu með þessu frv. getur 4. minni hl. nefndarinnar ekki staðið að samþykkt þess. 4. minni hl. mun því sitja hjá við afgreiðslu þessa frv. Stefán Benediktsson hefur setið fundi nefndarinnar og er samþykkur nál. þessu.“ Undir þetta nál. ritar sá þm. sem hér stendur.
Virðulegi forseti. Ég held að ég hafi ekki lengra mál um þetta í bili, en ég er reiðubúin til að fjalla nánar um þær forsendur, sem þetta nál. byggir á, ef þess er óskað, hér á eftir.