04.03.1986
Sameinað þing: 54. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2953 í B-deild Alþingistíðinda. (2470)
Varamaður tekur þingsæti
Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):
Borist hefur svohljóðandi bréf:
„Alþingi, 3. mars 1986.
Steingrímur Hermannsson, 2. þm. Vestf., hefur ritað mér á þessa leið:
„Með vísan til 130. gr. 3. málsgr. laga nr. 52/1959 tilkynnist yður hér með að Magnús Reynir Guðmundsson frá Ísafirði mun taka sæti mitt á Alþingi næstu tvær vikur vegna setu minnar á þingi Norðurlandaráðs í Kaupmannahöfn.“
Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.
Ingvar Gíslason,
forseti Nd."
Magnús Reynir Guðmundsson hefur áður tekið sæti á Alþingi á þessu kjörtímabili og býð ég hann velkominn á ný til starfa.