28.02.1986
Neðri deild: 55. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2907 í B-deild Alþingistíðinda. (2448)
303. mál, ráðstafanir í ríkisfjármálum
Svavar Gestsson:
Herra forseti. Áður en ég vík að einstökum efnisatriðum frv. og þeirra kjarasamninga sem nú hafa nýlega verið gerðir vil ég víkja sérstaklega að fáeinum atriðum sem nauðsynlegt er að fá upplýsingar um áður en þetta mál fer út úr deildinni sem væntanlega verður á þessum sólarhring.
Það fyrsta, sem ég vil fá upplýsingar um, er það hver verði hækkunin á elli- og örorkulífeyri og tekjutryggingu aldraðra og öryrkja og hvenær sú hækkun taki gildi. Venjan hefur verið sú að þessar hækkanir hafa átt sér stað um leið og kjarasamningar hafa verið frágengnir. Ég teldi eðlilegt að svo yrði einnig nú. Ég óska eftir upplýsingum frá hæstv. fjmrh., annaðhvort í umræðunni nú eða fyrir nefndinni þegar hún hittist í kvöld, um það hvaða hækkanir verði hér um að ræða.
Í öðru lagi vil ég minna á að einn af hornsteinum þessa samkomulags alls er samkomulagið um húsnæðismál. Í því frv., sem hér liggur fyrir, eru ekki ákvæði um útfærslu þess samkomulags í einstökum atriðum. Hins vegar er gert ráð fyrir því í samkomulagi aðila vinnumarkaðarins, sem ríkisstj. hefur samþykkt, að hið nýja kerfi komi til framkvæmda frá og með 1. sept. n.k. Það þýðir m.ö.o. að ef eðlilega á að standa að hlutunum verður yfirstandandi þing að ganga frá ákvæðum í húsnæðismálum, þeim ákvæðum sem nauðsynlegt er að setja í lög.
Í sambandi við þetta efni vil ég sérstaklega minna á það samkomulag aðila vinnumarkaðarins sem gerði ráð fyrir því að auka fé til Byggingarsjóðs verkamanna á þessu ári um 200 millj. kr. Ég hef litið svo til að gert sé ráð fyrir að ákvörðun um það fjármagn og notkun þess verði tekin í tengslum við útfærslu á húsnæðismálayfirlýsingunni í heild.
Ég vil í þriðja lagi víkja að því að í þessum ráðstöfunum er gert ráð fyrir því að niðurgreiðslur á landbúnaðarafurðum verði auknar um 220 millj. kr. Ég vil geta þess sérstaklega hér að á fundi fjh.- og viðskn: Nd. í morgun kom fram hjá fulltrúum Samtaka kvenna á vinnumarkaði og fulltrúum Alþýðusambands Íslands að þeir teldu að mjög mikilvægt væri að búvöruverði væri haldið niðri eins og kostur er.
Það er ljóst að ríkisstj. hefur gefið ákveðin fyrirheit í sambandi við niðurgreiðslur og búvöruverð en þær eru ekki alveg skýrar. Ég sé ekki betur en að það sé óhjákvæmilegt, ef ríkisstj. ætlar að standa við yfirlýsingar sínar í þessu efni, að auka fé til niðurgreiðslna á þessu ári til viðbótar við þær 220 millj. sem þegar hefur verið tekin ákvörðun um. Ég vil fá upplýsingar um það frá ríkisstj. við þessar umræður hér, annaðhvort nú eða við 2. umræðu, hvernig ætlunin er að haga þessum málum og hvað er áætlað að það þurfi að auka niðurgreiðslur mikið til að standa við það fyrirheit sem ríkisstj. hefur gefið í sambandi við þessi mál.
Þegar ég er að tala um fyrirheit ríkisstj. bæði í húsnæðismálum og í þessum málum, sem snúa að búvöruverðinu, er ég m.a. að vitna til fréttatilkynningar sem Alþýðusamband Íslands gaf út eftir viðræður við forsrh. og fjmrh. í gærdag. Ég tel óhjákvæmilegt að þessi yfirlýsing Alþýðusambandsins verði lesin hér við þessa umræðu þannig að það megi liggja fyrir í þingtíðindum hvaða forsendur lágu til þess að menn að lokum tóku um það ákvörðun að skrifa undir samningana eins og þeir lágu fyrir seinni partinn í gær. Í fréttatilkynningu Alþýðusambands Íslands segir svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Forsætis- og fjármálaráðherra lögðu í dag fram svarbréf sitt við bréfi samningsaðila frá í gær. Á fundinum var eftirfarandi sérstaklega tekið fram af hálfu ríkisstjórnarinnar:
Varðandi búvöruverð 1. mars var því lýst yfir að tryggt verði að mjólk og kjöt hækki ekki og búvörur í heild í framfærsluvísitölu hækki ekki. Á sama hátt verði tryggt að hækkun búvöruverðs verði ekki umfram umsamda hækkun launa síðar á árinu.
