28.02.1986
Neðri deild: 56. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2946 í B-deild Alþingistíðinda. (2462)

303. mál, ráðstafanir í ríkisfjármálum

Steingrímur J. Sigfússon:

Herra forseti. Það verkar e.t.v. eins og stílbrot á hv. þingdeild að menn skuli fara að biðja um orðið eftir þessi hjartnæmu lokaorð fjmrh., en ég vil þó aðeins leitast við að fá fram betri skýringar á einum tilteknum þætti. Það varðar búvöruverð og aðrar ráðstafanir sem hæstv. ríkisstj. hefur hugsað sér eða ætlað sér að gera í sambandi við málefni landbúnaðarins, bæði í tengslum við þessa kjarasamninga og reyndar mætti spyrja um stefnu hennar og aðgerðir yfirleitt í þeim efnum. Það er einkum tvennt, herra forseti, að mínu mati sem nokkur óvissa ríkir um við afgreiðslu þessa frv. Það eru framkvæmdir ríkisstj. varðandi húsnæðismálin og búvöruverð og fjármálahlið þess sem snýr að landbúnaðinum.

Ég vil spyrja og alveg sérstaklega undirstrika hvort ríkisstj. hyggist láta þessar 220 millj., sem hér eru frá teknar og merktar í þetta verkefni, duga eða hvort þess sé að vænta, sbr. grg. frv., að meira fjármagn verði tekið í ráðstafanir í landbúnaði. Með leyfi forseta vil ég vitna í fskj. 2 með frv., bls. 13. Þar segir:

"Ríkisstj. mun að auki leggja fram 220 millj. kr. til að lækka verð á búvörum og beita öðrum ráðstöfunum til þess að tryggja að búvöruverð hafi ekki áhrif til hækkunar á vísitölu framfærslukostnaðar í marsbyrjun og hækki ekki umfram umsamda hækkun launa síðar á árinu.“

Hvaða aðrar ráðstafanir er hér verið að tala um? Er hér verið að tala um viðbótarfjármagn, meiri niðurgreiðslur? Er hér verið að tala um tilflutning frá útflutningsbótum yfir í niðurgreiðslur eins og stundum hefur heyrst nefnt? (GJG: Er þm. á móti því?) Þm. er það ekki endilega. Ég vil fá að sjá og heyra hvaða áform ríkisstj. hefur um það áður en ég tek afstöðu til þess, svona „paa staaende fod“ eins og fulltrúar okkar í Norðurlandaráði segja. Hvaða aðrar ráðstafanir gæti hæstv. ríkisstj. hugsað sér að gera í þessum efnum? Ég nefni sem dæmi lækkun áburðarverðs. Gæti það komið til greina að til viðbótar þessu sem hér er fjallað um kæmu slíkar ráðstafanir eða sérstök aðstoð við skuldugustu bændurna sem eru umvörpum að fara á höfuðið, umvörpum að verða gjaldþrota, sbr. sérstaka úttekt á högum þeirra sem nýverið hefur verið gerð grein fyrir. Það er alveg ljóst að það mundi bæta verulega kjör stéttarinnar og auka þol hennar til að mæta erfiðleikum og m.a. samdrætti í framleiðslu ef gripið væri til sérstakra ráðstafana gagnvart þessum hópi bænda sem stendur allra verst. Það liggur alveg fyrir, herra forseti, að fjárhagur bænda er þannig að þeir hafa ekkert borð fyrir báru, þeir hafa engan aukavasa til að taka úr þær krónur sem koma eiga á móti skerðingu í framleiðslu sem þegar er búið að semja yfir þá á þessu ári. Ég spyr hæstv. fjmrh. eða e.t.v. vill hæstv. forsrh., formaður Framsfl., svara því: Hvernig hafa menn hugsað sér að mæta þessu gagnvart launalið bóndans þegar það liggur fyrir að hluti af þessum pakka eru ráðstafanir til að koma í veg fyrir hækkun búvöruverðs? Hvernig ætla menn að skila bóndanum í gegnum launalið hans þeim kjarabótum sem bændum að sjálfsögðu ber eins og öðrum í framhaldi af þessum kjarasamningum?

Mér sýnist í fljótu bragði að það geti verið snúið dæmi ef ríkisstj. ætlar sér engar aðrar ráðstafanir en þær sem hún hefur þegar gert grein fyrir. Þess vegna spyr ég sérstaklega um aðra hluti sem komið gætu til lækkunar á rekstrargrundvellinum eins og t.d. áburðarverð eða aðrar slíkar ráðstafanir.

Herra forseti. Ég ætla ekki að tefja tímann með því að fara að öðru leyti út í almenna umræðu um þessa samningagjörð og þetta frv. þótt ýmislegt mætti um það segja. Ég er ekki alveg sammála hv. sessunaut mínum og 3. þm. Vestf., sem hér talaði áðan, um að menn hljóti annaðhvort að vera algerlega með þessum samningum eða algjörlega á móti. Málin eru ekki alltaf svo einföld. Í mínum huga er hér mjög margt gott, en einnig annað sem er ekki eins gott. Afstaða mín mótast út frá því. Ég hygg þó fyrst og fremst að hér gildi hið fornkveðna að dag skuli að kveldi lofa og mey að morgni og fjárlög ei fyrr en að ári, eins og hv. þm. Geir Gunnarsson segir. Reynslan mun dæma þessa samninga best, þessa tilraun eins og menn kalla svo. Ég ætla að spara mér alla spádóma um það.