04.03.1986
Sameinað þing: 55. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2970 í B-deild Alþingistíðinda. (2484)
269. mál, frelsi í innflutningi á olíuvörum
Guðmundur J. Guðmundsson:
Herra forseti. Ég hafði ekki í hyggju að taka þátt í þessum umræðum. Það rifjuðust upp fyrir mér nokkur æviatriði við þessar umræður. Ég vil þó í upphafi taka undir það sem hæstv. viðskrh. endaði mál sitt á er hann spurði hvar ætti að selja síldina. Sannleikurinn er sá að þau svæði þar sem við höfum möguleika á að selja síld eru Eystrasaltsríkin og eftir að Pólland datt þar út, sem var ákaflega stór kaupandi, og við misstum markaði fyrir síld í Sovétríkjunum má gera ráð fyrir að við þurfum að veiða síld í bræðslu.
Sama mætti segja um ótrúlega markaði fyrir lagmeti, ullarvörur hvers konar og svo um svartolíuna sjálfa sem að gæðum til ber af. Ætti hv. þm. Valdimar Indriðason, sem er gamall vélstjóri á togara og smærri fiskiskipum, að þekkja þar vel til og vart aðrir þm. betur.
Hins vegar er ég ekki að gera þá kröfu að það sé verslað við Sovétríkin með olíu alltaf og undir öllum kringumstæðum. Sannleikurinn er sá að það voru Íslendingar sjálfir sem gerðu þá kröfu á sínum tíma að Rotterdam-verð yrði látið gilda. Sú krafa kom ekki frá Sovétríkjunum. Vitanlega er það hins vegar rétt hjá hv. þm. Kjartani Jóhannssyni að það ber ekkert að efa að Sovétríkin halda á sínum málum. Það er ekkert gjafasjónarmið hjá þeim. Ég held að ef þessi mál eru grannt skoðuð fari hæstv. viðskrh. með býsna rétt mál. En þetta kostar náttúrlega ítarlegar umræður.
En sama er að segja um fragtir frá Sovétríkjunum. Það er ekki einungis að þær hafi verið ódýrari. Þær hafa verið ákaflega öruggar. Það er mikill munur á þeim sjóræningjaskipum sem hingað hafa komið frá Panama, Líberíu, Singapore o.s.frv. og á þeim skipum sem komið hafa frá Sovétríkjunum og skapar það ákveðið öryggi.
Ég ætla að leiða hest minn að öðru leyti frá þessum umræðum, en af því að hæstv. viðskrh. er kominn í salinn skal ég segja að ég held að hann hafi haft býsna rétt fyrir sér í mörgum málum. En þegar rætt er um hina vernduðu forstjóra, sem eru persónulegir kunningjar mínir, hina vernduðu forstjóra olíufélaganna og um eymd olíufélaganna fara að renna upp fyrir manni ýmis ævintýr. Nýlega er búið að opna við Vesturlandsveg nýja olíustöð, ég held það sé Skeljungur, 1311 m frá næststærstu bensínstöð í Reykjavík, 1311 m frá, Reykvíkingum til stórkosttegra hagsbóta. Áður en byggingu þessarar stóru bensínsölu var að mestu lokið var búið að fjárfesta í nýrri stöð 1311 m frá þeirri næstu, 43 milljónir. Og viti menn! Hinum megin við götuna ætlar British Petroleum, ég held það heiti orðið Olís, fyrirgefið, að reisa olíustöð líka. Ætli það dansi þarna þá ekki 100 milljónir sitt hvorum megin við götuna, í 1311 m fjarlægð frá nýtísku olíustöð. Ja, þetta er meiri einokunin og skorturinn á frelsinu. Mér sýnist þessir menn geta leikið sér að fjárfestingum hreinlega eins og þeim sýnist.
Það leitar á mig hringing sem ég fékk einu sinni austan af landi. Þar var forsvarsmaður verkalýðsfélags og hann sagði: „Má vinna á páskunum?" „Páskunum?", segi ég. „Nei, það er ekki unnið á páskunum. Það er ekki einu sinni gert í fiski, að bjarga fiski undan skemmdum.“ „En á föstudaginn langa?" „Nei, en þeir vinna nú oft fram eftir nóttu aðfaranótt föstudagsins langa. Við hvað ertu að vinna?" „Ja, við erum að byggja bensínstöð“, segir hann. „Nú, ekki vinnið þið á föstudaginn langa við það?" „Jú, jú, allan föstudaginn langa (þetta var laugardaginn fyrir páska) og forstjórinn heimtar að við vinnum allan páskadag, en hann býðst til þess að gefa okkur tveggja tíma frí meðan á messutíma stendur“.
Þeir eru guðræknir og mikið feikilega eiga þeir bágt!