Skýrt var frá því að ríkisstj. hafi tilkynnt Seðlabanka að hún geti ekki fallist á hækkun vaxta á verðtryggðum lánum úr 5% í 6%.
Staðfest var að ríkisstj. sé sammála þeim hugmyndum sem settar hafa verið fram um lausn húsnæðismála og athugunin, sem um er rætt í bréfinu, snúist um framkvæmd eða útfærslu þeirra hugmynda.
Greint var frá því að ákveðið hafi verið að tryggingabætur almannatrygginga hækki í samræmi við þá hækkun sem nú verður á launum skv. samningi ASÍ og atvinnurekenda og að tekið verði tillit til hinna sérstöku launabóta við hækkun tekjutryggingar.
Að fengnum þessum skýringum hafa fulltrúar samninganefndar Alþýðusambands Íslands ákveðið að undirrita þann samning sem gerður var í gær og beinir því til félaganna að þau undirbúi fundahöld til þess að afgreiða samninginn.“
Ég tel að það sé mjög mikilvægt að þessi fréttatilkynning og sá skilningur, sem birtist í henni, komi hér fram við umræður á Alþingi, þannig að mönnum gefist kostur á því, ef þeir hafa athugasemdir fram að færa við efni hennar, að koma þeim á framfæri. Hér er um að ræða úrslitaatriði varðandi frágang samninganna og því nauðsynlegt að hér fari ekkert á milli mála, hér séu allir hlutir eins skýrir og kostur er og menn eigi hér engin eftirkaup hver við annan.
Ég vil þessu næst, herra forseti, víkja örfáum orðum að kjarasamningunum sjálfum og innihaldi þeirra. Fyrsta atriði kjarasamninganna, sem menn hljóta að spyrja um, er ákvörðun þeirra og áhrif á kaupmátt launa. Það sem kemur fram í þeim efnum er það að ef við lítum á tölur Þjóðhagsstofnunar um þessi efni þá hækkar kaupmáttur launa á þessu ári um 7,1% frá jan. til des. Að meðtöldum sérstökum launabótum hækkar kaupmáttur launa á þessu ári um 8,2%. Talið er að þessar sérstöku launabætur nái til 30 000-40 000 félagsmanna Alþýðusambandsins eða u.þ.b. helmings félaga í Alþýðusambandi Íslands.
Ég tel að aðstæður í þjóðarbúinu séu þannig að það hefði átt að vera unnt að gefa þarna meira eftir gagnvart launafólki og auka kaupmátt frá því sem þarna er gert ráð fyrir. Engu að síður ber að meta þessa niðurstöðu sem árangur og verulegt skref vegna þess fyrst og fremst að kaupmáttur launanna fer á árinu 1986 skv. þessu, ef allar forsendur halda, vaxandi á samningstímabilinu og skapar þannig möguleika til þess fyrir verkalýðshreyfinguna að ná fram betri stöðu varðandi baráttu fyrir bættum kaupmætti launa þegar samningstímabilinu lýkur.
Þetta er mjög mikilvægt atriði og í rauninni allt annað en það sem verkalýðshreyfingin hefur iðulega mátt búa við á undanförnum árum þar sem kaupmátturinn hefur náðst aðeins upp í upphafi samningstíma, en hefur iðulega verið kominn niður í mikla lægð í lok samningstíma.
Í öðru lagi vil ég leggja á það áherslu að ég tel að ávinningurinn í húsnæðismálum geti verið mjög stór. Ég segi eins og vitur maður mælti forðum: Vei þeim sem reyna að eyðileggja þann samning. Vei þeim sem gera tilraun til að brjóta niður það samkomulag sem náðst hefur í húsnæðismálum. Það er alveg öruggt mál að launafólk í þessu landi bindur ekki síst vonir við þetta samkomulag og framkvæmd þess á komandi mánuðum. Þess vegna er það algert úrslitaatriði að menn gangi frá þessum hlutum og standi við þá lið fyrir lið. Með því verður fylgst rækilega að svo verði gert og ríkisstj. reyni ekki á neinn hátt að hlaupast hér undan merkjum.
