28.02.1986
Neðri deild: 54. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2887 í B-deild Alþingistíðinda. (2438)
54. mál, sveitarstjórnarlög
Félmrh. (Alexander Stefánsson):
Herra forseti. Ég skal ekki lengja þessar umræður mikið en ég verð að segja það að mér, sem gömlum sveitarstjórnarmanni, rennur nú nokkuð til rifja þegar ég heyri ýmislegt koma fram hér í máli hv. þm. Það minnir mig óneitanlega á grein sem birtist í Þjóðviljanum 1984 þegar hinn reyndi sveitarstjóri á Norðfirði fór frá völdum. Þar sagði hann:
„Mér hefur sannast sagna fundist áhugi og skilningur forustumanna flokksins á sveitarstjórnarmálum mjög takmarkaður og það ástand hefur því miður lítið breyst til batnaðar hin síðari ár.“
Ég er ekki að segja þetta einvörðungu til þeirra manna sem hann á við heldur almennt vegna þess sem oft komið hefur fram í þessum umræðum sem ég hef hlustað (Gripið fram í: Hann var nú að tala við sína menn.) mjög gaumgæfilega á.
Ég vil segja það strax að í þessu frv. eru breytingar sem sveitarstjórnarmenn í landinu hafa gert sér grein fyrir að hlutu að koma. Og þeir hafa beðið eftir þessum breytingum árum saman því að það er staðreynd, og það get ég rökstutt ef út í það færi, að núgildandi sveitarstjórnarlög eru orðin það mikill dragbítur á nauðsynlega framvindu sveitarstjórnar hér á landi að það skapast af því tjón. Og einnig mjög mikil vandræði í sambandi við stjórnun ýmissa mála og það á við um réttarstöðu ýmissa byggðarlaga sem við viljum allir verja eftir megni.
Ég sé mig knúinn til þess vegna ummæla sem hér hafa verið látin falla að benda hv. þm. á að þetta frv. hefur verið í mótun í vinnu ákveðinna manna í tæp fimm ár. Í þessu starfi tóku þátt hinir hæfustu menn. Það þori ég að fullyrða. Ég get nefnt menn eins og Jón G. Tómasson, Magnús H. Magnússon í Vestmannaeyjum, Sigurjón Pétursson hér í Reykjavík, Sturlu Böðvarsson í Stykkishólmi, Steingrím Gaut Kristjánsson, sem var formaður nefndarinnar, og Jóhann Einvarðsson, sem tók við af þeim sem hér stendur. Ég vil geta þess að ég hef um 30 ára skeið tekið fullan þátt í mótun sveitarstjórnarmála hér á landi og ég hef átt sæti í flestum þeim nefndum sem hafa verið að endurskoða og gera tillögur um nýja verkaskiptingu og nýja skipan sveitarstjórnarmála hér á landi. Við höfum alltaf rekið okkur á ákveðna þætti í okkar málum sem yrði að breyta. En við höfum viljað gera það þannig að sem mest eining væri um þetta. Og ég get tekið undir það sem kom fram hjá hv. 2. þm. Reykv., sem er frsm. meiri hl. félmn., að ég tel að það væri rangt á þessu stigi máls að fara að lögfesta þriðja stjórnsýslustig á Íslandi. Það er engin samstaða um það mál meðal sveitarstjórnarmanna á Íslandi í dag. Þeir vilja að þessi mál fái að þróast.
Og ég skal segja ykkur annað. Ég var á ráðstefnu úti í Noregi, fyrsta fundi sveitarstjórnarmanna í Noregi eftir að nýsköpun sveitarstjórnarmála þar var tekin upp, þar sem sveitarfélögum var fækkað og fylki stofnuð og allt sem því fylgdi. Og ég minnist þeirrar gífurlegu umræðu sem varð á því þingi norskra sveitarstjórnarmanna. En það situr enn í mér - ásamt fleirum sem sátu það þing héðan af Íslandi - það sem norsku hagfræðingarnir, sem unnu að þessum málum í fjölda ára í Noregi þegar þessi nýskipan var tekin upp, sögðu við okkur. Þeir sögðu:
Þið skuluð passa ykkur á þessu á Íslandi. Þið hafið ekki nokkra möguleika til að breyta þessum málum eins og við gerðum. Þið hafið ekki möguleika til þess. Fámenni landsins er það mikið og aðstæður á Íslandi að þetta hentar ykkur ekki. Þið skuluð ekki apa þetta eftir okkur.
