28.02.1986
Neðri deild: 56. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2947 í B-deild Alþingistíðinda. (2463)
303. mál, ráðstafanir í ríkisfjármálum
Forsrh. (Steingrímur Hermannsson):
Herra forseti. Á fundi með aðilum vinnumarkaðarins í gær náðist full samstaða um hvernig yrði farið með búvöruhækkun. Eins og reyndar kom fram í fréttatilkynningu ASÍ var á þeim fundi lofað að mjólk og kjöt hækkaði ekki nú 1. mars og annarri hækkun yrði eytt. Við þetta verður staðið. Það er verið að ganga frá þessu í dag og á morgun. Búvörugrundvöllurinn mun hækka um 5,2%. Bændur fá þar uppi bornar þær launahækkanir sem sámið var um. Það er ekkert af því tekið. Bændur hafa hins vegar á fundum sem ég hef átt með þeim lýst því að þeir teldu í þessum aðgerðum ýmislegt sem væri þeim hagkvæmt þegar til lengri tíma er litið og hafa lagt á það áherslu að þeir muni ekki skorast undan að taka þátt í þeirri viðleitni að ná verðbólgunni niður.
Mér er tjáð að það verði ekki hækkun á kjöti, ekki hækkun á mjólk og annarri búvöruverðshækkun verði mætt með niðurgreiðslu á smjöri.
Við höfum einnig heitið því, eins og kom fram í því bréfi sem ég las í gær og allir hafa eflaust kynnt sér í blöðum og víðar, að búvöruverðshækkunum á þessu ári verði haldið innan þeirra marka sem umsamdar launahækkanir eru, þ.e. 2,5-3-2,5. Í búvörugrundvellinum eru laun bóndans innan við 40% þannig að jafnvel þó að þau séu að fullu uppi borin er þar nokkurt borð fyrir báru. Þess er að vænta að ýmsir þeir liðir sem verka nokkuð á aðra þætti búvörugrundvallarins lækki jafnvel.
Það er rétt hjá hv. þm. að áburðarverð er það sem ástæða er til að hafa áhyggjur af nú 1. júní. Ekki er ákveðið hvernig því verður mætt. Það verður ákveðið m.a. með tilliti til annarra hækkana sem verða á rekstrarvörum landbúnaðarins. Ég held að það sé full ástæða til að ætla að þessar 220 millj. gangi nokkuð langt. Það er mín skoðun. En ég get ekki svarað því fullkomlega á þessari stundu fremur en hæstv. fjmrh.
Um búvöruverð vil ég síðan segja að haft hefur verið fullt samráð við fulltrúa bænda um þetta og fullur skilningur er á milli þeirra og stjórnvalda um hvernig á þessum málum er tekið.
Af því að minnst var á húsnæðismálin, sem hæstv. fjmrh. hefur svarað, þá vil ég ítreka það, sem fyrr hefur komið fram, að ríkisstj. er í grundvallaratriðum sammála þessum tillögum. Hins vegar eru eyður í tillögum um húsnæðismál. Það er ekki sagt þar hve skattaafsláttur skuli vera mikill eða hve lengi hann skuli veittur og þar er að sjálfsögðu ekkert um það fjallað hvernig fara skuli með vaxtamun og hve hann geti orðið mikill ef lánin með miklum vöxtum eru löng o.s.frv. Að sjálfsögðu verður að kanna þá þætti. Um það var einnig fullt samkomulag á fundinum í gær að slíka útfærslu verður að kanna og þess að gæta að ekki verði lagðar á ríkissjóð byrðar sem hann fær ekki staðið undir.