Ég teldi að eðlilegast væri í framhaldi af umfjöllun um þessi mál á hv. Alþingi nú að á næstunni yrði samið frv. um útfærslu húsnæðismálanna sem yrði afgreitt á yfirstandandi löggjafarþingi. Ég tel að það sé óhjákvæmilegt að í þessi mál verði farið af fullum krafti þegar á næstunni þannig að útfærslan liggi fyrir hið allra fyrsta.
Ég vil í þriðja lagi, herra forseti, varðandi þessa kjarasamninga vekja athygli á því sem náðst hefur varðandi fiskvinnslufólk. Það eru ekki nema 6-8 mánuðir síðan stjórnarmeirihlutinn felldi frv. til l. um bætt réttindi fiskverkunarfólks gagnvart uppsögnum. Nú hafa aðilar vinnumarkaðarins náð samkomulagi um breytingar í þessu efni sem eru mjög í samræmi við það frv. sem hér lá fyrir á síðasta þingi frá hv, þm. Guðmundi J. Guðmundssyni og Karvel Pálmasyni.
Ég vil í fjórða lagi í þessu efni benda á það meginatriði að aðilar vinnumarkaðarins nái um það samkomulagi að nota góðærið, að nota olíulækkunina, að nota verðhækkanir á afurðum okkar erlendis til þess að ná verðbólgustiginu hér í landinu verulega niður. Ríkisstj. hafði sett sér það mark að koma verðbólgustiginu niður. Hún hafði lækkað kaup. Samt var verðbólgan talin 30, 40, 50% hér um áramótin. Aðilar vinnumarkaðarins taka ákvörðun um að vinna það verk, gera tillögur um hvernig á að vinna það verk sem ríkisstj. hafði ekki komið í framkvæmd. Í rauninni er það kannske aðalatriði þessara mála að með samkomulagi aðila vinnumarkaðarins frá því í þessari viku eru þeir með samhljóða atkvæðum að lýsa vantrausti á ríkisstj. Þessir aðilar þurfa að taka gengismál, vaxtamál, verðlagsmál, allar meginforsendur efnahagsmála upp á sitt borð vegna þess að ríkisstj. hefur brugðist skyldum sínum í þessum efnum og ríkisstj. á engan annan kost en að hlýða, að gegna. Það er þess vegna sem ég lagði á það áherslu í ræðu minni í gær að meginverkefni næstu mánaða væri að fylgja þessu eftir og sjá um að ríkisstj. komist ekki upp með svik og pretti í þessum efnum, hvort sem það er í verðlagsmálum, húsnæðismálum eða á öðrum sviðum.
Ég nefndi verðlagsmál. Þar hafa komið fram mjög athyglisverðar yfirlýsingar, m.a. frá formanni Vinnuveitendasambands Íslands. En þeir gægjast víða upp, draugarnir á þessu sviði, jafnvel áður en blekið á samningunum er þornað: fréttir blaðanna í dag um 67% hækkun á húsaleigu Reykjavíkurborgar. Það segir sína sögu að þeir eru til sem virðast ekki hafa áttað sig á því hvað hér er að gerast. Það verður að passa upp á svona hluti. Það verður að veita þessu liði aðhald og sjá til þess að ekki verði staðið að verðlagsmálum með þessum hætti. Það er auðvitað óþolandi þegar einn samningsaðilinn, þ.e. Reykjavíkurborg, gengur fram með þessum hætti og tilkynnir 67% hækkun húsaleigu einmitt þessa daga, þegar verið er að ganga frá þessum kjarasamningum sem byggjast á því að það á að keyra verðlagið í landinu niður.
Í þessum efnum verður að koma til mjög víðtækt samstarf verkalýðshreyfingarinnar og Neytendasamtakanna, verðlagsskrifstofunnar. Það skiptir mjög miklu máli að einstakir framleiðendur og atvinnurekendur standi sig í þessu efni og tryggi að verðlækkun á olíu t.d. komi neytendum og öðrum kaupendum vöru til góða.
Þetta eru nokkur atriði varðandi kjarasamningana, herra forseti, sem ég vil nefna.
