28.02.1986
Neðri deild: 54. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2903 í B-deild Alþingistíðinda. (2444)
232. mál, talnagetraunir
Frsm. (Gunnar G. Schram):
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nál. allshn. á þskj. 547 um frv. til laga um talnagetraunir. Þetta mál var hér á dagskrá Nd. á síðasta þingi í nokkuð annarri mynd. Þar var gert ráð fyrir því að Öryrkjabandalagi Íslands væri veitt einkaleyfi með lögum á talnagetraunum þeim sem fjallað er um í þessu frv. Málið olli miklum deilum og náði ekki fram að ganga en undir lok málsmeðferðar var frá því gengið að samningar skyldu hefjast milli Öryrkjabandalagsins og Íþróttasambands Íslands, sem einnig hafði lýst miklum áhuga á að fá slíkt leyfi til talnagetrauna eins og hér er um fjallað.
Nú liggur fyrir í frv. þessu, sem er 232. mál þingsins, að samkomulag hefur náðst milli Íþróttasambands Íslands, Ungmennafélags Íslands og Öryrkjabandalags Íslands um rekstur getrauna sem fara fram með þeim hætti að þátttakendur skrá eða velja röð talna eða bókstafa. Gert er ráð fyrir því að ágóðinn af þessu talnahappdrætti eða happaspili, eins og það er nefnt í eldri lögunum frá 1926, skiptist milli íþróttahreyfingarinnar, sem fær 60% af ágóðanum, og Öryrkjabandalagsins sem fær 40% af ágóðanum. Um þetta er fullt samkomulag og að því leyti til er hér um nýmæli að ræða í frv. miðað við þá útgáfu sem lögð var hér fram í deildinni á síðasta þingi. Um þetta mál hefur sem sagt orðið fullt samkomulag milli þeirra aðila utan þings sem áhuga höfðu á því að fá slíkt leyfi og rætt var um hér á síðasta þingi.
Allshn. hefur rætt þetta nýja frv. um talnagetraunir og leggur einróma til að það verður samþykkt eins og fram kemur í nál. á þskj. 547. Undir það rita auk mín Guðrún Helgadóttir, Friðjón Þórðarson, Ólafur Þ. Þórðarson, Pálmi Jónsson og Stefán Guðmundsson.