05.03.1986
Neðri deild: 58. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2987 í B-deild Alþingistíðinda. (2504)

Um þingsköp

Samgrh. (Matthías Bjarnason):

Út af fsp. hv. þm. skal ég upplýsa að það hefur fallið í minn hlut að vera staðgengill menntmrh. í örfáa daga, en hvorki hann eða fyrri staðgengill menntmrh., sem fór úr landi um helgina, hafa óskað eftir því við mig að ég mælti fyrir þessu frv. Því get ég því miður ekki orðið við ósk hv. fyrirspyrjanda í þessum efnum, en vona að það verði þegar í næstu viku mælt fyrir þessu frv.