Ég dreg enga dul á að ég tel að ýmislegt í forsendum þessara mála sé óljóst. Ég dreg enga dul á að það hlýtur hver maður að sjá hvaða áhrif geta orðið af ákvörðunum ríkisstj. um að lánsfjármagna þetta dæmi allt. Menn hljóta að sjá hvaða áhrif það getur haft á ríkisfjármálin til frambúðar. Ég dreg enga dul á að auðvitað verður það þannig þegar líður á árið að ýmsir aðilar munu segja að mjög sé að þeim kreppt vegna hækkandi raungengis íslensku krónunnar. Þetta er fullkomlega ljóst og menn eiga að viðurkenna þessa þætti, horfa á þá opnum augum og taka á þeim. Ég tel t.d. að ákvörðun ríkisstj. um að lánsfjármagna alla framkvæmd þessara mála muni hafa í för með sér hækkandi raunvexti frá því sem ella væri. Það verður harðari samkeppni um fjármagnið þegar líður á árið en nú er og þess vegna hætt við að áformum í vaxtamálum sé stefnt í hættu. Ég tel að það sé þó meginatriði þessara mála að frá því sem snýr að Alþingi í þessu frv. verði gengið hið allra fyrsta.
Ég fagna því auðvitað að ríkisstj. skuli ekki tefja þetta mál hér á Alþingi og hún skuli sjá sóma sinn í því að reyna að koma því sem fyrst hér í gegnum þingið því það þarf auðvitað að gerast. Hér er um að ræða eina veigamestu forsendu verðlagsniðurfærslunnar sem verið er að tala um í sambandi við þessa samninga.
Í þessu frv., sem hér liggur fyrir á þskj. 556, er verið að taka á þeim þáttum sem lúta einmitt að verðlagsniðurfærslunni og auðvitað eru þeir með þeim hætti að það er sjálfsagt og eðlilegt að Alþingi afgreiði þessi mál tafarlaust. Auðvitað er það svo að útfærsla á einstökum atriðum getur verið umdeilanleg, t.d. hvaða tolla á að lækka og hvaða ekki, en í heildina tekið er hér um að ræða útfærslu á niðurfærslunni sem verður að taka gildi nú um mánaðamótin vegna þess að það er einn grunnþáttur þeirrar kaupmáttaraukningar sem verið er að tala um að geti orðið afleiðing af þessum samningum.
Ég tel því enga ástæðu til þess, herra forseti, að vera að gera athugasemdir við einstakar greinar þessa frv. Ég fagna því auðvitað að 23. gr. frv., eins og það var, hefur verið felld niður, var felld niður í Ed.
Ég tek það sérstaklega fram að ég tel þá skerðingu sem gert er ráð fyrir að viðhalda á Jöfnunarsjóði sveitarfélaga í 24. gr. óeðlilega. Ég get ekki stutt slíka skerðingu, enda þótt hún sé aðeins framreikningur á þeirri skerðingu sem ákveðin var í lánsfjárlögum.
Þá vil ég einnig taka fram, herra forseti, að fyrir mitt leyti og okkar getum við fallist á þá aðferð við afnám verðjöfnunargjalds af raforkusölu sem gert er ráð fyrir í 15. gr. frv., enda er tekin um það ákvörðun jafnframt að niðurgreiða rafmagn. Við tökum þessa afstöðu í trausti þess að verðjöfnun á rafmagni verði tryggð framvegis með annarri hvorri leiðinni eftir nánari ákvörðun þegar þar að kemur.
Ég vil ekki tefja þessa umræðu, herra forseti, með því að bæta við mörgum fleiri orðum, en segja þetta að lokum:
Ég hef tekið eftir því undanfarna daga að fólk hefur verið að hneykslast á að aðilar vinnumarkaðarins skuli vera að ákveða vissa þætti efnahagsmála og jafnvel löggjafar í þessu landi. Það er út af fyrir sig ekki óeðlilegt að menn geri athugasemdir við það, einkum þeir sem hér sitja. Kjarni málsins er hins vegar sá að við búum í stéttaþjóðfélagi og það eru stéttir sem ráða úrslitum um þróun þess. Ef okkur kemur á óvart að til verði niðurstöður upp úr átökum stéttanna sem síðan enda með samningum höfum við ekki gert okkur fulla grein fyrir því hver er úrslitaþátturinn í framvindu þjóðmála í þessu landi. Ég fagna því að Alþýðusamband Íslands skuli í þessum samningum hafa náð fram ýmsum atriðum sem stjórnarmeirihlutinn á Alþingi hefur stöðvað eða jafnvel fellt á undanförnum árum. Ég fagna því sérstaklega. Og ég tel það mikilsvert, og það er það frá sjónarmiði okkar Alþýðubandalagsmanna, að þannig sé afli verkalýðsstéttarinnar stundum beitt til að knýja fram þjóðfélagsumbætur í landinu.