Og við það hefur verið staðið í sambandi við þá umfjöllun sem þetta mál hefur fengið hér á landi síðan, að ekki hefur verið farið inn á þá braut heldur hafa sveitarstjórnarmenn viljað þróa þetta áfram með samstarfi og samvinnu sín á milli. Og við höfum séð hvert stórvirkið unnið hér á landi á þessu sviði einmitt gegnum þessa stefnu. Við getum ferðast um sýslu eftir sýslu, eða hérað eftir hérað þar sem við sjáum sveitarstjórnarmenn vinna saman að byggingu skóla, byggingu læknisbústaða eða heilsugæslustöðva, félagsheimila o.s.frv. Þarna er hin frjálsa samvinna sveitarfélaga að verki. Og þessi samvinna þeirra gerir það að verkum að fleiri og fleiri sveitarstjórnarmenn á Íslandi hafa komið auga á þá staðreynd að það er miklu betra að þjappa sér saman á þennan hátt. Það er stutt í það að víða vilji þessir menn stíga skrefið til fulls og sameina sveitarfélögin. Ég er ekki í neinum vafa um að það kemur - ekki með valdbeitingu heldur með þessari þróun og það þarf að fylgja henni eftir með skynsamlegri aðgerð stjórnvalda.
Ég ætla að benda ykkur á - og það er í raun og veru nóg svar til hv. 1. þm. Vesturl. og hv. 1. þm. Norðurl. v. - að það er alveg brýn nauðsyn og réttlæti í alla staði að réttarstaða sveitarfélaga verði sú sama hér á landi. Hún er það ekki í dag. Hún getur ekki orðið það við það kerfi sem við höfum búið við. Það er útilokað. Sumir landshlutar búa við það ástand, eins og fram kom hjá einum hv. ræðumanni áðan, að þar eru aðeins örfáir hreppar saman sem standa að sýslufélagi sem er máttlaust, getur ekki neitt.
Ég gæti haldið langa ræðu út frá ræðu hv. 1. þm. Vesturl. Auðvitað er sýslunefnd og sýslufélag Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu óvirk í dag. Það er ósköp eðlilegt því að tekjumesta sveitarfélagið er farið út og orðið kaupstaður. Þó er það verra víða annars staðar. Ég er alls ekki með þessu að segja það að sýslurnar og sýslunefndirnar hafi ekki unnið stórvirki hér á landi. Það hafa þær gert í gegnum tíðina. En það er bara búið mál. Það gengur ekki upp lengur þetta kerfi sem við höfðum hér á landi. Það eru að vísu tvö verkefni sem eru eftir þegar þessi lög eru komin í gegn. Það eru fjallskilareglugerðir og sýsluvegir. Hvernig haldið þið að sýsluvegirnir séu framkvæmdir í gegnum sýslunefndirnar í dag? Haldið þið að það séu sýslunefndirnar sem gera þetta? Það er Vegagerð ríkisins sem framkvæmir þetta og það er ekkert auðveldara en að gera litla breytingu á vegalögum og færa þetta formlega til Vegagerðarinnar. Vegagerðin leggur skýrslurnar inn á sýslunefndarfundina og gengur frá því þar. En ég ætla ekki að fara að ræða þetta sérstaklega, herra forseti. Ég vil bara leggja áherslu á að það er svo mikilvægt að ný sveitarstjórnarlög gangi í gildi eftir alla þessa vinnu sveitarstjórnarmanna í áraraðir, það má segja í raun áratugi, að við getum ekki litið fram hjá þeirri staðreynd að þessi breyting verður að koma. Við getum ekki ætlað sveitarstjórnum og sveitarfélögum á Íslandi í dag að vinna að sínum málum og reka sig alls staðar á agnúa í núgildandi lögum sem hindra það að þeir geti haft eðlilega stjórn á þessum málum. En því miður er það þannig.
Það hefði verið fróðlegt í raun og veru ef hv. alþm. hefðu getað gefið sér tíma í gær og í dag að sitja fund fulltrúaráðs sveitarfélaga sem er nýlokið. Þar voru þessi mál rædd með tilliti til hagsmuna sveitarfélaga og í fulltrúaráði sveitarfélaga sitja reyndir og traustir sveitarstjórnarmenn sem vita hvað byggðarlögunum er fyrir bestu í þessum málum. Þeir hafa einmitt fjallað um þetta. Þeir hafa fjallað um sveitarstjórnarfrv., sem hér er til umræðu, þeir hafa fjallað um tekjustofnafrv., sem er væntanlegt næstu daga, og þeir hafa gert þá tillögu þar að þeir óska eindregið eftir því að þetta frv. verði að lögum.
Ég ætla ekki að ræða þetta meira. Ég vonast til þess að Alþingi beri gæfu til að samþykkja þetta frv. Það lokar ekki fyrir framhaldið. Það er alveg ljóst að ef þetta frv. verður að lögum eykur það frekar möguleikana á því að ræða á næstu árum um það hvort við eigum að stíga það skref að byggja hér upp þriðja stjórnsýslustigið, hvort sem það heitir fylki eða annað, eða hvort við eigum að vinna að því á næstu árum, sem ég mundi telja að væri gæfuríkast, að stækka einingar sveitarfélaga með samvinnu sín á milli og sameiningu þannig að niðurstaðan verði sú að hér verði aðeins tvö stjórnsýslustig, þ.e. ríkið annars vegar og sveitarfélögin hins vegar. Ég tel að það sé æskilegasta formið og þetta frv. lokar ekkert fyrir þessar umræður, þvert á móti opnar það.